Bæjarins besta


Bæjarins besta - 17.08.1988, Side 5

Bæjarins besta - 17.08.1988, Side 5
BÆJARINS BESTA 5 Bolungarvík: - bæjarráð telur að stórefla þurfí löggæslu innan marka bæjarins Á fundi umferðarnefndar Bol- ungarvíkur í lok júní sl. var lagt fram bréf frá 57 íbúum við Völu- steinsstræti dagsett 24. júní sl. Sökum þess hversu fáir nefnd- armenn gátu mætt á þennan fund, var bréfinu vísað beint til fundar bæjarráðs, sem í sumar- leyfi bæjarstjórnar fór með ákvörðunarrétt. Á bæjarráðsfundi, fjórum dögum síðar, var bréfið tekið fyrir, og var svofelld bókun gerð: „Bæjarráð tekur undir þau sjónarmið, að stórefla þurfi lög- gæslu innan marka bæjarins. Koma þarf í veg fyrir gáleysis- legan akstur fárra einstaklinga með virkum aðgerðum svo sem hraðamælingum og yfirheyrsl- Bæjarráð skorar á bæjarfógeta að beita sér af alefli til aðgerða er leiða til aukins öryggis íbúa bæjarins í umferðinni.“ Bæjarráð Bolungarvíkur skorar á bæjarfógeta að efla löggæslu í bænum. Patreksfjörður Unnið að hafnar- málum Smábátaútgerð á Patreksfirði er blómleg, eins og annars staðar á Vestfjörðum. Alls eru gerðir þaðan út um fimm- tíu smábátar. Það hefur þó ekki gengið eins vel hjá þeim og skyldi undanfarið. í júní var gæftarleysi og júlí reyndist ekki eins og best verður á kos- ið heldur. Menn eru hins vegar bjart- sýnir á Patreksfirði, og eru hvorki að kvarta né kveina. Þó nokkuð hefur verið unn- ið í hafnarmálum þar í sumar. Par ber hæst frágangur á við- leguköntum og vinna við upp- setningu á öryggisbúnaði við höfnina. ísafjarðardjúp: Tillaga um sameiningu hreppanna felld Sl. laugardag kusu íbúar fjög- urra hreppa við ísafjarðardjúp um hvort sameina ætti hreppina í einn. Það eru íbúar Ögurhrepps, Snæfjallahrepps, Nauteyrar- hrepps og Reykjafjarðarhrepps. Átkvæði féllu þannig: í Ögur- hreppi eru 32 á kjörskrá. Tveir voru með sameiningu en 21 á móti. Tveir seðlar voru auðir. í Reykjafjarðarhreppi eru 43 á kjörskrá. 11 voru með en 19 á móti. í Nauteyrarhreppi eru 46 menn með atkvæðisrétt. Þar af voru 14 fylgjandi sameiningu hreppanna en 23 á móti. í Snæfjallahreppi eru 17 á kjör- skrá. Þar voru 9 með sameining- unni en 3 á móti. Alls voru 138 manns á kjör- skrá í hreppunum fjórum. 36 voru á móti sameiningu hrepp- anna fjögurra en 66 voru á móti henni. Tveir seðlar voru auðir. FJORÐUNGSSJUKRAHUSIÐ A ISAFIRÐI Húsnæði óskast Óskum að taka á leigu, tveggja til þriggja herbergja íbúð strax, fyrir starfsmenn. Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma 4500 alla virka daga frá kl. 8 til 16. ísafjarðarkaupstaður Leikskólar - dagheimili Starfsfólk óskast í eftirtaldar stöður: Eyrarskjól: 67% staða á leikskóla, eftir hádegi, nú þegar. 50% staða á leikskóla, eftir hádegi, frá 1. september. Bakkaskjól: Tvær stöður fyrir hádegi. Hlíðarskjól: 50% staða eftir hádegi. Upplýsingar veita forstöðumenn, og félagsmálast jóri. Félagsmálastjóri. íbúð óskast Óskum eftir að taka á leigu fjögurra herbergja íbúð fyrir starfsmann. Upplýsingar gefnar á tæknideild.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.