Morgunblaðið - 08.09.2020, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 08.09.2020, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 2020 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Rússneski stjórnarandstæðinguinn Alexei Navalní var í gær vakinn upp úr dái, en læknar við Charité-sjúkra- húsið í Berlín höfðu haldið honum sofandi í öndunarvél undanfarna daga vegna gruns um að eitrað hefði verið fyrir honum með sovéska taugaeitrinu novichok. Í tilkynningu sjúkrahússins sagði að Navalní, sem er 44 ára gamall, gæti nú brugðist við þegar hann væri ávarpaður og ástand hans hefði skánað. Hins vegar væri ennþá of snemmt að meta hvaða langtíma- áhrif yrðu af eitruninni. Rússar neita allri sök Þýsk stjórnvöld sögðu í síðustu viku að herafli landsins hefði fram- kvæmt próf sem hefði leitt í ljós „óyggjandi sönnunargögn“ fyrir því að eitrað hefði verið fyrir Navalní með novichok, en sama eitur var not- að þegar reynt var að eitra fyrir rússneska gagnnjósnaranum Sergei Skrípal og dóttur hans í Salisbury á Englandi árið 2018. Stuðningsmenn Navalnís segja það sýna að rússnesk stjórnvöld beri ábyrgðina á eitruninni, en Dmitrí Peskov, talsmaður Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta, sagði í gær að það væri af og frá. „Tilraunir til þess að tengja Rússland við það sem gerðist eru óviðunandi, þær eru fáránlegar,“ sagði Peskov á blaðamannafundi sín- um í gær. Rússneskir embættismenn hafa sömuleiðis sakað þýsk stjórnvöld um að vera treg til þess að deila niður- stöðum rannsókna sinna með rúss- neskum saksóknurum, sem nú eru að rannsaka málið. Þjóðverjar íhuga refsiaðgerðir Heiko Maas, utanríkisráðherra Þýskalands, sagði á sunnudaginn að þýsk stjórnvöld myndu ræða hugs- anlegar refsiaðgerðir ásamt banda- mönnum sínum gegn Rússum ef rússnesk stjórnvöld gætu ekki gefið skýringar bráðlega á því hvað hefði komið fyrir Navalní. Maas nefndi meðal annars að mál- ið gæti haft afleiðingar á Nord Stream 2-gasleiðsluna, sem nú er verið að leggja milli Rússlands og Þýskalands, og sagði talsmaður Angelu Merkel Þýskalandskanslara í gær að hún útilokaði ekki að Nav- alní-málið myndi hafa afleiðingar gagnvart Nord Stream-verkefninu. Verkefnið hefur lengi verið þyrnir í augum Bandaríkjamanna, sem telja bandamenn sína í Evrópu um of háða orkugjöfum frá Rússlandi. Hafa þeir þegar samþykkt refsiaðgerðir gegn þeim sem taka þátt í lagningu Nord Stream 2, en ekki beitt enn. AFP Nord Stream 2 Þjóðverjar íhuga nú að hætta við lagningu gasleiðslunnar. Navalní kominn úr dái  Merkel segir koma til greina að hætta við lagningu Nord Stream 2-gasleiðsl- unnar  Kremlverjar hafna öllum ásökunum um að þeir séu viðriðnir málið Bresk stjórnvöld tilkynntu í gær að þau vildu „skýra“ betur út lykilatriði í samkomulagi Breta og Evrópusam- bandsins um útgönguna úr samband- inu, einkum er snýr að tolleftirliti við Norður-Írland og ríkisaðstoð. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, brást hart við og sagði að slík endurskoðun myndi brjóta í bága við ákvæði sáttmálans, og um leið tefla fríverslunarviðræðum Breta og sambandsins, sem nú eru sagðar á viðkvæmu stigi, í hættu. Talsmaður Boris Johnsons, for- sætisráðherra Bretlands, sagði að markmið stjórnvalda væri ekki að nema úr gildi mikilvæg ákvæði Brex- it-sáttmálans, heldur sneri frumvarp- ið eingöngu að „minniháttar útskýr- ingum í mjög sértækum aðstæðum“. Áhyggjur af landamærunum Írsk stjórnvöld lýstu hins vegar yf- ir áhyggjum sínum með að breyting- arnar gætu haft í för með sér að loka þyrfti landamærunum á milli Írlands og Norður-Írlands á ný, og tók norð- urírska heimastjórnin undir þær áhyggjur. Þá hefur Boris Johnson einnig í hyggju að veita Evrópusambandinu fimm vikna frest, eða til 15. október næstkomandi, til þess að ljúka frí- verslunarviðræðunum við Breta með samkomulagi, en þær hafa gengið mjög treglega. Sagði Johnson engan tilgang í að halda viðræðunum áfram