Morgunblaðið - 08.09.2020, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 2020
Það hefur verið ansi áhuga-
vert að fylgjast með flóttanum úr
körfuknattleiksliðum KR í Vest-
urbæ að undanförnu. Danielle
Rodriguez og Hildur Björg Kjart-
ansdóttir riðu á vaðið. Það var
kannski ekki svo óvænt enda
báðir leikmenn að klára sitt
fyrsta tímabil með liðinu.
Það kom hins vegar mörgum á
óvart þegar Jón Arnór Stefáns-
son ákvað að söðla um og semja
við Val. Það væri orðum aukið að
tala um Valsmenn sem erkifjend-
ur KR þótt það eigi kannski við í
fótboltanum. Sigurhefðin er ekki
beint með Valsmönnum í liði í
körfunni; liðið vann síðast stóran
titil árið 1983, og mætingin á
körfuboltaleiki á Hlíðarenda ber
vott um það.
Í síðustu viku tilkynnti svo
formaður körfuknattleiksdeildar
KR að Margrét Kara Sturludóttir
og Unnur Tara Jónsdóttir hefðu
lagt skóna á hilluna. Miklir KR-
ingar. Margrét Kara staðfesti það
í mjög áhugaverðu viðtali við
undirritaðan, sem birtist í laug-
ardagsblaði Morgunblaðsins, að
hún væri hætt en samkvæmt
mínum bestu heimildum hefur
Unnur Tara ennþá hug á því að
halda áfram.
Kristófer Acox gafst svo
endanlega upp á yfirmönnum
sínum í Vesturbæ í gær og fékk
samningi sínum rift vegna van-
goldinna launa. Hann ætti að
skrifa undir á Hlíðarenda á
næstu dögum þar sem hann mun
að öllum líkindum fá borgað 1.
hvers mánaðar eins og gengur
og gerist.
Að missa svona marga
trausta, trygga og jafnframt mik-
ilvæga leikmenn á stuttum tíma
hlýtur að kalla á einhverja nafla-
skoðun hjá þeim sem stýra skút-
unni í Vesturbæ og menn hljóta
að íhuga stöðu sína alvarlega,
annað væri fásinna.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
BELGÍA
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Hannes Þór Halldórsson, Kári Árna-
son, Ragnar Sigurðsson, Sverrir Ingi
Ingason, Aron Einar Gunnarsson,
Gylfi Þór Sigurðsson, Jóhann Berg
Guðmundsson, Rúnar Már Sig-
urjónsson, Kolbeinn Sigþórsson, Við-
ar Örn Kjartansson, Alfreð Finn-
bogason.
Þetta er ekki spá um væntanlegt
byrjunarlið Íslands heldur upptaln-
ing á ellefu íslenskum landsliðs-
mönnum sem verða fjarverandi í
kvöld, af ýmsum ástæðum, þegar Ís-
land sækir heim eitt allra sterkasta
landslið heims, Belgíu, í annarri um-
ferð Þjóðadeildar UEFA.
Sjaldan eða aldrei hafa önnur eins
forföll verið hjá íslenska landsliðinu í
mótsleik og ljóst að það hefur verið
talsverður höfuðverkur fyrir Erik
Hamrén að púsla liðinu saman upp á
nýtt eftir ósigurinn nauma gegn
Englandi á laugardaginn.
Þá bættist Sverrir Ingi í hóp
þeirra sem helst hafa úr lestinni, þar
sem hann fékk rauða spjaldið undir
lok leiksins. Þar sem fyrir lá að
Hannes og Kári færu ekki í seinni
leikinn verður aftasti hluti liðsins, og
sá sem mest mæðir á gegn sterkum
andstæðingum, markvörðurinn og
miðverðirnir, endurnýjaður.
Það kemur í hlut annaðhvort Ög-
mundar Kristinssonar eða Rúnars
Alex Rúnarssonar að verja mark Ís-
lands. Tveir miðverðir eru eftir í
hópnum, Hólmar Örn Eyjólfsson og
Jón Guðni Fjóluson, ásamt reyndar
Hirti Hermannssyni sem hefur leyst
stöðu hægri bakvarðar, og því mest-
ar líkur á að þeir komi inn í íslenska
liðið.
