Morgunblaðið - 23.09.2020, Page 18

Morgunblaðið - 23.09.2020, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2020 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Atvinnuauglýsingar Blaðberar Upplýsingar veitir  í síma  Morgunblaðið óskar eftir blaðbera   k Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 8.30-12.30, nóg pláss. Stólaleik- fimi í Hreyfisalnum kl. 9.30. Jóga 60+ með Grétu kl. 12.15 og 13.30. Söngstund við píanóið með Helgu kl. 13.45. Kaffi kl. 14.30-15. Bóka- spjall með Hrafni kl. 15. Nánari upplýsingar í síma 411-2702. Allir vel- komnir. Við minnum jafnframt alla gesti á að virða þær reglur og fjarlægðartakmörk sem gilda vegna Covid 19. Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12 og léttur hádegisverður á eftir gegn vægu gjaldi. Opið hús, félagsstarf fullorðinna, í safnaðar- heimilinu kl. 13 til 16. Söngur og spjall. Kaffi í boði kirkjunnar. Allir hjartanlega velkomnir. Árskógar Opin vinnustofa kl. 9-12. Opin smíðastofa kl. 9-15. Stóla- dans með Þóreyju kl. 10.30. Spænskukennsla kl. 14. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Innipútt Skógarmanna kl. 13-14. Spænsku- kennsla kl. 14. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. S. 411-2600. Boðinn Hádegismatur kl. 12.30-12.30. Handavinna kl. 12.30. Mið- dagskaffi kl. 14.30-15.30. Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í handavinnustofu kl. 10. Námskeið í tálgun kl. 9.15-11.45. Spiladagur, frjáls spilamennska kl. 12.30-15.50. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15. Eigum ennþá laus pláss í myndlist, upp- lýsingar í síma 535-2760. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring- borðið kl. 8.50-11. Skráning á þátttökulista fyrir vetrarstarfið er á skrif- stofunni kl. 8.50-16. Línudans kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Söngur kl. 13.30-14.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Garðabær Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Leir í Smiðju kl. 13. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.30 og 17.15. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45-15.15. Gerðuberg 3-5 Kl. 8.30-16 opin handavinnustofa, kl. 9-12 útskurður með leiðbeinanda (Grænagróf), kl. 11 leikfimi Helgu (Háholt), kl. 12.30-15 Döff félag heyrnarlausra (Lágholt), kl. 13-16 útskurður / pappamódel með leiðbeinanda. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 postulínsmálun, heitt á könnunni kl. 9 til 16. Guðríðarkirkja Félagsstarf eldri borgara miðvikudaginn 23. septem- ber: kl. 13 helgistund í kirkjunni, fyrirbænir og söngur. Kaffiveitingar kr. 700.- Davíð Ólafsson söngvari og fasteignasali heimsækir okkur og fer með gamanmál og syngur. Hlökkum til að sjá ykkur. sr. Karl, sr. Leifur Ragnar, Hrönn og Lovísa. Gullsmári Myndlist kl. 9, postulínsmálun og silfursmíði kl. 13, línu- dans kl. 14. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Útskurður og tálgun með leiðbeinanda frá kl. 9-12, 500 kr. dagurinn, allir velkomnir. Hádegismatur kl.11.30–12.30, dansleikfimi kl. 13–13.45. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Framhaldssaga kl. 10.30. Handavinnuhópur kl. 13-16. Spilað kl. 13. Korpúlfar Gönguhópar kl. 10, gengið frá Borgum og kaffispjall á eftir. Lagt af stað í ferðina um Suðurstrandir kl. 9 í dag, Emil Örn farastjóri, þátttökugjald 7.000 kr. greiðist í rútunni, áætluð heimkoma kl. 17. Qigong með Þóru í Borgum kl. 16.30 í dag, allir hjartanlega vel- komnir í ókeypis prufutíma. Seltjarnarnes Gler og bræðsla á neðri hæð Félagsheimilisins kl. 9 og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Botsía Skólabraut kl. 10. