Morgunblaðið - 08.09.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 2020
FRAMKVÆMDIR?
Við leigjum út krókgáma
til lengri eða skemmri tíma
HAFÐU SAMBAND:
sími: 577 5757
www.gamafelagid.is Hugsum áður en við hendum!
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Störfum í ferðaþjónustu fjölgaði um
634% í Mýrdalshreppi á tíu ára
tímabili, frá 2009 til 2019. Nú er
rúmlega helmingur allra starfa í
sveitarfélaginu við ferðaþjónustu en
var um 15% fyrir tíu árum. Sömu
sögu er að segja um Skaftárhrepp,
þar er rúmur helmingur starfa við
ferðaþjónustu. Erlendir ríkisborg-
arar eru í tæplega helmingi starfa
við ferðaþjónustu á Suðurlandi.
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga
hafa látið taka saman greiningu um
stöðu og þróun atvinnulífs á Suður-
landi með sérstakri áherslu á ferða-
þjónustuna. Upplýsingarnar eru
sundurliðaðar niður á sveitarfélög.
Ferðaþjónustan hefur lengi verið
mikilvæg atvinnugrein á Suðurlandi
og hefur vægi hennar aukist með
fjölgun ferðamanna á undanförnum
árum.
Þannig hefur störfum í greininni
fjölgað um 1.937 á tímabilinu 2012
til 2019 og er það 55% af fjölgun
starfa á Suðurlandi á þessu tímabili.
Miðað er við aðalstörf. Mest var
fjölgunin í Mýrdalshreppi, eins og
fram kemur hér að framan, en einn-
ig hefur orðið mikil fjölgun í Blá-
skógabyggð, Sveitarfélaginu Horna-
firði og Grímsnes- og Grafnings-
hreppi.
Ferðaþjónustan hefur mest vægi í
Mýrdalshreppi og Skaftárhreppi,
þar sem störf við ferðaþjónustu
voru á árinu 2019 meira en helm-
ingur allra starfa. Til samanburðar
má geta þess að ferðaþjónustan stóð
undir 15% starfa í Mýrdal tíu árum
áður. Vægi ferðaþjónustunnar er
einnig mikið í Bláskógabyggð og
Hornafirði, þar sem yfir þriðjungur
starfa er við þessa grein.
Ferðaþjónustan skapar tæplega
19% starfa á Suðurlandi.
Laun í ferðaþjónustu á Suður-
landi eru 15% lægri en meðallaun í
fjórðungnum. Meðallaun fyrir allar
atvinnugreinar voru 498 þúsund á
mánuði en 423 þúsund í ferðaþjón-
ustu.
1.517 erlendir ríkisborgarar störf-
uðu í ferðaþjónustunni sem er tæp-
lega 49% af starfskrafti í atvinnu-
greininni á Suðurlandi.
Spurður hvort samhengi sé á milli
fjölda erlendra starfsmanna í ferða-
þjónustunni og lágra launa segir
Þórður Freyr Sigurðsson, sviðs-
stjóri þróunarsviðs SASS, að svo
þurfi ekki að vera. Skýra megi lægri
laun með því að í ferðaþjónustunni
séu mörg þjónustustörf sem ekki
kalli á sérmenntun. Þá megi skýra
hátt hlutfall erlendra starfsmanna
með því að ferðaþjónustan sé vaxt-
argrein og hafi þurft á erlendu
vinnuafli að halda.
Ferðaþjónustan á Suðurlandi*
Meðallaun á Suðurlandi 2019
Þús. kr. á mánuði
Ársverk í ferðaþjónustu 2019 Íslenskir ríkisborgarar
1.607 ársverk, 51%
Erlendir ríkisborgarar
1.517 ársverk, 49%
Heimild: Skýrsla SASS
Árnessýsla, Rangárvallasýsla, Vestmannaeyjar, Vestur- og Austur-Skaftafellssýsla
Suðurland 498
562
513
428
427
426
425
423
Vestmannaeyjar
Þús. kr. á mánuði
Meðallaun í ferðaþjónustu
á Suðurlandi 2019
Fjölgun starfa í ferðaþjónustu (aðalstarf) 2009-2019
800%
600%
400%
200%
0%
Mýrdalshreppur Bláskógabyggð Hornafjörður Grímsnes- og
Grafningshreppur
634%
476% 455% 444%
Vægi ferða þjónustu, fjöldi aðalstarfa 2019
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Mýrdals-
hreppur
Skaftár-
hreppur
Bláskóga-
byggð
Hornafjörður Rangárþing
eystra
Grímsnes-
og Grafnings-
hreppur
52% 51%
38% 36%
22% 20%
Suðurland, 18%
Suðurland, 423
Vestmannaeyjar
Rangárþing eystra
Hornafjörður
Mýrdalshreppur
Hrunamannahreppur
Bláskógabyggð
49%
51%
Margir starfs-
menn erlendir
Starfsfólki í ferðaþjónustu í Mýr-
dalshreppi hefur fjölgað um 634%