Viðureign Belgíu og Íslands hefst
klukkan 18.45 á galtómum Stade Roi
Baudouin (leikvangi Baldvins kon-
ungs) í Brussel þar sem á eðlilegum
tímum væru 50 þúsund manns mætt-
ir til að styðja við bakið á „Rauðu
djöflunum“ eins og landslið Belga
hefur verið kallað allt frá árinu 1906.
Belgar eru efstir á heimslista
FIFA, enda hafa þeir unnið ellefu
síðustu landsleiki sína og 23 af síð-
ustu 26. Þar á meðal tvo leiki gegn
Íslandi í Þjóðadeildinni haustið 2018
þegar liðin voru einnig saman í riðli.
Þá unnu Belgar 3:0 á Laugardals-
vellinum og 2:0 á Baldvinsvelli.
Í seinni leiknum hélt íslenska liðið
hreinu í 65 mínútur gegn belgíska
stórskotaliðinu áður en Michy Bats-
huayi tryggði Belgum sigurinn með
tveimur mörkum.
Sjálfir verða Belgar reyndar ekki
með sitt allra sterkasta lið. Þeir unnu
Dani 2:0 í fyrstu umferð riðilsins á
Parken á laugardagskvöldið en sam-
ið hafði verið um að Yannick Car-
rasco myndi snúa heim til Atlético
Madrid og Eden Hazard heim til
Real Madrid eftir þann leik. Hinn
snjalli Kevin De Bruyne kemur
reyndar inn í hópinn á ný, beint eftir
að hafa eignast sitt þriðja barn, en
ekki er búist við því að hann verði í
byrjunarliðinu þar sem hann hefur
ekkert æft í tæpan mánuð.
Þá eru Thibaut Courtois mark-
vörður, Thomas Vermaelen, Michy
Batshuayi og Divock Origi ekki með í
þessum leikjum. En það sér vart
högg á vatni og ljóst að leikurinn í
kvöld verður einhver sá erfiðasti sem
íslenska landsliðið hefur leikið í lang-
an tíma.
Heilt byrjunarlið er fjarverandi
Ísland mætir efsta liðinu á
heimslista FIFA í Brussel í kvöld
Morgunblaðið/Eggert
Mætast Thomas Meunier, leikmaður Dortmund, og Arnór Ingvi Traustason
í leik Íslands og Belgíu á Laugardalsvellinum fyrir tveimur árum.
Stórskyttan Rúnar Kárason var
markahæstur hjá Ribe-Esbjerg í
danska handboltanum í gærkvöldi
en liðið mátti þó sætta sig við tap
gegn Kolding. Ágúst Elí Björg-
vinsson stóð í marki Kolding megn-
ið af leiknum og varði sjö skot en
átti erfitt með að sjá við Rúnari sem
skoraði níu mörk úr 14 skotum.
Gunnar Steinn Jónsson og Daníel
Ingason léku einnig með Esbjerg en
skoruðu ekki. Kolding hafði betur
35:33. Aalborg vann Lemvig á úti-
velli 30:22 en Arnór Atlason er að-
stoðarþjálfari hjá Aalborg.
Rúnar skoraði níu
gegn Ágústi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
9 mörk Rúnar Kárason var marka-
hæstur hjá Ribe-Esbjerg í gær.
Bandaríkjamaðurinn Dustin John-
son sigraði á Tour Championship-
mótinu í golfi í Atlanta skömmu áð-
ur en blaðið fór í prentun og varð
einnig stigameistari á PGA-
mótaröðinni.
Mótið var lokamót FedEx-
úrslitakeppninnar og sigurinn í
henni tryggir Johnson 15 milljónir
dollara í verðlaunafé eða rúma tvo
milljarða íslenskra króna. Vann
hann tvö mót af þremur í úrslita-
keppninni. Hann sigraði með
þriggja högga mun en næstir komu
Justin Thomas og Xander Shauffele.
Fær rúmlega tvo
milljarða í vasann
AFP
Sigurvegarinn Dustin Johnson með
bikarinn í Atlanta í gærkvöldi.
Fjölnir, Vængir Júpíters og Vík-
ingur.
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Fram 164, ÍBV 149, Valur 131,
Stjarnan 125, KA/Þór 98, HK 82,
Haukar 58, FH 57.
Samkvæmt þessu myndi Fram
mæta Stjörnunni og ÍBV mæta Val í
undanúrslitum.
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Fram U 194, Afturelding 173,
Grótta 151, Selfoss 150, Valur U 122,
ÍR 100, Fjölnir/Fylkir 99, HK U 69,
Víkingur 67.
