Morgunblaðið - 23.09.2020, Síða 4
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2020
www.alver.is S: 896 4040
LauraStar á Íslandi
Umhverfisvænt
og náttúrulegt
Þurrgufan í LauraStar hreinsar
fötin þín á náttúrulegan hátt án
þess að nota efnavörur.
Meira en 99,999% af bakteríum,
sveppagróðri, rykmaurum
og lykt er útrýmt á
áhrifamikinn hátt.
Þurrgufan hjá LauraStar skilar
fatnaðinum fullkomlega þurrum
og gefur þannig örverum litla
möguleika á að vaxa.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Við megum ekki vera að draga
þjóðir í einhverja dilka út af svona
tilfellum,“ segir Guðlaug M. Jak-
obsdóttir, forseti stjórnar Alliance
Française, spurð út í ummæli Þór-
ólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis
sem kallaði afbrigði kórónuveir-
unnar „Frakkaveiruna“ á upplýs-
ingafundi almannavarna í fyrradag.
Ummæli sóttvarnalæknis eru
tilkomin vegna þess að langflest
smit sem hafa komið upp að undan-
förnu eru af sama afbrigði veirunnar
og tveir franskir ferðamenn greind-
ust með í ágúst. Ferðamennirnir
fylgdu ekki sótt-
varnareglum.
„Þetta eru
einstaklingar sem
höguðu sér óá-
byrgt og það er
alveg sama hvað-
an þeir koma,
þetta var bara óá-
byrg hegðun,“
segir Guðlaug um
það. Ummæli
Þórólfs eru að hennar mati óheppi-
leg. „Þessi Frakkaveira, sem við get-
um kannski kallað svo, er yfir-
gæfandi svolítið núna,“ sagði
Þórólfur í kvöldfréttum Stöðvar 2 í
fyrrakvöld.
Í lok ágúst hvatti Alma D. Möll-
er landlæknir fólk til að forðast það
að tengja veiruna við staði enda væri
það óábyrgt. Þá höfðu smit komið
upp sem bæði tengdust Akranesi og
hóteli á Suðurlandi.
Trump og „Kínaveiran“
Eins og frægt er orðið hefur
Donald Trump Bandaríkjaforseti
ítrekað kallað veiruna Kínaveiruna
þar sem hún á rætur sínar að rekja
til Wuhan í Kína. Það hefur sætt
mikilli gagnrýni. Sendiherra Banda-
ríkjanna á Íslandi kallaði veiruna
einnig Kínaveiruna í tísti í júlí-
mánuði og féll það illa í kramið hjá
mörgum Íslendingum.
Telur ummæli Þórólfs um
Frakkaveiruna óheppileg
Guðlaug M.
Jakobsdóttir
Stjórnarformaður Alliance Française varar við því að
verið sé að draga þjóðir í dilka í umræðu um kórónuveiruna
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Alls greindust 38 kórónuveirusmit
innanlands á mánudag, þar af 31 úr
einkennasýnatökum, fjögur í sóttkví-
ar- og handahófsskimunum og þrjú í
skimunum á vegum Íslenskrar erfða-
greiningar. Af
þeim sem greind-
ust var helmingur
í sóttkví, eða
nítján manns.
Samkvæmt tölum
sem birtar voru í
gær er 281 í ein-
angrun og enn eru
tveir á sjúkrahúsi.
Alls voru 3.009
sýni tekin hjá
Heilsugæslu höf-
uðborgarsvæðisins gær. Áður höfðu
mest verið tekin um tvö þúsund sýni
hjá heilsugæslunni á einum degi.
Opnað var í hádeginu og var vaktin
staðin til kl. 20 í gærkvöldi.
Athygli hefur vakið sá fjöldi smita
sem greinst hefur í skólum á höfuð-
borgarsvæðinu að undanförnu, og
þær aðgerðir sem þar hefur í kjölfar-
ið verið gripið til.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið hefur fengið frá
Reykjavíkurborg eru samtals 320
nemendur í sex grunnskólum í
sóttkví, þar af um 98 á yngsta stigi,
155 nemendur í 7. bekk og 46 á ungl-
ingastigi. Þá eru 43 starfsmenn á
grunnskólastigi í sóttkví.
Í þremur grunnskólum er allur eða
stór hluti 7. bekkjar í sóttkví, og í ein-
um litlum skóla er allt unglingastigið í
sóttkví, samkvæmt þessum upplýs-
ingum. Í öðrum litlum skóla er 1.-4.
bekkur í sóttkví.
Einnig eru 33 leikskólabörn í
sóttkví frá tveimur leikskólum, og ell-
efu starfsmenn í sóttkví. Áhrifin eru
þau að tveimur leikskóladeildum hef-
ur verið lokað tímabundið.
Verðum að vera viðbúin
„Í öllum tilvikum þar sem nemend-
ur fara í sóttkví stunda þeir fjarnám,“
segir Helgi Grímsson, sviðsstjóri
skóla- og frístundasviðs í Reykjavík,
og á þá við grunnskólanemendur.
„Við sögðum strax í byrjun ágúst
að við yrðum sem skólasamfélag að
vera viðbúin bæði smærri og stærri
bylgjum af kórónuveirufaraldrinum.
Þá vorum við í raun að stíga inn í
bylgju. Ég reyndar hélt fyrir svona
rúmri viku að við værum jafnvel laus
að sinni við þetta og að ef til vill kæmi
næsta stóra bylgja í kringum jólin.
