Morgunblaðið - 08.09.2020, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 08.09.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 2020 Töfrar eldamennskunnar byrja með Eirvík Eldhúsið er ekki bara herbergi, heldur upplifun Við hjá Eirvík trúum því að eldhúsið sé hjarta heimilisins. Innanhússarkítektar og sérfræðingar í heimilistækjum keppast við að hanna hágæða eldhús sem standast tímans tönn, með virkni, gæði og sveigjanleika að leiðarljósi. Eldhúsið er fjárfesting til framtíðar – tryggðu þér raunveruleg gæði á hagstæðu verði. Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15 Arnbjörg Auður Örn- ólfsdóttir söngkona, betur þekkt sem Adda Örnólfs, lést á Landa- kotsspítala 2. septem- ber síðastliðinn, 85 ára að aldri. Adda var ein vinsæl- asta söngkona þjóð- arinnar á árum áður og söng eftirminnileg lög á plötur, eins og Bella símamær, Nótt í Atla- vík og Bjarni og nikk- an. Adda fæddist á Suð- ureyri í Súgandafirði 4. maí árið 1935 og ólst þar upp í stórum systkinahópi. Foreldrar hennar voru Örnólfur Valdimarsson útgerð- armaður og Ragnhildur Þorvarð- ardóttir, húsmóðir og organisti við Suðureyrarkirkju. Tíu ára flutti Adda til Reykjavíkur og skaut upp á stjörnuhimininn í söngvarakeppni á vegum KK sext- ettsins árið 1953, ásamt Ellý Vilhjálms og fleiri söngvurum. Á árunum sem í hönd fóru kom hún víða fram en lengst var hún söngkona Aag- es Lorange og hljóð- færaleikara hans, sem voru með eins konar húshljómsveit í Tjarn- arkaffi við Vonarstræti í Reykjavík. Á ferli Öddu voru hljóðrituð nærri 20 lög með henni sem komu út á hljómplötum. Adda hætti að mestu að syngja opin- berlega 1959 en lögin hennar hafa komið út á safnplötum og eru enn reglulega spiluð í útvarpi. Eftirlifandi eiginmaður Öddu er Þórhallur Helgason. Börn þeirra eru Helgi, Þóra Björg og Ragnhildur Dóra. Arnbjörg og Þórhallur eiga sex barnabörn og fjögur barna- barnabörn. Andlát Arnbjörg Auður Örn- ólfsdóttir, Adda ÖrnólfsSigfríður Nieljohn-íusdóttir lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu í Reykja- vík föstudaginn 4. september síðastlið- inn, 100 ára að aldri. Lífsgleðin geislaði af Sigfríði, eða Fríðu Nilla eins og hún var gjarnan kölluð, fram í andlátið. „Ég er alltaf í góðu skapi og fer eftir því sem móður- amma mín sagði: „gott er jafnan glaðlyndur að vera og góðan hug til allra manna bera“. Aðalatriðið er að vera sjálfum sér nægur, sjálfstæður og heiðarlegur,“ sagði hún meðal annars í viðtali við Morgun- blaðið sem birtist síð- asta afmælisdag hennar. Fríða Nilla fæddist í Reykjavík 9. maí 1920. Foreldrar henn- ar voru Nieljohníus Ólafsson verslunar- maður og Ólöf Sig- urðardóttir. Fríða lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1938, fór í læknisfræði í Háskóla Íslands, lærði ensku og þýsku við sama skóla og starfaði síðan á skrifstofu hjá Stefáni Thorarensen apótekara. Þar kynntist hún verð- andi eiginmanni sínum, Guðmundi B. Ársælssyni, síðar póstfulltrúa, sem andaðist 1995. Þau eignuðust þrjú börn, Júlíus lögfræðing, Ólöfu sjúkraþjálfara og Ársæl, skólameistara í Borgar- holtsskóla. Útför Sigfríðar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtu- daginn 10. september næstkom- andi og hefst athöfnin klukkan 11. Andlát Sigfríður Nieljohníusdóttir Axel P.J. Einarsson tónlistarmaður lést að morgni 5. september sl. á Landspítalanum, á 73. aldursári. Axel fæddist 27. október 1947 og ólst upp fyrstu árin á Fá- skrúðsfirði. Foreldrar hans voru Einar Guðni Sigurðsson, f. 1904, d. 1965, kaupfélagsstjóri og hreppstjóri, og Antona Gunnarstein frá Færeyjum, f. 1917, d. 1989. Eftir að þau fluttu frá Fáskrúðsfirði til Reykja- víkur vann Antona ýmis veitinga- störf, t.d. á Gildaskálanum og Hót- el Esju og Einar vann hjá Eimskipafélagi Ís- lands til æviloka. Axel fékkst við margt gegnum ævina. Hann var húsasmiður að mennt en starfaði meðal annars sem kokkur á fiskibátnum Gullfaxa. Tónlistar- áhuginn kviknaði snemma og lærði hann ungur á gítar. Axel var áberandi í tónlistarlífinu á sjö- unda og áttunda ára- tugnum, á fyrstu rokk- og bítlaárunum. Síðan starf- aði hann mikið við upptökur og samdi fjölmörg lög. Axel var í fjölda hljómsveita og má þar helst nefna Tilveru, Ice- cross og Deildarbungubræður. Þekktasta lag Axels er án efa „Hjálpum þeim“ sem kom út árið 1985. Axel rak hljóðver um margra ára skeið, „Stúdíó Stöðin“, og gaf út mikið af tónlist, ekki síst barna- efni, meðal annars Sönglögin í leik- skólanum. Síðustu árin bjó Axel í Svíþjóð og vann að tónlist sem hann leit á sem lífsverk sitt og mun koma út á næstunni. Naut hann við þá vinnu aðstoðar góðra vina. Axel lætur eftir sig tvær dætur og fósturson; Elísabetu, Rakel Maríu og Heiðar Stein Pálsson, sex barnabörn og þrjú langafa- börn. Andlát Axel Einarsson tónlistarmaður ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VANTAR ÞIG PÍPARA?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.