Bæjarins besta


Bæjarins besta - 25.05.1988, Qupperneq 20

Bæjarins besta - 25.05.1988, Qupperneq 20
20 BÆJARINS BESTA Lesendur: Ólafur Helgi Kjartansson: Umhverfismál á ísafirði Fyrir nokkru síðan ritaði ég þessu ágæta blaði lítið les- endabréf vegna ástands gatna á ísafirði. Bæði var að göt- urnar voru slæmar yfirferðar og eins var sóðaskapur á þeim og gangstéttum nokkuð áberandi. Hvað holurnar varðar hef- ur verið gerð virðingarverð bragarbót og verður vonandi framhald á. Við apótekið í Hafnarstræti hefur verið gert við götuna á ágætan hátt. Þegar búið verður að gera við allt Hafnarstrætið með sama hætti verður gatan orðin góð. En það eru fleiri götur. Sundstræti þarfnast mikillar viðgerðar og svo mætti lengi telja. En þótt átaks sé þörf í þessum efnum er það ljótur blettur á bænum hvernig um- gengni er eftir skemmtanir um helgar. Hafnarstræti og Austurvegur eru þá eins og allsherjar ruslahaugur og allt vaðandi í glerbrotum auk pappírs og gosdósa. Það er mikið verk að þrífa miðbæinn og mér er það til efs að allir geri sér grein fyrir því hversu vanþakklátt starf þeir menn vinna, sem þrífa göturnar. Ef hægt er að beita einhverri samlíkingu þá má bera þetta starf saman við uppþvott. Enginn tekur eftir því meðan það er unnið en sé uppvaskið látið ógert verður þess fljótt vart. Fyrir utan einn skemmti- staðinn er rekinn pylsuvagn. Auðvitað er erfitt að halda utan um alit ruslið sem fellur þar til. Stundum hefur verið gert betur en venjulega. Því er ekki að neita að ástandið er best þegar aðstandendur taka sig tii og þrífa eftir lokun á næturnar. En margt fleira má nefna. Stöðugir landvinningar út í Pollinn hafa í för með sér þau tímabundnu vandamál að hreyfi vind kemur mikið ryk yfir bæinn. Þetta stendur til bóta. Ætlunin er að rykbinda þessi svæði. Til stendur einnig að taka í notkun nýtt Stjórnsýsluhús við Hafnar- stræti. Petta er mikið og glæsilegt hús. Fljótlega verð- ur gengið frá nánasta um- hverfi hússins og verður það væntanlega til mikils fegurðarauka í miðbænum. Þá má heldur ekki gleyma því mikla starfi sem fylgir um- hirðu garðanna við Austur- völl og fyrir ofan Hlíf. Sumarið á norðurhjara veraldar er stutt og þess dýrmætara er að nota það vel til að hlúa að gróðri. Hefur verið unnið gott starf á þessu sviði undanfarin ár og verður svo í sumar ef af líkum lætur. lætur. En það er nokkur ljóður á, hinn almenni borgari er nokkuð gjarn á það að stytta sér leið yfir grasflatir. Til- tölulega lítill átroðningur er fljótur að segja til sín. Mold- arstígar myndast eins og sjá má á sjúkrahústúninu. Bæjar- búar ættu að einsetja sér að taka frekar krók en troða á viðkvæmu grasi. Þá er því ekki að neita að stundum verður ágangur bú- fjár til þess að skemma upp- græðslu og garðrækt. Margir leggja hart að sér við að koma upp skemmtilegum görðum við hús sín og er það vel. Það er því miður ef slíkt eyðileggst af völdum búfjár. Ekki má heldur gleyma þætti Skógræktarfélags ísfirð- inga sem leggur af höndum óeigingjarnt starf við erfiðar aðstæður. En einmitt það starf sýnir okkur að betur er hægt að gera í skógrækt. Að lokum er ekki úr vegi að rifja upp lítið atvik sem ég varð vitni að um daginn. Um miðjan dag í miðri viku ók ég á eftir nýjum sportbíl sem bar í-númer. Bílstjórinn og far- þegar hans tveir voru allt ungt og glæsilegt fólk. Þau átu öll pylsur og viti menn skyndilega birtust pylsubréf á framrúðunni minni. Þetta var nokkuð langt gengið en því miður er þessi háttsemi alltof algeng. Kannski er það nú svo að baráttan fyrir bættu umhverfi byrjar í höndum okkar í bókstaflegri merk- ingu. Hugsum okkur um áður en við framkvæmum. Þá fer sjálfsagt margt betur um- hverfis okkur. Ritað í sólskininu 15. maí 1988. Fóðursala Framvegis verður fóðursala Kaupfélags ísfirðinga aðeins opin á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 13 til 15 báða dagana Kaupfélag ísfirðinga Þessi 28 feta flugfiskur, smíðaður 1987, er til sölu. Búnaður: Tvær Volvo Penta AGAD 31, 130 hp hvor vél. Duo Prop drif. Loran dýptarmælir, tvær talstöðvar, tvær DNG færavindur. Einnig 6 plastkör, 380 lítra. Upplýsingar í síma 3549, kl. 19-20.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.