Morgunblaðið - 23.09.2020, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.09.2020, Blaðsíða 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI AÐRAR MYNDIR Í SÝNINGU: * Harry Potter * Tröll 2 (ísl. tal) * Hvolpasveitin (ísl. tal) * The Secret : Dare to dream * The New Mutants SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Frábær ný teiknimynd fyrir alla fjölskylduna. FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS Nýjasta Meistaraverk Christopher Nolan ★★★★★ ★★★★★ ★★★★★ The Guardian The Times The Telegraph Þrátt fyrir að nýsmitum kórónuveirunnar hafi fjölgað víða um lönd berast samt fréttir af því að menningar- stofnanir séu opnaðar að nýju, eftir að hafa verið lok- aðar síðan skellt var í lás í mars þegar veiran dreifðist um heiminn. Um helgina voru sýningarsalir Louis Vuit- ton-stofnunarinnar til að mynda opnaðir að nýju en þar eru settar upp sýningar á verkum kunnra samtíma- listamanna. Á opnunarsýningunni eru fjölbreytileg verk bandarísku listakonunnar Cindy Sherman. Hún hefur allan sinn feril unnið með sjálfsmyndir á eftir- tektarverðan og oft ögrandi hátt og er ofarlega á list- um sérfræðinga yfir áhrifamestu listamenn samtímans. Fyrsta og frægasta myndröð Sherman, Untitled Film Stills, var sýnd í Listasafni Íslands á Listahátíð 2010. AFP Stigið inn í heim Cindy Sherman Bresk-franski leikarinn Mich- ael Lonsdale er látinn, 89 ára að aldri. Margir minnast hans sem illmennisins Hugos Drax í James Bond- myndinni Moon- raker (1979). Þrátt fyrir að hafa leikið í mörgum vinsælum breskum kvikmyndum var Lonsdale einnig stjarna í frönskum myndum – hann lék í um 180 kvikmyndum og sjónvarpsþátt- um. Hann sló í gegn í tveimur myndum sem François Truffaut gerði 1968 og vakti alþjóðlega at- hygli í The Day of the Jackal (1973) sem Fred Zinnemann leikstýrði. Lonsdale, sem lék Hugo Drax, er allur Michael Lonsdale Rithöfundurinn Milan Kundera, sem fæddist í Tékklandi en flúði ógnarstjórn kommúnista í heima- landinu og settist að í Frakklandi, þar sem hann hefur búið í útlegð í meira en fjóra áratugi, hefur þeg- ið boð um að veita viðtöku Franz Kafka-verðlaununum. Um er að ræða ein helstu menningar- verðlaun sem veitt eru í Tékk- landi. Samkvæmt The Guardian þiggur hann verðlaunin „með ánægju“ og einkum vegna aðdáun- ar sinnar á verkum Kafka. Verðlaunin hlýtur höfundurinn, sem er orðinn 91 árs, einu ári eft- ir að hafa þegið full borgararétt- indi í Tékklandi að nýju. Verð- launahafinn er valinn af alþjóðlegri dómnefnd og segir for- maður hennar Kundera hljóta verðlaunin fyrir stórkostlegt fram- lag til tékk- neskrar menn- ingar. Kundera flúði Tékkóslóv- akíu árið 1975, eftir að hafa verið úthróp- aður af stjórn- völdum fyrir „andkomm- únískt athæfi“. Frá 1988 hefur Kundera skrifað allar sínar bækur á frönsku en Friðrik Rafnsson hefur þýtt þær á íslensku, þar á meðal hina vinsælu Óbærilegur léttleiki tilverunnar, Bókin um hlátur og gleymsku og Kveðjuvalsinn. Kundera sneri ekki aftur til Tékklands fyrr en árið 2008 en þá veitti hann viðtöku Tékknesku bókmenntaverðlaununum. Milan Kundera hlýtur Kafka-verðlaunin Milan Kundera Breytt veröld er