Morgunblaðið - 23.09.2020, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2020
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Flugumferð um flugumsjónarsvæði
Íslands er tæplega þriðjungur af því
sem hún var á sama tíma árið 2019.
Bæði er um að ræða fragtflug og far-
þegaflug. Flugumferð á Schengen-
svæði Evrópu nálgast hins vegar um
50% af því sem hún var fyrir veiru-
faraldurinn, samkvæmt upplýs-
ingum frá Ásgeiri Pálssyni, fram-
kvæmdastjóra hjá Isavia.
Sem dæmi má taka að heildar-
flugumferð á flugstjórnarvæði Ís-
lands var um 540 ferðir 17. sept-
ember 2019 en 17. september
síðastliðinn fóru 197 vélar um svæð-
ið. Flugstjórnarsvæði Íslands er
gríðarstórt eða um 5,4 milljónir fer-
kílómetra og nær frá vesturhluta
Noregs að austurströnd Kanada og
frá norðurhluta Skotlands að norð-
urpólnum.
Átta fljúga til og frá Íslandi
Þegar eingöngu er einblínt á
flugferðir til og frá Íslandi þá voru
þær 47 hinn 17. september síðastlið-
inn en 197 á sama tíma fyrir ári.
Heildarflugumferð um Ísland er því
tæplega fjórðungur þess sem hún
var fyrir ári.
Inni í þessum tölum er farþega-
flug og fragtflug til Íslands. Átta
flugfélög hafa sinnt farþegaflugi til
Íslands og frá á undanförnum dög-
um en það eru Icelandair, Easy Jet,
Wizz Air, SAS, Air Baltic, Luft-
hansa, Air Greenland og Vueling.
Tæp 30% fara um flug-
stjórnarsvæði Íslands nú
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Átta fljúga til Íslands 47 vélar
flugu til og frá Íslandi á fimmtudag.
Um fjórðungur
til og frá Íslandi
Viðræður Sjálfstæðisflokks og
Framsóknar um meirihluta í sveit-
arstjórn í nýju sameinuðu sveitar-
félagi á Austurlandi, sem kennt
hefur verið við Múlaþing, munu
vonandi ekki taka langan tíma, að
sögn Gauta Jóhannessonar, odd-
vita D-lista Sjálfstæðisflokksins í
sveitarfélaginu.
Gauti segir að Sjálfstæðisflokk-
urinn og Framsóknarflokkurinn
eigi ýmislegt sameiginlegt hvað
varðar stefnu í nýju sveitarfélagi.
„Það sem blasir við er að
tryggja að við einhendum okkur í
það að þessi sameining og þessi
nýja stjórnsýsla virki sem skyldi.
Í Framsóknarflokknum er gríðar-
lega mikil reynsla. Þar er innan-
borðs fólk sem kom að undirbún-
ingi þessarar sameiningar. Við
horfum töluvert mikið til þeirrar
reynslu.“
Sjálfstæðisflokkurinn fékk fjóra
menn inn af ellefu í sveitarstjórn-
arkosningum sem fóru fram um
síðustu helgi. Þrír voru kosnir í
sveitarstjórn frá Austurlistanum,
tveir frá Framsóknarflokknum og
einn frá Vinstri grænum og einn
frá Miðflokknum.
Spurður hvort
ekki hefði verið
eðlilegra að
hefja formlegar
viðræður við
Austurlistann en
Framsókn, þar
sem Austurlist-
inn var næst-
stærstur, segir
Gauti:
„Ég veit ekki
hvað er eðlilegt og hvað ekki.
Þetta var niðurstaðan sem við
komumst að eftir að hafa lagst yf-
ir málin.“
Mun niðurstaða liggja fyrir
bráðlega?
„Ég vonast til þess að þessar
viðræður taki ekki langan tíma.
Við erum að einsetja okkur það að
nota næstu daga með það að
markmiði að klára málefnasamn-
ing sem fyrst.“
Gauti segir aðspurður að líklegt
sé að sveitarfélagið fái nafnið
Múlaþing. „Ég held að það verði
afskaplega erfitt að ganga fram
hjá eins ríkum vilja og kom fram í
skoðanakönnuninni sem var gerð,“
segir hann.
Hefja meiri-
hlutaviðræður
Þreifingar í sameinuðu sveitarfélagi
Gauti
Jóhannessom
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta er skemmtilegt að því leyti að
við erum að hverfa til upprunans og
svo kemur þetta sér vel fyrir Suður-
nesjabúa,“ segir Sigurður R. Ragn-
arsson, forstjóri ÍAV, en verktaka-
fyrirtækið varð hlutskarpast í útboði
bandaríska varn-
armálaráðuneyt-
isins á hönnun og
framkvæmdum
vegna flughlaða
og tengdra verk-
efna á öryggis-
svæðinu á
Keflavíkur-
flugvelli. ÍAV hét
áður Íslenskir að-
alverktakar og
vann eins og heit-
ið bendir til að framkvæmdum fyrir
varnarliðið á Keflavíkurflugvelli á
sínum tíma.
Útboðsferli þriggja tengdra verk-
efna hefur staðið yfir frá því sumarið
2019. Eftir forval var tilteknum
fjölda íslenskra og bandarískra
fyrirtækja heimilað að bjóða í verkið.
