Bæjarins besta - 17.08.1988, Blaðsíða 14
14
BÆJARINS BESTA
Björgunarbáturinn Daníel Sigmundsson:
Fjáröflun fyrir
rekstri hafin
- áhafnir skipa leggja sitt af mörkum
Það er álit margra, að með
kaupum á hinum nýja björgun-
arbát björgunarsveita ísafjarðar
og Hnífsdals, sé verið að ráðast í
of mikið. Þó takist að skrapa
saman fyrir kaupverðinu, er það
álit margra, að ekki fáist fjár-
magn til þess að halda uppi
rekstri bátsins.
Björgunarsveitarmenn eru
hins vegar bjartsýnir, og leita nú
leiða til þess að ráða bót á þess-
um væntanlega vanda.
Einni fjáröflunarhugmynd
hafa þeir nú hrint í framkvæmd.
Þeir hafa leitað til áhafna skipa
og útgerðarfélaga um að veita í
rekstur bátsins, sem nemur
þeirra hluta í andvirði innihalds
eins gáms sem fluttur er út.
Að sögn björgunarsveitar-
manna, hafa flestir tekið vel í
þetta, og áhöfn eins skipsins;
Júlíusar Geirmundssonar, eru
þegar búnir að gefa vilyrði fyrir
sínum hlut í einum gám, og eftir
því sem BB kemst næst, er hann
á leiðinni í sölu.
Blaðamanni tókst ekki að ná í
forstöðumenn Gunnvarar, út-
gerð Júlíusar, til þess að inna þá
eftir því hvort þeir myndu gefa
sinn hlut líka.
BB hvetur áhafnir og útgerð-
arfélög til þess að taka áhöfn Júl-
íusar Geirmundssonar til fyrir-
myndar, styrkja björgunar-
sveitirnar og renna um leið
styrkari stoðum undir rekstur
hins nýja björgunarbáts.
5:í '
i ' í,'N*SS8Í«Si"
Áhöfnin á Júlíusi Geirmundssyni hefur gefið sinn hlut í einum
gámi, sem er á leið í sölu.
Lesendur:
Bréf til
Kæru vinir.
Þakka ykkur fyrir að taka tíma
til að lesa þetta bréf. Ég hef
skrifað þér það, því ég trúi að
Minnisvarði
umRagnarH.Ragnar
Þeim, sem vilja taka þátt í að gefa ísa-
fjarðarbæ listaverk eftir Jón Sigurpáls-
son til minningar um Ragnar H. Ragnar,
gefst enn kostur á að leggja framlag sitt
inn á ávísanareikning nr. 10197 við Út-
vegsbanka íslands h.f. á ísafirði.
Minnisvarðinn verður afhjúpaður hinn
28. september næstkomandi, en þáhefði
Ragnar H. Ragnar orðið níræður.
Fiamkvæm dan efn d.
innihald þess sé mikilvægt.
Fyrst vil ég þó kynna mig. Ég
heiti Tony Fitzgerald, ég er
Ástrali, búsettur í Englandi og
hef oftsinnis heimsótt land ykkar
síðan 1976.
Sum ykkar þekkja mig vel,
önnur hafa heyrt mig eða séð og
sum ykkar hafa enga hugmynd
um hver ég er. Ég er kristinn og
íslenska þjóðin á sérstakan sess í
hjarta mínu. Vegna þess hef ég
beðið mikið fyrir landinu og
skrifa ykkur nú bréf í framhaldi
af því.
I heimsóknum mínum til ís-
lands, hef ég talað á mörgum
samkomum og séð Guðs kraft
snerta líf margra, á sama tíma
verð ég var við vaxandi hungur
eftir Guðs sannleika.
Við athugun á sögu þjóðarinn-
ar, sem er bæði rík og hcillandi,
get ég þó séð grundvallarhluti
sem hafa hindrað að allt Guðs
ráð fengi að opinberast. Ég bið
þig að lesa áframhaldið með
opnu hjarta.
Biblían kennir okkur, að það
sem við sáum, munum við upp-
skera. Ég trúi því að við fæðingu
kristinnar hér á landi hafi verið
sáð hlutum sem í dag gefa upp-
skeru í samræmi við þá sáningu.
Uppskeran er kristnidómur sem
hefur á sér yfirskin guðhræðsl-
unnar en afneitar krafti hennar