Bæjarins besta


Bæjarins besta - 17.08.1988, Síða 10

Bæjarins besta - 17.08.1988, Síða 10
10 BÆJARINS BESTA Föstudaginn 29. júlí sl. birtist sérlega athyglisvert viðtal á bls. 20 í síðdegisblaðinu DV. Par er rætt við Jóhann Júlíusson og Margréti Leósdóttur í Skóverslun Leós á ísafirði. Jóhann og Margrét komust vel frá sínu, eins og við var að búast. Blaðamaðurinn (konan), sem kallar sig „stúlkuna af steyp- unni“, hafði séð gúmmískó aug- lýsta í glugganum, farið inn og spurt „hvort gúmmískórnir væru virkilega til sölu ennþá“. Og stúlkan af steypunni fléttar ýmsu inn í viðtalið, sem telja verður ærið forvitnilegt. Og dregur auk þess ályktanir af stakri snilld. Lítum á dæmi: „Eins og fyrr segir varð þar fyr- ir svörum eldhress karl, Jóhann Júlíusson, sem sagði að gúmmí- skórnir væru alltaf vinsælir þarna fyrir vestan og var fremur hissa á þessari spurningu. „Hvaðan ert þú eiginlega ?“ hefur hann líklega hugsað (ályktun 1). Borgarbarninu var brugðið því „svörtu tútturnar“ voru bara til í fjarlægum bernskuminningum og þóttu ekkert sérlega sniðugar - öllu heldur fremur hallærislegar. En börn og unglingar á ísafirði og eflaust á öðrum stöðum landsins geta vart hugsað sér lífið án gúmmítúttnanna. (ályktun 2). Þama birtist bilið milli lands- byggðarinnar og höfuðborgar- innar í enn einni myndinni. “ Já. Þar höfum við það. Börn og unglingar á landsbyggðinni eru hallærið gúmmíklætt. Bilið á milli dreifðra og þéttra birtist í ótelj- andi myndum. Reykjavík skal vera fyrirmyndin, þar er allt svo töff-engirgúmmískór. Við Vest- firðingar erum óttalega hallæris- legir og getum ekki hugsað okkur lífið án gúmmítúttna. Á Patreksfirði eru menn í óða önn við að byggja grunnskóla. Nýja húsið er viðbygging við gamla skólann, ef viðbyggingu skal kalla, því hún ku vera meira en helmingi stærri en sjálfur skólinn. Á þessu ári verður gengið frá þaki, gluggar glerjaðir og húsið málað. Að auki verður lóðin í kringum skólann grófjöfnuð. f nýja hlutanum eru fleiri Og steypustúlkan á Dje-Vaff- inu þurfti ekki annað en að reka nefið inn í eina skóbúð til að sjá þetta. Það væri forvitnilegt að fá að vita hvaða ályktun hún hefði dregið af heimsókn í raftækja- verslun. Eða bókabúð. Svo ekki sé nú talað um apótek, það fást jú gúmmítúttur þar líka. kennslustofur en nú er, en auk þess er gert ráð fyrir kennslu- rými fyrir framhaldsnám, skóla- bókasafni ofl. Það hafa ekki verið gerðar neinar fastákveðnar áætlanir sem kveða á um hvenær skólinn verður tekinn í notkun, en að sögn sveitarstjóra Patreks- hrepps, Úlfars B. Thoroddsen, verður það væntanlega gert þeg- ar frágangi utanhúss er lokið. Úlfar kvað kennaramál á Pat- reksfirði standa all bærilega þetta árið. Það hefur reyndar ekki tekist að ráða í allar stöður enn, en við skólann hefur haldist viss kjarni réttindakennara und- anfarið, sem verður að teljast nokkuð gott hjá ekki stærri skóla úti á landi. Það eru hins vegar leiðbeinendurnir sem koma og fara. Skólabygging á Patreksfirði: Kláruð að utan í sumar UPPSAtlR / HJARTA BÆJARINS FÖSTUDAGSKVÖLD Herbert Guömundsson og hljómsveitin KAN á fullri ferð í Sjallanum föstudagskvöld kl. 23-3. ATH! Aldurstakmark 16 ár. LAUGARDAGSKVÖLD Dansleikur. Herbert Guðmundsson og hljómsveitin KAN. Aldurstakmark 18 ár. *K ■ ■ ; ■' TM , ; V , MUNIÐ NAFNSKÍRTEININ

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.