Tilboði ÍAV var tekið en það hljóðaði
upp á tæpar 39 milljónir bandaríkja-
dala, samkvæmt upplýsingum utan-
ríkisráðuneytisins, og samsvarar það
5,3 milljörðum króna. Var tilboðið
undir kostnaðaráætlun bandaríska
varnarmálaráðuneytisins en heildar-
fjárheimild bandaríska þingsins
hljóðaði upp á 57 milljónir dala. Ut-
anríkisráðuneytið kveðst ekki hafa
upplýsingar um önnur tilboð eða
fjárhæðir og vísar á varnarmála-
ráðuneytið bandaríska.
Verkefnin eru þrjú og fjármagna
bandarísk stjórnvöld þau að fullu.
Þau felast í hönnun og verkfram-
kvæmdum við stækkun á flughlaði á
öryggissvæðinu, færanlegar gisti-
einingar og færslu á flughlaði fyrir
hættulegan farm.
Hönnun hefst fljótlega
Sigurður segir að fljótlega verði
hafin vinna við hönnun á þessum
framkvæmdum og reynt verði að
hefja þær í vetur en það sé háð sam-
þykki verkkaupa en allavega verði
vinnan komin í fullan gang á kom-
andi vori. Áætluð verklok eru í febr-
úar 2023.
Ekki liggur fyrir hvað þarf að
bæta við miklum mannskap en Sig-
urður segir ljóst að verkefnið sé mik-
ilvægt fyrir Suðurnesjabúa þar sem
atvinnuleysi er mikið. Suðurnesin
séu heimavöllur ÍAV og fyrirtækinu í
hag að ráða heimamenn í störf. Hann
getur þess að ÍAV sé að ljúka verki
fyrir sama aðila við endurnýjun á
flughlöðum og akbrautum svo þetta
verk geti orðið framhald af því.
Aftur á heimavelli
Fyrirtækið Íslenskir aðalverktak-
ar var stofnað árið 1954 til að taka við
verkefnum fyrir varnarliðið af amer-
ískum verktökum sem setið höfðu að
vinnu þar. Hafði fyrirtækið einkarétt
á þessum verkefnum, ásamt Kefla-
víkurverktökum, í áratugi eða fram á
níunda áratug síðustu aldar þegar
einkarétturinn var afnuminn og fyr-
irtækjunum jafnframt leyft að sækja
sér verkefni á innlendum verktaka-
markaði. Verkefnin á Keflavíkur-
flugvelli þurrkuðust síðan upp þegar
varnarliðið fór en eru aðeins farin að
aukast aftur vegna breyttrar áherslu
Bandaríkjamanna í alþjóðamálum.
Unnið hefur verið að ýmsum verk-
efnum á vegum Bandaríkjamanna á
öryggissvæðinu, öðrum en þeim sem
ÍAV annast. Þannig er ítalskur verk-
taki að endurbæta flugskýli 831.
Verklegar framkvæmdir á öryggis-
svæðinu auk umfangsmikillar upp-
færslu ratsjárkerfa og kerfisbúnaðar
í stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins
á Keflavíkurflugvelli, á árabilinu
2018 til 2023, kosta um það bil 21,5
milljarða króna, samkvæmt upplýs-
ingum utanríkisráðuneytisins.
Morgunblaðið/Eggert
Verkefni ÍAV er að skila af sér stóru verki á öryggissvæðinu, endurbótum á flughlöðum og akbrautum.
Skemmtilegt að
hverfa til upprunans
ÍAV hreppti stórverk á öryggissvæði á Keflavíkurflugvelli
Sigurður R.
Ragnarsson
Forsendunefnd Alþýðusambands Ís-
lands og Samtaka atvinnulífsins kem-
ur saman til fundar í dag en nefndin
hefur nú til umfjöllunar hvort samn-
ingsforsendur lífskjarasamninganna
hafi staðist. Þurfa fulltrúar viðsemj-
endanna í nefndinni að tilkynna fyrir
lok september hvort forsendurnar
halda.
Formenn allra aðildarfélaga og
sambanda ASÍ komu saman til fund-
ar í gær til að ræða stöðuna og hvort
tilefni sé til uppsagnar samninganna.
Verði þeim sagt upp á grundvelli for-
sendubrests kemur ekki til umsam-
inna launahækkana um næstu ára-
mót.
Forystumenn sem rætt var við í
gær vörðust allra frétta af umræðun-
um. ,,Við vorum bara að ráða ráðum
okkar. Það var ekkert ákveðið á þess-
um fundi,“ sagði Drífa Snædal, forseti
ASÍ, að loknum formannafundinum í
gær. Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, sagðist
persónulega vera þeirrar skoðunar að
lífskjarasamningurinn hefði skilað
launafólki mjög góðum ávinningi.
„Það hefur allt gengið upp í samn-
ingnum hjá okkur, lág verðbólga og
lægra vaxtastig. Það eru mikil verð-
mæti fólgin í þessum samningi. Þar af
leiðandi leggst ég eindregið gegn því
að samningnum verði sagt upp,“ sagði
Vilhjálmur. omfr@mbl.is
Verkalýðsforingjar
réðu ráðum sínum
Morgunblaðið/Hari
Undirritun Lífskjarasamningarnir
voru gerðir í apríl á síðasta ári.
Formaður
VLFA er á móti
uppsögn samninga