Morgunblaðið - 08.09.2020, Page 32
Námskeiðið Stelpur filma! hófst í Norræna húsinu í
gær en á því eru hátt í 70 stelpur úr níu grunn-
skólum og munu þær spreyta sig á að framleiða
stuttmyndir og láta raddir sínar heyrast. Nám-
skeiðið er hluti af dagskrá Alþjóðlegrar kvik-
myndahátíðar í Reykjavík, RIFF, sem hefst síðar í
mánuðinum og er ætlunin að skapa öruggt umhverfi
fyrir stelpur til að prófa sig áfram í kvikmyndagerð
og um leið stíga skref í átt að því að rétta af kynja-
halla í greininni, eins og segir í tilkynningu. Stelp-
urnar munu m.a. fræðast um handritsgerð, leik-
stjórn, framleiðslu og persónusköpun og fá
jafnréttisfræðslu. Meðal kennara eru
Baltasar Kormákur, Margrét Jón-
asdóttir, Valdís Óskarsdóttir, Nanna
Kristín Magnúsdóttir og Margrét Örn-
ólfsdóttir. Þetta er í fimmta sinn sem
námskeið ef þessu tagi er haldið en það
fyrsta var haldið í tilefni af 100 ára
kosningaréttarafmæli kvenna á
Íslandi og hefur námskeiðið ver-
ið fastur liður frá því.
Stelpur filma! í Norræna húsinu
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Vilborg Eiríksdóttir saumaði skírn-
arkjól veturinn 1978 til 1979 og hafa
22 börn verið skírð í honum. Hún
hefur saumað nöfn barnanna í kjól-
inn ásamt skírnardeginum. „Plássið
hefur þrengst að framanverðu en
nóg er eftir á hliðunum,“ segir
saumakonan.
Þegar Vilborg var í Hússtjórnar-
skólanum á Varmalandi var eitt
verkefnið að sauma flík í vél að eigin
vali. „Sumar völdu að sauma eitt-
hvað á sig sjálfar, aðrar völdu barna-
föt og við vorum ellefu af 35 náms-
meyjum sem ákváðum að sauma
skírnarkjóla,“ rifjar hún upp. Allar
notuðu sama grunnsniðið, en síðan
hannaði hver og ein sína eigin út-
færslu hvað varðar blúndur, mynst-
ur og staðsetningu þess á kjólnum.
„Hver skírnarkjóll var því með
sínu sniði og engir tveir eins,“ segir
Vilborg. „Eftir því sem ég best veit
var ég sú eina sem ákvað að sauma
nöfn skírnarbarnanna í kjólinn,“
leggur hún áherslu á og segist strax
hafa hugsað út í notagildið og varð-
veislu sögunnar.
Fyrst notaður 1981
Fyrsta barn elstu systur Vilborg-
ar var skírt fyrst allra í kjólnum
1981. Síðan hefur hann að mestu
leyti verið notaður innan fjölskyld-
unnar en með tveimur undantekn-
ingum þó þegar vinkonur Vilborgar
fengu hann lánaðan. „Í upphafi voru
það börnin mín og systkina minna
sem voru skírð í kjólnum, en síðustu
árin hafa þau sjálf fengið hann lán-
aðan við skírn sinna barna. Þykir
mér ósköp vænt um að þau vilji nota
kjólinn sem þau sjálf voru skírð í á
sínum tíma.“ Í því sambandi bendir
hún á að tvö barna sinna hafi eignast
börn og hún hafi saumað nöfn fjög-
urra barnabarna sinna í kjólinn.
Börn Vilborgar eru Ármann
Andri fæddur 1984, Íris Eva fædd
1990 og Anna Valdís fædd 1996. „Ár-
mann Andri fékk auðvitað fyrstur
heiðurssess framan á kjólnum,“ seg-
ir hún en bætir við að röðunin sé
annars handahófskennd. „Ég reyni
samt að hafa systkinahópa saman.“
Vilborg varðveitir kjólinn sem sjá-
aldur auga síns og hefur hann tilbú-
inn til notkunar þegar eftir því er
óskað. „Ég sé sjálf um að handþvo
hann og ganga frá honum á viðeig-
andi hátt.“ Eftir hverja skírn saum-
ar hún í hann nafn viðkomandi barns
og skírnardaginn. Hún segir að allir
muni fæðingardaginn og því hafi hún
frekar valið að hafa skírnardaginn,
því hann falli gjarnan meira í skugg-
ann. „Kjóllinn varðveitir mikilvæga
dagsetningu í sögu barnsins og er
því stöðugt tilefni til upprifjunar á
þessum merka degi.“
Engin regla hefur verið á letur-
gerðinni. Hún segist stundum hafa
fengið einhvern sem tengist viðkom-
andi barni og er með fallega rithönd
til að skrifa nafnið til að sauma eftir.
„Þá eru nöfnin ekki bara með minni
rithönd,“ segir hún. „Svo reyni ég að
hafa fjölbreytni í litum og því er
kjóllinn litskrúðugur.“
Nýjasta nafnið á kjólum er Mikael
Máni, sonur Jóhönnu Sigríðar Sig-
urðardóttur, systurdóttur Vilborgar,
og Jens Guðmundssonar, en hann
var skírður 26. ágúst síðastliðinn.
„Jóhanna Sigríður var einnig skírð í
kjólnum fyrir 27 árum, og þess
vegna sauma ég nafnið hans hjá
nafni hennar og skírnardegi.“
Öll í sama kjólnum
Morgunblaðið/Eggert
Hefð Vilborg Eiríksdóttir saumar nýjasta nafnið í skírnarkjólinn.
Vilborg Eiríksdóttir saumaði skírnarkjól 1979 og hefur
saumað í hann nöfn 22 barna sem hafa verið skírð í honum
Skírn Jóhanna, Matthildur Sara,
Jens og Mikael Máni í kjólnum.
Morgunblaðið/Eggert
Skrásetning Mikael Máni og
Jóhanna Sigríður standa saman.
... stærsti
uppskriftarvefur
landsins!
ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 252. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Enska knattspyrnu-
konan Shameeka
Fishley hefur látið
mikið til sín taka með
Stjörnunni í undan-
förnum leikjum og var
að mati Morgunblaðs-
ins besti leikmaður
13. umferðar Pepsi
Max-deildar kvenna á
sunnudaginn þegar
Garðabæjarliðið vann
óvæntan sigur á Sel-
fossi. „Það er ekki
mikill gæðamunur á
íslensku og ítölsku
deildinni,“ segir Fis-
hley í viðtali í blaðinu
í dag en hún lék
áður m.a. með
Sassuolo á
Ítalíu. »26
Ekki mikill munur á Ítalíu og Íslandi
ÍÞRÓTTIR MENNING