yfirskrift haust- sýningar Grósku – félags mynd- listarmanna í Garðabæ. Sýningin verður opnuð í kvöld, miðvikudags- kvöld, klukkan 20 til 22 í Grósku- salnum á Garðatorgi 1 í Garðabæ. Í tilkynningu frá Grósku segir að nú séu tímar mikilla breytinga og túlka listamennirnir þær hver með sínum hætti í verkunum. Við opnunina syngur Sigurrós Arey Árnýjardóttir og spilar á hljómborð, myndlistarmennirnir verða á staðnum og boðið er upp á léttar veitingar. Gróska býður öll- um að koma og gleðjast með sér, Garðbæingum jafnt sem öðr- um, og hvetur jafnframt fólk til að gæta að sóttvörnum og fjarlægðar- mörkum. Vegna hinna óvenjulegu aðstæðna hef- ur starfsemi Grósku farið hljótt undanfarið „en listin hefur þó dafnað“ og afraksturinn má sjá á sýningunni. Haustsýning Grósku opnuð í kvöld Gunnar Júl. sýnir verk sem heitir „Trump flækjufótur forseti“. Undanfarin ár hefur Nýlistasafnið leitað til félaga safnsins og kallað eftir tillögum að haustsýningu. Markmiðið hefur verið að víkka sjóndeildarhring stjórnar og kynna fjölbreytileika íslenskrar mynd- listarsenu. Í tilkynningu frá stjórn- inni segir að í „kjölfar þeirrar ólgu sem hófst með sterku og þörfu ákalli svartra og blandaðra minnihlutahópa í Bandaríkjunum sem nú hefur ýtt við flestum kimum heimsins hefur runnið upp fyrir stjórn safnsins að við höfum ekki náð fyllilega að endurspegla þá fjöl- breyttu grósku sem einkennir listir og mannlíf hérlendis. Sem fyrsta skref í tilraun til að ýta undir fjöl- breytni og þátttöku allra hefur stjórn Nýló ákveðið að leita víðar í þessu árlega ákalli um sýningar- tillögur.“ Nú er leitað sérstaklega eftir hug- myndum að sýn- ingu frá „ein- staklingum og hópum hvers raddir hafa hingað til ekki fengið nægan hljómgrunn. Við hvetjum fólk af ólíkum uppruna og með ólíkan bakgrunn, hvort sem viðkomandi er aðili að Nýló eða ekki, til að senda inn til- lögu. Við leitum sérstaklega til hin- segin samfélagsins, Íslendinga með erlendan uppruna og blandaðra Ís- lendinga, aðfluttra Íslendinga og annarra sem finna sig á jaðrinum að deila með okkur sínum sjónar- hornum.“ Umsóknarfrestur rennur út 4. október. Nýló vill sýningartillögur úr jaðarhópum Í Nýlistasafninu. Gyða Valtýsdóttir, handhafi Tónlistarverðlauna Norður- landaráðs, heldur tónleika ásamt hljómsveit í Norður- ljósasal Hörpu í kvöld og hefjast þeir kl. 21. Tónleikarnir eru á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Yfirskrift tónleika Gyðu eru Epicycle. Í tilkynningu segir að á tónleikunum renni saman „ævafornt og nýtt, heillandi útsetningar Gyðu á tónlist tónskálda á borð við galdranunnuna Hildegard von Bingen og franska dul- hyggjumanninn Olivier Messiaen í bland við magnaða tónheima tónlistarfólks eins og Skúla Sverrissonar, Daníels Bjarnasonar, Kjartans Sveinssonar og Ólafar Arnalds sem ásamt fleirum eiga tónlist á nýrri plötu Gyðu, Epicycle II“. Gyða var einn stofnenda hljómsveitarinnar múm og hefur starfað með breiðum hópi listafólks úr ólíkum áttum, komið fram á tónleikum um víða veröld og samið kvikmyndatónlist. Tónleikar Gyðu á Listahátíð í kvöld Gyða Valtýsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.