Morgunblaðið - 08.09.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.09.2020, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 2020 Lengjudeild karla Grindavík – ÍBV ....................................... 1:1 Þór – Keflavík ........................................... 1:3 Staðan: Fram 14 9 4 1 33:19 31 Keflavík 13 8 3 2 41:20 27 Leiknir R. 14 8 2 4 33:19 26 ÍBV 14 6 7 1 25:16 25 Grindavík 13 5 6 2 27:23 21 Þór 14 6 2 6 26:25 20 Vestri 14 5 4 5 19:20 19 Afturelding 14 4 3 7 28:23 15 Víkingur Ó. 14 4 3 7 19:32 15 Þróttur R. 14 3 2 9 11:27 11 Leiknir F. 14 3 2 9 15:32 11 Magni 14 2 2 10 15:36 8 3. deild karla KFG – Augnablik ..................................... 1:0 Elliði – Ægir ............................................. 1:0 Staðan: KV 14 10 1 3 38:20 31 Reynir S. 14 9 2 3 41:25 29 Augnablik 14 6 4 4 30:26 22 KFG 14 6 4 4 28:24 22 Tindastóll 14 5 5 4 25:29 20 Sindri 14 5 4 5 27:32 19 Vængir Júpiters 14 5 3 6 21:23 18 Elliði 14 5 2 7 25:28 17 Ægir 14 4 4 6 22:27 16 Höttur/Huginn 14 4 3 7 22:24 15 Einherji 14 4 2 8 23:36 14 Álftanes 14 2 4 8 23:31 10 Lengjudeild kvenna Víkingur R. – Haukar .............................. 2:0 Staðan: Tindastóll 12 10 1 1 34:5 31 Keflavík 12 8 3 1 32:12 27 Haukar 11 6 2 3 18:11 20 Grótta 12 5 4 3 15:16 19 Afturelding 11 5 3 3 15:13 18 Víkingur R. 12 3 3 6 15:22 12 Augnablik 11 3 3 5 15:25 12 ÍA 11 1 6 4 16:19 9 Fjölnir 12 2 1 9 7:24 7 Völsungur 10 1 0 9 5:25 3 2. deild kvenna HK – Álftanes ........................................... 3:2 Staðan: HK 12 10 0 2 42:7 30 Grindavík 10 6 2 2 23:10 20 Fjarð/Hött/Leikn. 11 6 2 3 24:19 20 Hamrarnir 12 5 3 4 18:17 18 Álftanes 9 4 1 4 16:25 13 ÍR 12 2 4 6 23:29 10 Sindri 11 3 1 7 16:25 10 Hamar 10 3 1 6 14:27 10 Fram 11 1 4 6 20:37 7 Þjóðadeild UEFA A-deild, 1. riðill: Bosnía – Pólland ....................................... 1:2 Holland – Ítalía......................................... 0:1  Ítalía 4 stig, Holland 3, Pólland 3, Bosnía 1. B-deild, 1. riðill: Austurríki – Rúmenía .............................. 2:3 Norður-Írland – Noregur........................ 1:5  Rúmenía 4 stig, Austurríki 3, Noregur 3, N-Írland 1. B-deild, 2. riðill: Tékkland – Skotland ................................ 1:2 Ísrael – Slóvakía ....................................... 1:1  Skotland 4 stig, Tékkland 3, Ísrael 2, Sló- vakía 1. C-deild, 4. riðill: Kasakstan – Hvíta-Rússland .................. 1:2 Albanía – Litháen..................................... 0:1  Kasakstan 3 stig, Albanía 3, Hvíta-Rúss- land 3, Litháen 3. Bandaríkin DC United – New York City................... 0:0  Guðmundur Þórarinsson kom inn á hjá New York City á 77. mínútu. Lið hans er með 13 stig eftir 10 leiki og er í sjöunda sæti af fjórtán liðum í austurdeild MLS- deildarinnar.  Danmörk Lemvig – Aalborg................................ 22:30  Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal- borg. Kolding – Ribe-Esbjerg ...................... 35:33  Ágúst Elí Björgvinsson varði sjö skot í marki liðsins.  Rúnar Kárason skoraði níu mörk fyrir Ribe-Esbjerg, Daníel Þór Ingason og Gunnar Steinn Jónsson skoruðu ekki. Aarhus United – Silkeborg-Voel....... 20:20  Thea Imani Sturludóttir skoraði ekki fyrir Aarhus United.   Úrslitakeppni NBA Vesturdeild, undanúrslit: LA Lakers – Houston ...................... 