Bæjarins besta - 25.05.1988, Síða 13
BÆJARINS BESTA
13
Jón ívarsson flugmaður, Andy umboðsmaður Ernis í Bandaríkjunum, og Jón Gunnarsson flug
maður sem var samferða Ernismönnum til landsins.
Týndur
ferjuflugmaður
í Goose Bay hittum við
fyrir amerískan ferju-
flugmann sem var að ferju-
fljúga einshreyfils vél til Evr-
ópu. Hann lagði af stað
u.þ.b. einni klukkustund á
undan okkur og vorum við í
sambandi við hann á leiðinni
eða allt þar til við komum
upp af Grænlandsströnd. Þá
vorum við kallaðir upp og
beðnir um að reyna að ná
sambandi við vélina á öllum
hugsanlegum bylgjum, því
vélin væri komin tvær
klukkustundir fram yfir
áætlaðan lendingartíma í
Narssarsuaq á Grænlandi. Við
kölluðum í hann á öllum
bylgjum en hann svaraði
hvergi, þannig að við vorum
orðnir nokkuð óttaslegnir um
hann. Er ég kom til Reykja-
víkur um daginn spurðist ég
fyrir um hann og fékk þær
upplýsingar að hann hefði
skilað sér til Reykjavíkur.
Hvar hann lenti á Grænlandi
veit ég ekki né um aðrar ferð-
ir hjá honum.
Stefnan tekin
til ísafjarðar
Lagt var í hann aftur frá
Goose Bay kl. 11:30 að ísl.
tíma eftir að hafa fengið
veðurlýsingu á leiðinni svo og
á íslandi. Þær veðurlýsingar
hljómuðu mjög vel, reyndar
vorurn við mjög heppnir t.d.
þegar við flugum yfir Græn-
landsjökul því þar var heið-
skýrt og ægifagurt að sjá. Það
er stóikostlegt að fljúga yfir
Grænlandsjökul í svona
veðri. Nú við tókum land yfir
vesturströnd Grænlands, yfir
stað sem heitir Simiutaq og er
eyja. Þar vorum við staddir
kl. 15,45. Mjög tignarlegt var
að sjá borgarísjakana með
fram ströndinni. Er við fórum
fram hjá Simiutaq eyju lá
leiðin sem land liggur yfir
Narssarsuaq. Klukkan 17:15
erum við yfir suðurodda
Grænlandsjökuls, þar sjáum
við landfastan ís í hálfa
klukkustund (sem svarar til
80 mílna, þ.e. ísafjörður -
Borgarnes). Heiðskýrt hélst
allan tímann með hafísrönd-
inni en um kl. 19 voru komnir
skýjabakkar. Flogið var í
skýjum til kl. 20,15 en þá
vorum við staddir út af Pat-
reksfirði. Lent var á ísafirði
kl. 20,45 og voru þá 19
klukkustundir og 15 mínútna
flug að baki. Við þrír skiptum
með okkur fluginu til landsins
þannig að við gætum hvílt
okkur. Eigi að síður var
maður orðinn nokkuð tusku-
legur í restina enda sólar-
hrings vaka að baki. Síðan er
sagan öllum kunn. Við
komum hér að kvöldi 1. maí í
blíðskaparveðri. Á vellinum
var hópur manna sem fagnaði
okkur. Ég var mjög ánægður
að sjá allt þetta fólk sem mætt
var á völlinn til að taka á móti
okkur með blómum og heilla-
óskum. Hafið þökk fyrir.
TF-ORN kemur til íslands