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timburmenn í Valhúsaskóla kl. 13. Handavinna, sam- vera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13. Ath. breyttan tíma hjá Bónusbílnum; frá Skólabraut kl. 14.50 og til baka frá Bónus kl. 15.50. Munum að fylgja sóttvarnarleiðbeiningum. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur hitt- ist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30. Allir velkomn- ir. Síminn í Selinu er 568-2586. með morgun- nu ✝ Valgerður Guð-mundsdóttir fæddist á Böðmóðs- stöðum í Laugardal 10. janúar 1927. Hún lést á Hrafn- istu í Reykjavík 13. september 2020. Foreldrar henn- ar voru Guðmundur Ingimar Njálsson, bóndi á Ketilvöllum og Böðmóðsstöðum, f. 10. júlí 1894, d. 18. nóvember 1971, og Karólína Árnadóttir húsfreyja, f. 20. nóvember 1897, d. 25. mars 1981. Systkini Val- gerðar eru Guðbrandur, f. 1919, d. 1919, Guðbjörn, f. 1920, d. kennari, f. 1950, d. 2008, maki Ragnar Kærnested flugvirki, f. 1945. Börn þeirra eru Bylgja, Örvar og Dröfn. Þau eiga þrjú börn hvert. 2) Flosi múr- arameistari, f. 1956, d. 2008. Synir hans eru Hólmgeir Elías og Valgeir Ólafur. Hólmgeir Elí- as á tvær dætur og tvær stjúp- dætur. Valgeir Ólafur á tvö börn. 3) Vörður húsasmíðameistari, f. 1961, maki Svanborg Gústafs- dóttir matartæknir, f. 1959. Dæt- ur þeirra eru Arna, Björk og Birna. Arna á þrjú börn og Björk tvo syni og eina stjúpdóttur. 4) Harpa hagfræðingur, f. 1965. Synir hennar og fyrrverandi maka eru: Agnar og Egill. Fyrir átti Ólafur dótturina Lilju, fyrr- verandi forstjóra, f. 1943. Sonur Lilju er Gaukur og á hann eina dóttur. Útför Valgerðar fer fram frá Háteigskirkju 23. september 2020 kl. 11. 1999, Ólafía, f. 1921, d. 2011, Að- alheiður, f. 1922, Kristrún, f. 1924, d. 1994, Sigríður, f. 1925, d. 2017, Fjóla, f. 1928, d. 2011, Lilja, f. 1928, d. 2018, Njáll, f. 1929, d. 2004, Ragnheið- ur, f. 1931, Árni, f. 1932, d. 2019, Guð- rún, f. 1933, d. 1974, Herdís, f. 1934, d. 2018 og Hörð- ur, f. 1936. Maki Valgerðar var Ólafur Hólmgeir Pálsson, f. á Sauðanesi á Ásum 7. júlí 1926, d. 4. janúar 2002. Börn þeirra eru: 1) Sigrún Nú er húna amma Valla búin að kveðja þennan heim en eftir sitja góðar stundir og minningar sem við bræður eigum. Það var alltaf mikið tilhlökkun- arefni þegar amma kom í heim- sókn til að gera flatkökur og þá var fræga hellan hennar alltaf með í för. Hún var með sérstaka gúmmí- hanska þegar hún hnoðaði deigið, síðan var sérstök tuska notuð til að leggja á flatkökurnar þegar þær voru bakaðar á hellunni. Síðan er minnisstætt þegar farið var í hádegismat til hennar en þá var oft á boðstólunum grjónagraut- ur með slátri og frægu flatkökun- um en hún amma vildi alltaf passa upp á allir fengju nóg að borða. Eftir matinn var oft tekið í spil, bæði ólsen-ólsen, rommí og veiði- mann þar sem oft var mikið hlegið. Amma var mjög iðjusöm og vildi gjarnan hafa eitthvað fyrir stafni og var hún alltaf með eitthvað á prjónunum. Minnisstæðastar eru grifflur sem húna prjónaði fyrir veiðiferðirnar. Þá bjó amma til bolluvendi sem hún seldi í bakarí- um og síðan bjó amma til endur- skinsmerki með Sigrúnu frænku. Stundum fórum við í gistingu til ömmu og þá var oftast kjúklingur í boði með frönskum og majó- neshrásalati og tók hún kjúkling- inn í sundur með sérstökum klipp- um. Við eigum góðar minningar þeg- ar farið var í bústaðinn Hamrakot til ömmu og afa. Þá var stundum farið í berjamó eða að veiða. Við munum meira að segja einu sinni eftir því þegar við veiddum í gegn- um ís og amma sat á snjóþotu. Elsku amma, takk fyrir allar góðu stundirnar og skemmtilegu ævintýrin. Agnar og Egill. Elsku amma okkar Valgerður, eða amma Valla eins og hún var alltaf kölluð, er