Morgunblaðið - 08.09.2020, Side 20

Morgunblaðið - 08.09.2020, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 2020 ✝ Sigrún Jak-obsdóttir fædd- ist í Holti á Látra- strönd í Grýtu- bakkahreppi 28. maí 1934. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 1. sept- ember 2020. Foreldrar henn- ar voru Jakob Gunnlaugsson, f. 5. febrúar 1903, d. 6. desember 1992, og Klara Jó- hannsdóttir, f. 8. nóvember 1900, d. 30. september 1968. Systkini Sigrúnar: 1) Ingólfur Reynald Halldórsson, f. 22. febr- úar 1920, d. 24. maí 1991, þau voru sammæðra. 2) Sigríður Kristín, f. 5. október 1925, d. 28. apríl 2010. 3) Þóra, f. 26. júní 1927, d. 15. janúar 1931. 4) Elín ömmubörn Sigrúnar eru átján og langalangömmubörnin eru tvö. Sigrún og Benedikt slitu samvistum. Sigrún ólst upp í Holti á Látraströnd hjá foreldrum sín- um. Hún lauk skólagöngu sinni í Grenivíkurskóla. Eftir fermingu fór Sigrún að heiman og hóf að vinna fyrir sér, m.a. á bænum Hvammi og einnig á Akureyri. Sautján ára gömul flutti Sigrún til Reykjavíkur og vann þar við þjónustustörf uns hún kynntist verðandi eiginmanni sínum, Benedikt Björnssyni. Þau hófu búskap sinn á Öldugötu 25 í Hafnarfirði en byggðu síðan hús ásamt foreldum Sigrúnar á Móabarði 6 í Hafnarfirði. Eftir að Sigrún og Benedikt skildu bjó hún þar áfram ásamt for- eldrum sínum eða þar til hún flutti í Hátún 10 í Reykjavík. Þar bjó hún í 46 ár. Síðustu sex árin bjó Sigrún á Hrafnistu í Hafn- arfirði. Útför Sigrúnar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 8. september 2020, klukkan 13. Jóna, f. 2. apríl 1930, d. 11. janúar 1931. 5) Þóra Elín Jóna, f. 9. mars 1932. 6) Þórdís, f. 19. mars 1937,.7) Gunnlaug, f. 20. febrúar 1940. Sigrún giftist Benedikt Björns- syni 1. nóvember 1952. Þau eignuð- ust þrjú börn: 1) El- ín, f. 31. janúar 1953, gift Gylfa Ragnarssyni, börn þeirra eru Kolbrún, Birgir Örn og Íris Björk. 2) Björn, f. 3. september 1955, kvæntur Þórdísi Guð- mundsdóttur, börn þeirra eru Halldóra Kristín, Ingibjörg og Benedikta. 3) Guðbjörg, f. 19. júní 1957. Börn hennar eru María og Rakel Eyja. Lang- Elsku mamma. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Elín, Björn og Guðbjörg. Mín fyrsta minning af ömmu var þegar hún sendi okkur pakka til Spánar með kassettuspólu sem hún hafði talað inn á á sinn sér- staka og skemmtilega máta, orðin sem ég man eftir af spólunni voru „elsku hjartans Guðbjörg mín þetta er hún móðir þín“. Þegar ég var lítil stelpa vissi ég ekkert betra en að hafa ömmu Rúnu í heimsókn, en hún kom oft og iðulega til okkar og dvaldi hjá okkur í nokkra daga. Amma fyllti húsið af svo miklu hlýju og ást að það kostaði alltaf sáran grátur þegar hún fór aftur heim til baka. Amma bar alltaf hagsmuni annarra fyrir brjósti og hafði allt- af meiri áhyggjur af öllum öðrum en sjálfri sér og vildi allt fyrir alla gera. Kjarkur hennar og þraut- seigja var aðdáunarverð þrátt fyrir oft erfið veikindi. Börnin hennar og barnabörn voru henni allt. Amma bjó lengi vel í Hátúninu, þar sem hún hafði hreiðrað um sig á þann hátt sem henni einni var lagið. Íbúðin hennar var eins og lítið dúkkuhús, alltaf svo hreint og alltaf svo fallegt. Þar hafði amma búið sér til sinn eigin litla heim þar sem henni fannst best að fá að vera í örygginu sínu og hlusta á útvarpið sitt, en oftast þegar maður barði