ef enginn árangur lægi þá fyrir. Michel Barnier, aðalsamningamað- ur Evrópusambandsins, sagði í gær að hann hefði áhyggjur af tíðindum gærdagsins, og sagðist ætla að spyrja David Frost, samningamann Breta, í þaula út í fyrirætlanir Breta varðandi Norður-Írland og sáttmálann. Vara við áhrif- um á viðræður  Bretar vilja „skýra“ ákvæði Brexit AFP Brexit Óttast er að breytingarnar geti haft áhrif á landamærum. Risastór skógareldur sem kviknaði í Kaliforníuríki um helgina hefur verið rakinn til svokallaðrar kynja- veislu, þar sem gestgjafar hugðust tilkynna um kyn barns í vændum. Veislan heppnaðist ekki betur en svo að flugeldur í reykvél sprakk á röngum tíma og kveikti út frá sér. Eldurinn er einn af mörgum sem nú herja á ríkið, en hann er kenndur við El Dorado. Eldurinn hefur nú þegar eyðilagt um 2.800 hektara lands og neytt fjölda fólks til að yfirgefa heimili sín. Rúmlega 500 slökkviliðsmenn og fjórar þyrlur glíma nú við eldinn og vöruðu eldvarnir ríkisins við því að þeir sem hefðu valdið honum gætu átt von á sektum fyrir að hafa farið óvarlega með eld. Ekki fylgir sög- unni af hvoru kyni barnið verður. BANDARÍKIN AFP Kalifornía El Dorado-eldurinn hefur eyðilagt um 2.800 hektara lands. Kynjaveisla kveikti í Kaliforníuskógum Dómstóll í Sádi- Arabíu ákvað í gær að nema úr gildi dauðadóm yfir fimm mönn- um, sem höfðu verið sakfelldir fyrir morðið á blaðamanninum Jamal Khashoggi árið 2018. Voru sakborningarnir þess í stað dæmdir í 20 ára fangels- isvist ásamt þremur öðrum mönn- um, sem fengu sjö ára dóm. Hatice Cengiz, sem var unnusta Khashoggis þegar hann var myrt- ur, fordæmdi niðurstöðuna og sagði úrskurð dómstólsins „farsa“ sem lítilsvirti réttlætið. SÁDI-ARABÍA Milduðu dómana yfir morðingjunum Jamal Khashoggi Tilkynnt var í gær að rúmlega 4,2 milljónir manns hefðu greinst með kórónuveiruna á Indlandi. Er það um 70.000 tilfellum meira en í Bras- ilíu, en einungis Bandaríkin hafa til- kynnt fleiri tilfelli en þessi tvö ríki. Þar hafa nú tæplega 6,3 milljónir manna smitast af veirunni, og 189 þúsund manns látist af völdum hennar. Kórónuveiran hefur nú greinst í 27 milljónum manna um allan heim, og hefur faraldurinn lagt tæplega 890.000 manns að velli. Um 17,8 milljónir manna eru nú sagðar hafa náð sér af veirunni. Mörg ríki glíma nú við seinni bylgju faraldursins, og tilkynntu stjórnvöld á Spáni í gær að þar í landi hefðu rúmlega 500.000 manns fengið veiruna, en landið var eitt af þeim sem urðu verst úti þegar fyrsta bylgja faraldursins skall á í vor. Spænsk stjórnvöld settu þá á ein- hverjar ströngustu samkomu- takmarkanir í Evrópu, en þeim hef- ur nú verið aflétt að mestu. Um 7-8.000 ný tilfelli hafa greinst á dag að meðaltali síðustu fjórtán daga í landinu, en dánartíðnin nú er mun lægri en hún var í vor. Er það rakið til þess að meðalaldur þeirra sem hafa smitast á þessu tímabili er um fertugt. Engu að síður vöruðu spænsk stjórnvöld við því að farald- urinn væri enn á uppleið. Bíða enn bóluefnis Miklar vonir hafa verið bundnar við að bóluefni verði senn tilbúið sem geti komið böndum á faraldurinn. Matt Hancock, heilbrigðisráðherra Bretlands, greindi frá því í gær að framleiðsla væri þegar hafin á bólu- efni sem lyfjafyrirtækið AstraZen- eca hefur þróað í samstarfi við Ox- ford-háskóla, en að dreifing þess biði þess að bóluefnið fengi staðfestingu eftir prófanir. Bresk stjórnvöld hafa pantað 30 milljónir skammta af bólu- efninu í heildina. Hancock sagði að í besta falli myndi prófunum bóluefnisins ljúka í ár, en raunhæfara væri að miða við að það gæti verið tilbúið til dreif- ingar snemma á næsta ári. Þá sagði Hancock að Bretar hefðu einnig fjárfest í bóluefnum frá öðr- um aðilum, sem einnig biðu þess að prófunum lyki. Næstflest tilfelli greind á Indlandi  500.000 tilfelli kórónuveirunnar á Spáni  Breskt bóluefni í byrjun 2021 AFP Faraldur Margir vilja bóluefni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.