Bæjarins besta - 17.08.1988, Blaðsíða 8
8
Skemmtanalíf Vestfirðinga:
BÆJARINS BESTA
Golf:
HJÓLBARÐAVERKSTÆÐI
ÍSAFJARÐAR
BÍLALEIGA
NJARÐARSUNDI2 400 ÍSAFJÖRÐUR
JÓNAS BJÖRNSSON
0 94-3501
HEIMA 94-3482
ísfirðingar
sigruðu
í bæjar-
keppninni
Síðastliðinn laugardag fór
fram á Tungudalsvelli bæjar-
keppni í golfi á milli ísfirð-
inga og Bolvíkinga. Pað er
skemmst frá því að segja að
ísfirðingar sigruðu með yfir-
burðum, enda gekk Bolvík-
ingum illa að manna sitt lið. í
sigursveit ísfirðinga voru
þeir, Viðar Konráðsson,
Samúel Einarsson, Pétur
Grétarsson, Arnar G. Hin-
riksson, Sigurður Th. Ingv-
arsson og Reynir Pétursson.
Á laugardaginn fór einnig
fram fyrsti hluti firmakeppni
Golfklúbbs ísafjarðar sem
fram haldið verður n.k.
fimmtudag, en sjálf úrslita-
keppnin verður leikin laugar-
daginn 28. ágúst. Á laugar-
dag hefst síðan Vestfjarða-
mótið í golfi. Spilað verður
bæði á laugardag og sunnudag
og verða leiknar 36 holur.
Vestfjarðamótið hefst kl. 10.
„Vísir að því að auka
menningarlíf bæjarins“
- sagði Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri í Bolungarvík
við formlega opnun Skálavíkur
Félagsheimili eru að verða til
trafala hjá ýmsum sveitarfélög-
um. Félög hafa ekki lengur vilja
eða getu til að reka þau, þannig
að í mörgum tilvikum hafa sveit-
arfélög neyðst til þess að reka
þau vísvitandi með tapi eða jafn-
vel selja þau til utanaðkomandi
aðila.
Það var eins komið fyrir Fé-
lagsheimilinu í Bolungarvík,
eins og svo mörgum öðrum, að
rekstur þess gekk illa, og húsið
sjálft var orðið illa farið.
Pað var í vor, sem bæjarstjórn
Bolungarvíkur, veitti fé í það að
gera húsið upp að innan og utan,
og breyta því um leið í veitinga-
og skemmtistað.
Framkvæmdastjóri félags-
heimilisins var ráðinn Ólafur J.
Einarsson.
Á fundi bæjarráðs Bolungar-
víkur, 20. júlí sl. var samþykkt
að stofnað yrði félag um rekstur
í Félagsheimilinu. Bæjarstjóra
var falið að gera uppkast að
stofnsamningi og samþykkt var
að félagið skyldi heita Skálavík.
Það er einmitt nafnið á veitinga-
og skemmtistaðnum sem nú er
rekinn í hrsinu.
Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri í Bolungarvík og Ólafur J. Einars-
son framkvæmdastjóri í Skálavík. Þeir höfðu á orði að nýi
skemmtistaðurinn hefði nú eiginlega átt að heita Ólafsvík.
MÁNAFOSS
fkðitvisvpr í viku
Skálavík var opnuð formlega
sl. laugardag, með pompi og
prakt. f lokuðu hanastéisboði
sem haldið var áður en fyrstu
gestunum var hleypt inn, tók
Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri,
til máls. Hann þakkaði þeim sem
unnið höfðu að því að gera húsið
upp, iðnaðarmönnum og öðrum,
og fór nokkrum orðum um fram-
kvæmdirnar. Pá bauð hann
nafna sinn, Ólaf J. Einarsson
velkominn til starfa.
Ólafur sagði enn fremur að
breytingarnar sem gerðar hefðu
verið væru; „vísir að því að auka
menningarlíf bæjarins”.
Það var ekki annað að heyra á gestum en að þeir væru ánægðir
með breytingarnar