að dyrum mátti heyra tónlist í útvarpinu í gegnum dyrnar og ömmu syngja hástöfum með. Amma elskaði að syngja og var alveg með ólíkindum hversu vel hún mundi lög og vísur. Eitt sinn söng amma inn á símann hjá mér tvö barnalög, dansi dansi dúkkan mín og Stína og brúðan. Það er svo sem ekki í frásögur færandi nema bara fyrir það að þessi fal- legi söngur hennar inni á síman- um var það eina sem gat huggað tveggja mánaða gamlan drenginn minn hann Reyni Leo þegar hann glímdi við mikil grátköst vegna kveisu. Það brást ekki að söng- urinn hennar ömmu í símanum náði alltaf að hugga drenginn og snarþagnaði hann í hvert skipti við að heyra röddina hennar. Amma var alltaf svo vel tilhöfð þrátt fyrir að vera ein heima svo dögum skipti. Hún bar alltaf fal- legt skart og var ávalt fallega klædd þegar maður kom að heim- sækja hana. Hún var líka mikill húmoristi og elskaði að gantast og hlæja og eru ófáar stundirnar sem við höfum hlegið saman og fíflast. Þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn, Gabríelu, var eins og eitt- hvað gerðist innra með ömmu. Ástin á barninu var þvílík og varð eins og hálfgerður drifkraftur fyrir ömmu að halda áfram og vera til staðar fyrir hana. Amma dvaldi oft löngum stundum heima hjá okkur Gabríelu og má kannski segja að við þrjár höfum verið eins og lítil fjölskylda. Með ömmu og Gabríelu mynduðust sterk bönd sem erfitt er að útskýra, sem héldust fram til hennar síð- asta dags. Amma leit á Gabríelu nánast sem sitt eigið barn og veit ég hversu mikils virði það var henni að fá að eiga Gabríelu með mér eins og við orðuðum það stundum okkar á milli. Árin sem við vorum oft þrjár heima eru mér svo kær og minnisstæð og eins og í æsku minni fyllti amma húsið okkar af hlýju og kærleik og var alltaf erfitt þegar hún fór heim til baka. Við vissum þó að hún kæmi alltaf til okkar aftur. Það er því okkur afar erfitt og þungbært að kveðja hana í hinsta sinn. Missirinn er mikill og sár og erum við ömmu eilíflega þakklát- ar fyrir allt sem hún gerði fyrir okkur. Eins og segir í uppáhalds- laginu hennar ömmu Rúnu, Rós- inni: Eitt er það sem aldrei gleymist, aldrei, það er minning þín. (Guðmundur G. Halldórsson) Þín María. Meira: mbl.is/andlat. Við systur viljum minnast ömmu okkar með fáeinum orðum, ömmu Rúnu eins og hún var alltaf kölluð. Amma lést 86 ára að aldri á Landspítalanum aðfaranótt þriðjudagsins 1. september eftir stutt veikindi sem höfðu betur. Þrátt fyrir að amma hafi glímt við erfið veikindi frá unga aldri þá átti hún alltaf til fallegt bros og hlýju handa okkur börnunum og lumaði á Nóa Siríus-súkkulaði í veskinu til að gleðja okkur. Heim- sóknirnar á fallega heimilið henn- ar í Reykjavík voru ógleymanleg- ar fyrir okkur börnin því móttökurnar voru ávallt eins og von væri á konunglegum gestum, hún naut þess að dekra við okkur barnabörnin. Við minnumst þess sérstaklega hve barngóð hún var og stolt af sínu fólki. Amma fylgd- ist alltaf vel með börnunum sínum þremur og okkur öllum og hafði mikinn áhuga á því sem við tókum okkur fyrir hendur. Við fundum vel hversu stolt hún var af okkur öllum. Heimilið hennar var alltaf til fyrirmyndar, með eindæmum snyrtilegt og hver hlutur átti sinn stað. Amma hefur í gegnum tíðina verið dugleg að hringja í ættingja sína og systur til að halda tengsl- unum. Þótt okkur