Morgunblaðið - 08.09.2020, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 08.09.2020, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 2020 hún bauð upp á kennaranámið ákvað ég slá til. Það hefur verið alveg yndis- legt og í jóga og í hugleiðslu lærir maður svo mikið. Þegar maður er með marga bolta á lofti er dásamlegt að geta fært athyglina að eigin innri rödd og fá þessa jarðtengingu. Það er líka svo gott mótvægi við hraðann og ég finn að það hjálpar mér í svo mörgu, til dæmis að taka góðar ákvarðanir.“ Núna eftir tíu ár á Íslandi vildi Erla Ósk aðeins bæta við sig og er að hefja MBA-nám. „Mig langaði að fá meiri tæki til að verða betri stjórn- andi og eins bara halda áfram að þróast, því maður veit ekkert hvað framtíðin ber í skauti sér.“ Fjölskylda Eiginmaður Erlu Óskar er Andrew Jered Wissler fjármála- stjóri, f. 5.10. 1983. Foreldrar hans eru Susan L. Wissler húsmóðir, f. 25.3.1958 og John E. Wissler, yfir- maður í landgönguliðaher Banda- ríkjanna (USMC), f. 16.7. 1956. Þau búa í Alexandria í Virginia í Banda- ríkjunum. Börn Erlu Óskar og And- rews eru Jón Pétur, f. 2.1. 2011, Ró- bert Ari, f. 1.5. 2013, og Tómas Páll, f. 13.10. 2015. Systkini Erlu Óskar eru Ólöf Daðey Pétursdóttir, kennari í Grindavík, f. 18.9. 1982, Margrét Kristín Pétursdóttir, forstöðumaður gæðamála, og Óskar Pétursson, framkvæmdastjóri Klaka, f. 26.1. 1989. Þau búa öll í Grindavík. Foreldrar Erlu Óskar eru Ágústa Óskarsdóttir, f. 14.8. 1958, fv. starfs- mannastjóri, og Pétur Hafsteinn Pálsson, f. 6.7. 1959, framkvæmda- stjóri. Þau búa í Grindavík Erla Ósk Wissler Pétursdóttir Ágústa Sumarrós Andrésdóttir húsmóðir í Reykjavík Þorvarður Guðbrandsson vörubílstjóri í Reykjavík Óskar Þorvarðarson húsgagnasmíðameistari í Reykjavík Ágústa Óskarsdóttir fv. starfsmannastjóri í Grindavík Jórunn Erla Þorvarðardóttir matartæknir í Reykjavík Elín Jónsdóttir húsmóðir í Vestmannaeyjum Þorvarður Ingvarsson sjómaður í Vestmannaeyjum Sighvatur Andrésson bóndi á Ragnheiðarstöðum í Flóa Kristín Árnadóttir húsfreyja á Ragnheiðar- stöðum í Flóa Margrét Sighvatsdóttir söngkona í Grindavík Páll Hreinn Pálsson útgerðarmaður í Grindavík Jóhanna Daðey Gísladóttir útgerðarmaður á Þingeyri Páll Jónsson útgerðarmaður á Þingeyri Úr frændgarði Erlu Óskar Wissler Pétursdóttur Pétur Hafsteinn Pálsson framkvæmdastjóri í Grindavík Fyrir líkama og sál L augarnar í Reykjaví k w w w. i t r. i s „ANNAÐHVORT ERTU SEKUR EÐA SAKLAUS. „SKOTAPILS ERU EKKI TÍSKUGLÆPUR” ER EKKERT SVAR.” „LEYFÐI AFI YKKUR AÐ LOSA ÞETTA AF SLÆMU LÖPPINNI?” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar tíminn nánast bráðnar. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG MUN NÚ ÞÝÐA ÞAÐ SEM ODDI SEGIR VOFF VOFF VOFF „KETTIR ERU GÁFAÐRI EN HUNDAR” HEYRÐU! ÉG ÞEKKI ÞIG! HRÓLFUR? ÞÚ ERT JÓSTEINN LÁVARÐUR! ÞAÐ ERU LIÐIN TUTTUGU ÁR… MANSTU EFTIR MÉR? MENN GLEYMA ALDREI FYRSTU RÁNSFERÐINNI SINNI! Ólafur Stefánsson yrkir hér smá-vísur um sjö fastagesti Leirs- ins sáluga, en tekur fram, að aðrir sjö liggi óbættir hjá garði að ósekju en plássið sé ekki meira en Guð gaf. Enginn bíður inni Leir auðn og tóm í hug og sinni. Ekki Pétur yrki meir; annúlerast gömul kynni. Sigmund leit ég svífa brott, sigu vængir skáldsins knáa. Samhygðar vil sýna vott, sendi honum kveðju smáa. Ómar gengur upp um fjöll, er þá margt að sjá og skoða. Þar hann ljóðin yrkir öll, ef ekki fer sér neitt að voða. Fíu er margt til lista lagt, löngum ötul spáði’ í grínið. Hinsta flímið hún fékk sagt, svo horfin var með Sanda-vínið. Sigrúnar skal síðan minnst, sú var dyggust bragameyja. Betri höfum konu’ei kynnst, klént að Leirinn þurfti’ að deyja. Í Davíðshaga dafnar vel, þó dúri stundum niðrá milli. Leikur hann með ljóðaskel, langa stund af mestu snilli. Svo að lokum Sigurlín, sanna gerði hæfni sína. Alltaf kát og eðalfín, alla hlýtur virðing mína. Sigrún Haraldsdóttir segir á Boðnarmiði að hún hafi róast með aldrinum: Ekkert reyni yfir klóra, öllu tek sem fyrir ber, heima róleg hangsa og slóra, hætt að leita að sjálfri mér. Helgi Ingólfsson svaraði: Ég sjálfum mér gjarnan vil gleyma, því gott er að láta sig dreyma. Þótt orkan nú dvíni og ýmsu ég týni, ég oftast finn sjálfan mig heima. Ármann Þorgrímsson hefur lög að mæla „Á lokasprettinum“: Okkar styttist ævi skeið enda sögur taka. Eigum miða aðra leið enginn snýr til baka. Úr Síraksrímum Jóns Bjarnason- ar á Presthólum: Hvað sem býr í brjósti manns birtist skjótt í augum hans glaðlegt tillit glöggt til sanns gleðina merkir hjartaranns. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Um fastagesti Leirsins sáluga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.