117:109  Staðan er 1:1. Austurdeild, undanúrslit: Miami – Milwaukee .................. (frl) 115:118  Staðan er 3:1 fyrir Miami.  Í nótt mættust Toronto og Boston í fimmta sinn og Denver og LA Clippers í þriðja sinn. Sjá mbl.is.   Phil Foden og Mason Greenwood, nýliðar í enska landsliðinu í knatt- spyrnu sem léku gegn Íslandi á laugardaginn, voru í gær sendir heim til Englands og fóru ekki með enska liðinu til Kaupmannahafnar þar sem það mætir Dönum í kvöld. Þeir brutu sóttvarnareglur með því að hitta tvær íslenskar stúlkur utan við sóttvarnasvæði liðsins á Hótel Sögu á sunnudaginn. Fyrir vikið fengu þeir sekt hjá íslenskum yfir- völdum, 250 þúsund krónur hvor, og þurftu að halda heimleiðis, hvor í sínu lagi. Nánar á mbl.is. Nýliðarnir voru reknir heim Morgunblaðið/Eggert Brot Phil Foden fór ekki eftir reglum og var sendur heim. Kristófer Acox, landsliðsmaður í körfuknattleik, hefur ákveðið að yfirgefa KR en hann greindi frá ákvörðun sinni á Instagram í gær. Í færslunni á Instagram í gær segir hann meðal annars að „ágreiningur er milli mín og KR sem ekki náðist að leysa“. Körfuknattleiksdeild KR ítrekaði í síðustu viku að Kristófer væri einn þeirra leikmanna sem væru samn- ingsbundnir félaginu. Í yfirlýsingu í gærkvöldi sögðu KR-ingar Krist- ófer hafa hafnað lausn í málinu sem hafi verið „mjög sanngjörn“. Kristófer Acox yfirgefur KR Morgunblaðið/Eggert Kraftur Kristófer Acox er þekktur fyrir kraftmiklar troðslur. 13. UMFERÐ Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Garðbæingurinn Shameeka Fishley fór mikinn fyrir Stjörnuna þegar lið- ið vann afar sterkan 3:2-útisigur gegn Selfossi í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni, á Jáverksvellinum á Selfossi í 13. um- ferð deildarinnar á sunnudaginn. Fishley, sem er 26 ára gömul, skoraði þriðja mark Stjörnunnar í leiknum ásamt því að leggja upp fyrstu tvö mörk Garðbæinga og kom hún því að öllum mörkum liðsins. Fishley gekk til liðs við Stjörnuna frá ítalska A-deildarfélaginu Sas- suolo fyrir sumarið 2019 en hún hef- ur einnig leikið með ÍBV og með Sindra í 1. deildinni hér á landi. „Þetta var virkilega mikilvægur sigur fyrir okkur gegn Selfossi og það sást í leikslok hversu miklu máli þetta skipti fyrir alla leikmenn liðs- ins,“ sagði Fishley í samtali við Morgunblaðið. „Það kom tímabil í sumar þar sem við vorum án sigurs í langan tíma en þetta hefur verið á uppleið hjá okkur að undanförnu og við erum hægt og bítandi að finna taktinn. Þessi sigur sýndi okkur líka að við getum svo sannarlega keppt við bestu lið deildarinnar. Það er sjálfstraust í liðinu þessa stundina sem er jákvætt en við ætl- um hins vegar ekki að fara fram úr okkur. Það eru tveir erfiðir leikir framundan gegn bestu liðum deild- arinnar, Breiðabliki og Val, og við gerum okkur grein fyrir því að það verður ekki auðvelt,“ sagði Fishley en hún á að baki 32 leiki í efstu deild þar sem hún hefur skorað 10 mörk. Sátt með sumarið Gengi Stjörnunnar í sumar hefur verið afar kaflaskipt en liðið er með 14 stig í sjötta sæti deildarinnar. „Ég held að við getum ekki verið neitt annað en sáttar með stöðu okk- ar í deildinni á þessum tímapunkti. Við höfum verið óheppnar með meiðsli, sérstaklega í byrjun tíma- bilsins, þar sem lykilmenn voru frá. Að sama skapi erum við með stóran leikmannahóp með marga unga og óreynda leikmenn. Þeir hafa allir fengið dýrmæta reynslu í sumar og mér finnst staða okkar í deildinni líka sýna það hversu mikill karakter er í hópnum. Þrátt fyrir allt eigum við góðan möguleika á því að enda í efri hluta deildarinnar.