sem unglingum hafi oft þótt símtölin heldur löng þá eru þau okkur mjög dýrmæt minning. Það er alltaf sárt að kveðja ást- vini en við eigum minningar um ömmu Rúnu sem var okkur alltaf svo góð og munum njóta þeirra áfram og deila öllu því dýrmæta sem við lærðum af henni með okkar börnum. Elsku amma Rúna, lífið leggur fyrir okkur ým- is verkefni. Þú kenndir okkur margt um lífið og tilveruna og ef til vill meira en þig gæti órað fyr- ir, það verðum við ávallt þakklát- ar fyrir. Við viljum kveðja þig með orðum úr ljóði eftir Sigur- björn Þorkelsson: Þú verður tekinn í fang hinna himnesku hersveita sem færa þér frið sem þú skildir ekki áður, en upplifðir um stundarsakir, ár eftir ár, en færð nú að þreifa á og njóta um eilífð. Ástarkveðja Hvíldu í friði Halldóra (Dóra), Ingibjörg (Inga) og Benedikta (Benna). Elsku Rúna systir hefur kvatt þennan heim, södd lífdaga. Í æsku lékum við okkur saman að leggjum og skel, áttum bú við stóran stein og hlupum um tún og móa. Útsýnið frá Holti var ein- stakt; Eyjafjörðurinn og fagur fjallahringur blasti við, Hrísey á miðjum firðinum og Kaldbakur hár og tignarlegur reis yfir Látraströndinni þar sem býlin kúrðu undir hlíðum fjallanna. Elsku Rúna var hress og kát, hnyttin í svörum, söngelsk og naut þess að fara á næstu bæi og fá fréttir og segja sögur. Við hjálpuðum til við sveita- störfin og ung fór hún að vinna á sumrin á öðrum bæjum og við beitingu á Grenivík, en þar var bátaútgerð. Eftir fermingu var algengt að fara að vinna fyrir sér. Við vorum fimm systurnar; Sigga, Þóra, Rúna, Dísa og ég yngst. Elsku Rúna fór alveg að heiman 15 ára gömul í vist til Ak- ureyrar. Hún þótti dugleg og vandvirk. Það var mikið ævintýri fyrir hana að fara úr fásinninu á æskuslóðum til Akureyrar. Það var hátíð í Holti þegar hún kom í heimsókn, sagði okkur sögur frá „stórborginni“ og færði okkur smá gjafir. Suður flutti hún svo 17 ára til Siggu systur, sem var gift í Hafn- arfirði, en Þóra bjó í Reykjavík. Elsku Rúna fann ástina fljótt og gifti sig 18 ára og eignaðist fyrsta barnið tæplega 19 ára. Foreldrar okkar fluttu með okkur Dísu til Hafnarfjarðar 1952. Það var ynd- islegt í Hafnarfirði og stutt milli heimila og daglegur samgangur. Árin líða og börnin orðin þrjú hjá elsku Rúnu og Benedikt. Árið 1957 eigum við heima í fallegu húsi á Móabarði 6, sem þau hjón og foreldrar okkar byggðu sam- an. Ekki fer allt að óskum og þau hjón slíta samvistum. Erfið ár taka við hjá Rúnu minni, veikindi, sorg og söknuður. Seinna býr hún ein í Reykjavík árum saman, allt þar til hún fór á Hrafnistu í Hafn- arfirði 80 ára. Heilsunni hrakaði ár frá ári og hún andaðist á Land- spítalanum í Fossvogi 1. septem- ber síðastliðinn. Ég kveð þig, elsku systir, með kvöldbæn, sem hjartans móðir okkar las með okkur í æsku: Nú legg ég augun aftur, ó Guð þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ virst mig að þér taka mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. Gunnlaug (Gulla systir). Ó, minning, minning. Líkt og ómur fjarlægra söngva, líkt og ilmur deyjandi blóma berast orð þín að hlustandi eyrum mínum. Eins og lifandi verur birtast litir og hljómar hinna liðnu daga, sem hurfu sinn dularfulla veg út í dimmbláan fjarskann og komu aldrei aftur. (Steinn Steinarr) Ég þakka alla æskuleikina okkar. Elsku systir, sofðu