Bæjarins besta - 17.08.1988, Side 4
4
BÆJARINS BESTA
BÆJARINS BESTA, óháð vikublað á Vest-
fjörðum. Útgefandi: H-PRENT sf, Suðurtanga
2, 400 ísafjörður, S 4560. Ritstjórar og
ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og
Halldór Sveinbjörnsson. Blaðamaður: Vigdís
Jakobsdóttir. Útgáfudagur: Miðvikudagur. Rit-
stjórnarskrifstofa og auglýsingamóttaka að
Suðurtanga 2, S 4570 og er svarað allan sólar-
hringinn.
Setning, umbrotog prentun: H-prentsf, Suður-
tanga 2, 400 ísafjörður.
RITSTJÓRN
DANÍEL
Frá árdögum sjósóknar og siglinga við strendur landsins hafa
sjóslysin vofað yíir sæfarendum. Ótaldar eru fórnirnar, sem
Ægir konungur hefur krafist og lítið lát virðist á. Tilraunir
mannsins til að standast ægiátök hafsins með stærri skipum og
betri búnaði hafa vissulega skilað árangri. Endanlegur sigur
vinnst trúlega aldrei, því miður.
Samtök um slysavarnir og björgun úr sjávarháska hafa lyft
Grettistaki. Um það bera gleggst vitni ótrúleg afrek unnin við
verstu hugsanleg skilyrði. Sífellt bæta björgunarsveitir búnað
sinn og tæki, með hverju ári auka björgunarsveitarmenn sjóð
þekkingar og reynslu.
Björgunarskipið Daníel Sigmundsson er stórhuga skref í
slysavörnum á sjó við Vestfirði. Hér gerast vetrarveður hin
verstu og óvíða skella þau á með minni fyrirvara. Við slíkar
kringumstæður getur velbúinn og hraðskreiður björgunarbátur
skipt sköpum. Þökk sé öllum þeim er gerðu drauminn að veru-
leika.
Gömul eru þau sannindi, að erfiðara sé að gæta fengins fjár en
afla þess. Þetta á víða við. Fjölmörg eru dæmin þar sem samtök
áhugamanna hafa ýtt þjóðþrifamálum úr vör og jafnvel skilað
fullbúnum mannvirkjum og tækjum. Oftar en ekki hefur síðan
seinni þátturinn, rekstrarkostnaður, lent á opinberum aðilum,
nauðugum viljugum.
Kaupin á björgunarskipinu hafa síður en svo verið fjármögn-
uð að öllu. Aðstandenda bíður ærið verkefni. En kaupin ein
nægja ekki. Reksturinn verður að tryggja. En hvernig? Hvernig
er hægt að tryggja fastan tekjustofn?
BB setur fram hugmynd, sem vonandi er skoðunar virði.
Björgunarskipinu verði tryggður tekjustofn tengdur lönduðu
aflamagni sjávarafurða á því svæði, sem skipinu er ætlað að
þjóna. Blaðið hefur ekki undir höndum rekstraráætlun skipsins,
en sé litið á aflamagn undanfarinna ára má ætla, að aukagreiðsla
kaupenda, og að sama skapi eftirgjöf seljenda og sjómanna, af
aflaverðmæti, verði af þeirri stærðargráðu á hvern og einn, að
ekki skipti máli varðandi afkomu.
Rekstur björgunarskipsins Daníels Sigmundssonar skiptir
aftur á móti miklu, ekki einungis greinda aðila, heldur sérhvern
íbúa sjávarplássanna á Vestfjörðum.
s.h.
Patreksfjörður:
T eikníngar til af við-
byggingn sjúkrahúss
- von á aukinni þjónustu við aldraða
Á Patreksfirði eru uppi áform
um að byggja sjúkra- og dvalar-
heimili fyrir aldraða.
Byggingin yrði byggð við nú-
verandi sjúkrahús staðarins, og
tengt beint við það. Þar fengju
þeir sem alls ekki geta séð um
sig sjálfir, góða umönnun, og
aðrir aldraðir væru undir stöð-
ugu eftirliti og í umsjón fagfólks.
í húsinu verða bæði íbúðir og
sjúkrastofur.
Teikningar eru að mestu leyti
tilbúnar, og hugsanlega verða
einhverjar framkvæmdir hafnar í
haust.
Á Patreksfirði njóta heitu pottarnir jafn mikilla vinsælda og á
ísafirði.
Patreksfjörður:
Heitu pottarnir vinsælir
Á síðasta ári voru settir upp
heitir pottar við sundlaugina á
Patreksfirði. Það gladdi að von-
um heimamenn, og þeir sem
þekkja þar til, segja að aðsóknin
í laugina hafi stóraukist, jafnvel
margfaldast frá því þeir voru
settir upp.
Sundlaugin er aðeins opin að
sumrinu til, og nýtist því ekki til
kennslu í grunnskólanum þar.
Bolungarvík:
Nýtt götunafn
- Grænahlíð
Á fundi byggingarnefndar I Hjallastræti. Héðan í frá skal
Bolungarvíkurkaupstaðar 21. hún ganga undir nafninu Græna-
júlí sl. var m.a. sammþykkt nýtt hlíð. Þetta mun vera önnur hlíð-
götuheiti á áður óskírðri götu frá I in í Víkinni. Fyrir var Stigahlíð.