“ Stjarnan hefur þurft að treysta á unga og óreynda leikmenn í sumar sem hafa margir hverjir verið að stíga sín fyrstu skref í efstu deild. „Ég reyni alltaf að gefa mikið af mér, sama hvar ég spila. Að sama skapi er ég á meðal reynslumestu leikmanna Stjörnunnar í dag og mér finnst ég þess vegna þurfa að leggja mig enn meira fram en venjulega fyrir yngri leikmennina. Við höfum líka fengið inn reynslumikla leik- menn að undanförnu í Fríðu [Mál- fríði Ernu Sigurðardóttur] og Erin [McLeod] sem munu klárlega nýtast okkur. Persónulega þá vil ég alltaf gera betur inni á knattspyrnuvellinum og ég reyni eftir fremsta megni að bæta mig sem leikmaður á hverju einasta tímabili sem ég spila. Ég er búin að skora 5 mörk í sumar í níu leikjum og er á góðri leið með að bæta minn besta árangur hér á Ís- landi sem eru 6 mörk í 17 leikjum. Ég er á besta aldri og vonandi get ég haldið áfram á sömu braut í sum- ar.“ Líður vel á Íslandi Fishley, sem er frá Englandi, hef- ur leikið með bæði Hellas Verona og Sassuolo á Ítalíu en henni líður bet- ur á Íslandi. „Það er ekki mikill gæðamunur á íslensku og ítölsku deildinni. Leik- stíllinn er hins vegar öðruvísi á Ítal- íu en Íslandi og ég tel að íslenska deildin henti mér betur en sú ítalska. Fótboltinn hér á landi er mjög beinskeyttur og maður þarf að vera líkamlega sterkur. Ítalirnir ein- blína mikið á taktík og einstaklings- gæði og þótt mér hafi gengið vel á Ítalíu þá líður mér betur í íslensku úrvalsdeildinni. Eins líður mér hrikalega vel á Ís- landi og það hefur því alltaf verið mjög auðveld ákvörðun fyrir mig að koma aftur. Ég er fyrst og fremst þakklát fyrir að fá tækifæri til þess að spila á Íslandi,“ bætti Fishley við. Sigur sem sýnir að við getum keppt við bestu liðin  Shameeka Fishley kom að öllum mörkum Stjörnunnar í sigri gegn Selfossi Ljósmynd/Þórir Tryggvason Drjúg Shameeka Fishley hefur skorað í þremur leikjum í röð og á hér í höggi við Örnu Sif Ásgrímsdóttur í Þór/KA. FH-ingar eiga þrjá leikmenn í úrvalsliði Morgunblaðsins úr 13. umferð Pepsi Max-deildar kvenna í fótbolta en þessi líflega umferð var spiluð á sunnudaginn. FH, með Phoenetiu Browne fremsta í flokki, vann þá KR 4:2 í fjörugum botnslag í Kaplakrika. Browne hefur sett svip sinn á FH-liðið sem hefur unnið tvo leiki af fjór- um síðan hún kom og hún er í liði umferðarinnar í annað skipti. Sveindís Jane Jónsdóttir úr Breiðabliki er áfram efst í M-gjöfinni með 14 M samanlagt og samherji hennar Agla María Albertsdóttir er næst með 12 M. Elín Metta Jensen úr Val er með 11 M og með 10 eru þær Alexandra Jó- hannsdóttir úr Breiðabliki og Laura Hughes úr Þrótti. vs@mbl.is 13. umferð í Pepsi Max-deild kvenna 2020 3-4-3 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 Telma Ívarsdóttir FH Bryndís Arna Níelsdóttir Fylki Shameeka Fishley Stjörnunni Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir Val Alexandra Jóhannsdóttir Breiðabliki Betsy Hassett Stjörnunni Phoenetia Browne FH Andrea Mist Pálsdóttir FH Berglind Rós Ágústsdóttir Fylki Sveindís Jane Jónsdóttir Breiðabliki Hallbera Guðný Gísladóttir Val 2 5 2 2 3 3 3 4 Browne breytir liði FH-inga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.