rótt. Þóra. Sigrún Jakobsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN VALDIMARSSON, áður til heimilis á Langholtsvegi 35, Reykjavík, lést föstudaginn 4. september á hjúkrunarheimilinu Nausti á Þórshöfn. Sigurlaug Stefánsdóttir Steinþór Tryggvason Hallsteinn Stefánsson Irene Mpofu Guðrún Stefánsdóttir Anna Stefánsdóttir Valdimar Stefánsson Steinunn Sesselja Daníelsd. barnabörn og barnabarnabörn Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN ANNA GUÐJÓNSDÓTTIR, Álfaskeiði 58, Hafnarfirði, sem lést þriðjudaginn 25. ágúst, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 10. september klukkan 13. Guðjón Þorkelsson Sesselja G. Sigurðardóttir Magnús Þorkelsson Guðrún Ásmundsdóttir Íris Þorkelsdóttir Friðrik Guðjónsson barnabörn og barnabarnabörn Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÍRIS INGIBERGSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Grund, andaðist fimmtudaginn 3. september. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 11. september klukkan 11. Ingibergur Óskarsson Anette Mogensen Oddfríður Ósk Óskarsdóttir Guðmundur Svavarsson María Óskarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HANNES HARALDSSON vélvirkjameistari, Furulundi 47, Akureyri, lést á heimili sínu í faðmi fjölskyldunnar þriðjudaginn 1. september. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 11. september klukkan 13.30. Vegna aðstæðna verða fjöldatakmarkanir í kirkjunni en athöfninni verður streymt. https://www.facebook.com/utfariraakureyri Þeim sem vilja minnast hans er bent á Heimahlynningu. Guðrún Guðmundsdóttir Haraldur Örn Hannesson Björk Birkisdóttir Guðmundur H. Hannesson Herdís Arnórsdóttir Gauti Már Hannesson Brynja Eysteinsdóttir Sverrir Hannesson Hannes Rúnar Hannesson Vilborg Einarsdóttir Eðvarð Þór Eðvarðsson afabörn og langafabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, AÐALBJÖRG ALBERTSDÓTTIR frá Bæ í Trékyllisvík, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold 28. ágúst. Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn 10. september klukkan 13. Athöfninni verður streymt á lokaðri síðu, þeir sem óska eftir aðgangi hafi samband við aðstandendur. Björn Guðmundur Torfason Bjarnheiður Júlía Fossdal Óskar Torfason Guðbjörg Hauksdóttir Snorri Torfason Inga Dóra Guðmundsdóttir Ragnar Torfason Erna Guðrún Gunnarsdóttir Fríða Torfadóttir Jón Magnús Kristjánsson Guðbrandur Torfason Dóra Björg Jónsdóttir og fjölskyldur Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma, langamma, langalangamma, SOFFÍA KARLSDÓTTIR, leikkona og revíusöngkona, Kópubraut 20, Njarðvík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 6. september. Útförin verður auglýst síðar. Jón H. Jónsson Björg K.B. Jónsdóttir Óðinn Sigþórsson Kristín G.B. Jónsdóttir Þórólfur Halldórsson Jón H. Jónsson Karen H. Jónsdóttir Vilhjálmur S. Einarsson Dagný Þ. Jónsdóttir Halldóra V. Jónsdóttir Ragnheiður E. Jónsdóttir Marco Mintchev ömmubörn og langömmubörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGFRÍÐUR NIELJOHNÍUSDÓTTIR, lést á heimili sínu föstudaginn 4. september. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 10. september klukkan 11. Ólöf Guðmundsdóttir Jón Heiðar Gestsson Ársæll Guðmundsson Gunnhildur Harðardóttir Helga Gottfreðsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.