Bæjarins besta


Bæjarins besta - 17.08.1988, Qupperneq 11

Bæjarins besta - 17.08.1988, Qupperneq 11
BÆJARINS BESTA 11 Knattspyrna, 4.deild: BI88 í úrslit með fullt hús stiga - leika gegn Skotfélagi Reykja- yíkur og Hveragerði í úrslitariðli Keppni í Vestfjarðariðli í 4. deild íslandsmótsins í knatt- spyrunu er nú lokið. BÍ 88 frá ísa- firði sigraði með yfirburðum. Liðið vann alla sína leiki, og heldur því áfram með fullt hús stiga. Alls var keppt í fimm riðlum yfir landið. Þegar kemur að úr- slitum skiptist þetta svo í tvo riðla. Norður- og austurland keppa saman í riðli, og suður- og vesturland keppa saman. Þau lið sem sigra í þessum tveimur riðl- um, fara bæði upp í 3. deild, en til þess að fá úr því skorið hver er Islandsmeistari 4. deildarinn- ar árið 1988, verður leikinn úr- slitaleikur 11. septembern.k. ísfirðingar keppa við Skotfé- iagið frá Reykjavík og lið Hveragerðis í úrslitunum. Fyrsti leikurinn er næstkomandi laug- ardag. Þá keppir BÍ 88 við sigur- liðið í Reykjavíkurriðlinum, Skotfélagið, í Reykjavík. Næsti leikur verður svo viku seinna á Torfnesvelli við Hver- gerðinga. 3. september keppa okkar menn við Skotfélagið aftur, en þá á heimavelli. Þrem dögum seinna, 6. september, keppa þeir við Hvergerðinga á útivelli. Fyrr í sumar kepptu ísfirðing- ar við lið Hveragerðis í Bikar- móti íslands, og unnu þá 3-1. Það er víst, að keppnin verður þetta ^ Og nú er bara að vinna riðilinn og komast upp í 3. deild. Verslun á ísafirði: Krisma stækkar við sig Eigendur verlunarinnar Krismu, sem er til húsa í verslunarmið- stöðinni Ljóninu á ísafirði, hafa nýlega stækkað við sig. Búðin er nú helmingi stærri en hún var áður. Aðsögneigendanna,þeirra Svanlaugar Guðnadóttur og Ólafar Veturliðadóttur, veitti ekki af, því það var orðið ansi þröngt fyrir stækkun. Nú gefst viðskiptavinum hins vegar kostur á að skoða snyrtivörur, sokk- abuxur, náttföt, skartgripi og annað sem þær versla með, í mun rýmra húsnæði og aðgengilegra. Þær stöllur kváðu í raun enga breytingu hafa verið gerða. Að- eins þá að húsnæðið var stækk- að. Eigendur Krismu, Svanlaug Guðnadóttir og Ólöf Vetuliðadóttir, í nýja hluta verslunarinnar. Verslaðu í Vöruvali, þar sem gæði og lágt verð eru ofaröllu. OPIÐ: Mánudaga-fimmtudaga kl. 9-18 Föstudaga kl. 9-20. Laugardaga kl. 10-13 VÖRUVAL LJÓNINU SKEIÐI — SÍMI4211 BÚÐ SEM STENDUR UNDIR NAFNI

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.