FH myndi falla samkvæmt spánni
en Afturelding færi upp í staðinn. Í
umspil um eitt sæti færu Haukar,
Grótta, Selfoss og ÍR.
Keppni í Olísdeild karla hefst á
fimmtudagskvöld með leik ÍR og
ÍBV en þá mætast einnig Grótta –
Haukar og Afturelding – Þór. Á
föstudag mætast KA – Fram og
Stjarnan – Selfoss og FH mætir Val
í lokaleik fyrstu umferðar á laug-
ardag.
Olísdeild kvenna hefst á föstu-
dagskvöld þegar Stjarnan tekur á
móti FH en þá mætast líka Fram og
HK. Fyrstu umferð lýkur á laug-
ardag þegar Valur mætir Haukum
og ÍBV tekur á móti KA/Þór.
Íslandsmótið í handknattleik hefst á
fimmtudagskvöldið eftir tæplega
fimm mánaða hlé frá því síðasta en
keppni var hætt í marsmánuði vegna
útbreiðslu kórónuveirunnar án þess
að Íslandsmeistarar væru krýndir.
Valur var þá á toppnum í Olísdeild
karla og Fram í Olísdeild kvenna, og
liðin voru úrskurðaðir sigurvegarar.
Hin árlega spá HSÍ um tímabilið
2020-21 var opinberuð í gær og þar
kom fram að sömu liðum er spáð
sigri í vetur, Val hjá körlunum og
Fram hjá konunum.
Niðurstaðan í spánni var þessi:
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Valur 374, Haukar 354, FH 315,
Afturelding 288, ÍBV 260, Selfoss
257, Stjarnan 251, Fram 189, KA
181, Þór 119, ÍR 113, Grótta 107.
Samkvæmt þessu myndu í 8-liða
úrslitum mætast Valur – Fram,
Haukar – Stjarnan, FH – Selfoss og
Afturelding – ÍBV.
1. deild karla, Grill 66-deildinni:
HK 257, Kría 227, Fjölnir 195,
Valur U 186, Haukar U 185, Vængir
Júpíters 184, Víkingur 167, Selfoss
U 104, Fram U 79, Hörður 66.
ÍR og Grótta falla samkvæmt
spánni. HK færi upp og í umspil um
eitt sæti í úrvalsdeild færu Kría,
Búast við sömu
sigurvegurum
Val og Fram spáð efstu sætunum
Keflavík sleit sig tveimur stigum
frá ÍBV og Grindavík í Lengju-
deild karla í gær en tveir leikir
voru á dagskrá.
Keflvíkingar fóru norður í Eyja-
fjörð og náðu í þrjú stig gegn Þór
á Akureyri þar sem Keflavík sigr-
aði 3:1 þrátt fyrir að lenda 1:0
undir snemma leiks. Álvaro Mon-
tejo kom þá Þór yfir á 17. mínútu
en Keflvíkingar svöruðu þrívegis
fyrir hlé. Josep Arthur Gibbs
skoraði tvívegis og Nacho Heras
skoraði eitt. Hinn ástralski Gibbs
hefur nú skorað 16 mörk í 13
leikjum fyrir Keflvíkinga í deild-
inni í ár.
Keflavík er með 27 stig eftir 13
leiki í 2. sæti deildarinnar og er
fjórum stigum á eftir Fram. Liðið
fór upp fyrir Leikni úr Breiðholti
með sigrinum í kvöld. Þór er með
20 stig eftir 14 leiki í 6. sæti.
Grindavík og ÍBV gerðu 1:1-
jafntefli en úrslitin koma kannski
ekki á óvart þar sem þetta var sjö-
unda jafntefli ÍBV og sjötta jafn-
tefli Grindavíkur í deildinni í sum-
ar.
Sigurður Bjartur Hallsson kom
Grindavík yfir á 49. mínútu en
Jonathan Glenn jafnaði fyrir ÍBV
á 63. mínútu.
ÍBV er með 25 stig eftir 14 leiki
í 4. sæti en Grindavík með 21 stig
eftir 13 leiki í 5. sæti. sport@mbl.is
Ljósmynd/Þórir
Á Akureyri Þriggja manna skallaeinvígi í leik Þórs og Keflavíkur á Þórsvellinum í gær.
Keflavík fór upp fyrir Leikni