Þess vegna kemur þetta á óvart, en
fólkið okkar hefur sett sér þá línu að
við verðum bara að vera viðbúin því í
okkar skipulagi að svona geti gerst,“
segir Helgi.
Allur viðbúnaður lúti að því að geta
mætt smitbylgjum á borð við þessa,
sama hvort þær eru smáar eða stór-
ar.
„Við reynum sífellt að lesa í að-
stæður í samráði við sóttvarnayfir-
völd hverju sinni og ákveðum út frá
því hvaða form aðgerðir eigi að taka.“
Hann segir það eiga til að gleymast
í umræðunni að þegar lagður er sam-
an fjöldi nemenda og starfsmanna þá
sé skóla- og frístundasvið Reykjavík-
urborgar um þrjátíu þúsund manna
vinnustaður.
Áætlunin virki býsna vel
„Þó svo það séu svona margir sem
fara í sóttkví, þá snýst þetta kannski
um tiltölulega fáa sem eru með smit.
Það er alltaf svo stór hópur sem tek-
inn er úr leik þegar smit koma upp.
Þetta virkar því oft svo stórtækt, en
það er í raun bara verið að gera þessi
inngrip til að koma í veg fyrir mögu-
lega útbreiðslu,“ segir hann og bendir
á að í aðeins tveimur tilvikum svo vit-
að sé, hafi smit borist innan skóla.
„Sem þýðir að menn eru að standa
sig mjög vel í sóttvörnum og að sú
áætlun sem lagt var upp með virkar
býsna vel.“
Morgunblaðið/Eggert
Beðið eftir skimun 3.009 sýni voru tekin hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í gær. Komust allir að sem vildu.
320 nemendur eru í sóttkví
Nemendur úr sex grunnskólum Reykjavíkurborgar í sóttkví 33 leikskólabörn
Aldrei fleiri sýni tekin á einum degi Smit aðeins borist tvisvar innan skóla
Kórónuveirusmit á Íslandi
Nýgengi smita frá 30. júní
2.419 staðfest smit
Heimild: covid.is
Nýgengi innanlands 21. sept.
68,4 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa
2 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,
enginn á gjörgæslu
258.015 sýni hafa verið tekin
Þar af í landamæraskimun
145.657
sýni, samtals í skimun 1 og 2
2.183 einstaklingar eru í skimunarsóttkví
50
40
30
20
10
0
68,4
4,9
2.283 einstaklingar eru í sóttkví
281 eru með virkt smit og í einangrun Nýgengi innanlands Nýgengi, landamæri
júlí ágúst september
Skólar og kórónu-
veirusmit í haust
Smit komið upp eða starfs-
menn og nemendur í sóttkví
● Háskóli Íslands
● Háskólinn í
Reykjavík
● Listaháskólinn
● Fjölbrauta-
skólinn í Ármúla
● Tjarnarskóli
● Melaskóli
● Fossvogsskóli
● Hvassaleitisskóli
● Álftamýrarskóli
● Valhúsaskóli
● Barnaskóli Hjalla-
stefnunnar Rvík
● Vesturbæjar-
skóli
● Ingunnarskóli
● Leikskólinn
Akrar Garðabæ
● Leikskólinn
Ásar Garðabæ
● Leikskólinn
Ægisborg Rvík
Helgi
Grímsson
Þrír alþingismenn eru í sóttkví auk
tveggja starfsmanna Alþingis. Helgi
Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pí-
rata, er enn í einangrun eftir að hafa
greinst smitaður af kórónuveirunni.
Gripið hefur verið til víðtækra ráð-
stafana á Alþingi og skrifstofu þess.
Vinnur mikill meirihluti þingmanna
og starfsmanna heima út þessa viku,
að því er fram kemur á vef þingsins.
Flensa lagt hálft heimilið
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra og Svandís Svavarsdóttir heil-
brigðisráðherra mættu ekki á ríkis-
stjórnarfund í gærmorgun sökum
veikinda. Í stað Katrínar tók Bjarni
Benediktsson, fjármála- og efnahags-
ráðherra, við stjórn fundarins.
Eftir skimanir kom í ljós síðar um
daginn að hvorug hafði smitast af
veirunni.
„Hins vegar hefur einhver hefð-
bundnari flensa lagt hálft heimilið í
rúmið. Við þreyjum hana, fegin og
þakklát að ekki er um sjálfa kórónu-
veiruna að ræða,“ skrifaði forsætis-
ráðherra á Facebook-síðu sína.
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Gripið hefur verið til víð-
tækra ráðstafana á vinnustaðnum.
Þrír alþingis-
menn í sóttkví
Katrín og Svandís
ekki reynst smitaðar
Samkvæmt könnun Íslenska ferða-
klasans um viðbrögð og aðgerðir
vegna kórónuveirufaraldursins
telja 69% ferðaþjónustuaðila sig
þurfa á einhvers konar neyðar-
fjármagni eða skammtímafjár-
mögnun að halda.
Stærstur hluti þeirra, eða 42,8%,
taldi aukið fjármagn þurfa til næstu
sex til 12 mánaða. 14,29% töldu
fjármagnið þurfa til tveggja ára
eða lengur. Þriðjungur þeirra 56
fyrirtækja sem þátt tóku í könn-
uninni kvaðst hafa lokað starfsemi
sinni tímabundið, eða í einn til sex
mánuði, en aðeins 3,57% lokuðu
starfsemi sinni alfarið. Flestir virð-
ast hins vegar bjartsýnir um fram-
tíð íslenskrar ferðaþjónustu og sáu
fram á góða starfsemi árið 2024.
69% telja sig þurfa
neyðarfjármögnun