Bæjarins besta - 25.05.1988, Síða 28
28
BÆJARINS BESTA
ísafjörður, sjávarútvegur:
Guðbjörg ÍS 46
er kornin heim
11,4 metrum lengri en þegar hún fór
Guðbjörg ÍS 46 sigldi tig-
narlega inn Skutulsfjörð sl.
miðvikudagskvöld, í fyrsta
sinn í um sex vikur. Um-
ræddar sex vikur hefur skipið
verið í slipp í Sichau skipa-
smíðastöðinni í Bremerhaven
í Þýskalandi. Þar voru gerðar
umtalsverðar breytingar á
skipinu. Þeir sem til þekkja
og vita hvernig skipið leit út
áður en það fór í slipp sjá
strax að skipið hefur verið
lengt. En hvað var gert ná-
kvæmlega?
Guðbjartur Ásgeirsson,
annar tveggja skipstjóra á
Guðbjörgu, sagði í samtali
við blaðamann BB að helsta
breytingin sem gerð hefði
verið á skipinu væri jú leng-
ing um 11,4 metra og að skipt
hefði verið um bógskrúfu. Þá
sagði Guðbjartur að um-
talsverðar breytingar hefðu
Guðbjörg ÍS skríður inn í höfnina.
verið gerðar á millidekki e
skipsins á slægingar- r
aðstöðunni. Þar var sett upp \
ný aðgerðarlína og um leið s
tekin í burt blóðgunarkör i
sem notast hefur verið við t
hingað til. Þá var fiskmóttak- \
an í skipinu stækkuð nokkuð e
en um leið skipt í tvennt \
þannig að nú verður auðveld- 1
ara en áður að fiskinum s
aðskildum, þ.e. misgömlum
fiski. Þá var sett í skipið i
slægingarvél fyrir þorsk og f
ufsa. s
Aðalástæðu þess að farið t
var út í það að lengja skipið i
sagði Guðbjartur vera þá j:
breytingu sem varð er horfið t
var frá því að nota hina }
hefðbundnu kassa en kör e
tekin upp í staðinn. Sagði s
hann að minna magn af fiski j
hefði komist í skipið eftir að {
körin voru tekin upp og væri 1
með þessu verið að koma til i
móts við það. Þessi mikla i
stækkun á skipinu þýðir ekki 1
að fjölga þurfi í áhöfn þess, í
það verða 15 menn á skipinu
eftir sem áður. Þá er ekki
reiknað með því að farið
verði í lengri túra. Það má því
segja að með þessari breyt-
ingu sé verið að stuðla að
betri meðferð á fiskinum sem
væntanlega skilar hærra hrá-
efnisverði, og langt um betri
vinnuaðstöðu því allar kassa-
lyftingar eiga nú að vera úr
sögunni.
Hrönn hf. gerir Guðbjörg-
ina út. Þorleifur Pálsson,
framkvæmdastjóri Hrannar,
sagði kostnaðinn við breyti-
ngarnar á skipinu vera á bil-
inu 50 til 60 milljónir. Tilboð
það sem Sichau verksmiðj-
urnar gerðu og Hrönn hf. tók
hljóðai upp á um 50 milljónir
en vegna ýmissa aukaverka
sem ekki voru fyrirséð má
gera ráð fyrir nokkuð meiri
kostnaði en tilboðið gerði ráð
fyrir. Eins og segir í upphafi
kom skipið til heimahafnar sl.
miðvikudagskvöld og sólar-
hring síðar var haldið á veið-
ar.
HEMPELS
Guðbjörg ÍS er máluð
með Hempel’s skipamálningu.
Hempel’s gæði og þjónusta
um allan heim.
VELKOMIN HEIM GUÐBJÖRG!