nú fallin frá. Amma ólst upp í stórum systkinahópi en þau voru fjórtán sem komust á legg en fæddust fimmtán á sextán árum, sem verður að teljast hálf- ótrúlegt. Amma var náin systkin- um sínum alla tíð og það var gaman að heyra sögur af lífi þeirra á Böð- móðsstöðum þar sem mörg voru verkin á stóru heimili. Við fengum tækifæri til að upplifa brotabrot af því þegar amma tók sig til og gerði flatkökur og kleinur með okkur í tuga- eða hundraðatali. Flatköku- staflarnir voru jafnvel sendir á milli landa þegar við systkinin bjuggum erlendis. Amma var mjög lagin í höndunum og hafði gaman af því að prjóna. Amma sagði okk- ur sögur af því hvernig þær systur hefðu prjónað meðan gengið var á milli bæja. Hún prjónaði, heklaði og saumaði á börnin sín og barna- börn og síðast á dúkkur barna- barnanna. Hún sat enn við handa- vinnu jafnvel eftir að sjónin var farin að bregðast henni. Amma og afi, meðan hann lifði, skipuðu stóran sess í tilveru okkar sem börn. Það fól meðal annars í sér tíðar heimsóknir til þeirra á Háaleitisbrautina þar sem ávallt var boðið upp á heimabakað brauð, kleinur og annað góðgæti sem amma gerði. Amma Valla bauð iðu- lega upp á saltfisk og grjónagraut áður en hópurinn fór á hestbak með afa en það var afar vinsælt, sérstaklega þó grjónagrauturinn. Amma var mjög barngóð og það var oft sem við fórum í gistingu og þá mátti gera alls konar sem var ekki í boði heima. Amma Valla hafði alla tíð ánægju af því að vera í kringum fjölskylduna sína og ef það var líf og fjör þá naut amma sín vel. Hún hafði gaman af því að syngja og það var ótrúlegt hvað hún kunni af lögum enda hafði mikið verið sung- ið á Böðmóðsstöðum hjá þeim systkinum. Amma eignaðist fjögur börn en missti á einu ári tvö þeirra fyrir tólf árum og það var henni mjög þung- bært. Hún mætti því þó af æðru- leysi og hélt áfram lífinu eins og henni var einni lagið. Hún var já- kvæð að eðlisfari og þakklát fyrir allt sem gert var fyrir hana. Elsku amma, hvíl þú í friði og við þökkum samfylgdina. Vertu nú yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. Þín barnabörn, Bylgja, Örvar og Dröfn. Elskuleg ömmusystir mín Val- gerður Guðmundsdóttir frá Böð- móðsstöðum er látin. Valgerður frænka mín var einstaklega ljúf og skemmtileg kona og alltaf var stutt í stríðnina hjá henni. Þegar ég var lítill strákur var mikil samgangur á milli okkar. Vörður sonur hennar og fjölskylda bjuggu í næstu götu við okkur fjölskylduna í Fannafold- inni og lék ég mér ásamt Herdísi systur minni við þær Örnu og Björk, dætur Varðar og Svanborg- ar. Valgerður ömmusystir var þá oft ekki langt undan. Mér er líka afar minnisstætt á öllum jólaböll- um í ættinni, að alltaf vildi hún vita hvað væri að frétta af okkur systk- inunum. Svona var Valgerður, hún vildi öllu sínu frændfólki vel. Mér er það líka einkar minnisstætt þeg- ar Valgerður lék úlfinn í Rauðhettu og úlfinum á ættarmóti 1994 og átti að éta ömmu gömlu, sem var leikin af Guðbirni frænda. Já, það var stutt í glens og grín hjá þeim Böð- móðsstaðasystkinum. Lífið var ekki alltaf dans á rósum hjá elsku- legri frænku minni enda lenti hún í því sem engin móðir á að þurfa að lenda í, en það var að sjá á bak tveimur börnum sínum langt um aldur fram. Með Valgerði er farin ein í viðbót af þeim Böðmóðsstaða- systrum, mikill kvenskörungur sem gerði lífið svo skemmtilegt og fallegt. Ég kveð þig elsku ömmu- systir mín með söknuð í hjarta. Blessuð sé minning Valgerðar Guðmundsdóttur. Elsku Harpa, Vörður og fjöl- skylda, ég sendi ykkur mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Hvíl í friði. Hinsta kveðja, Vilhjálmur Karl Haraldsson. Elsku Valla mín. Það er alltaf sárt að heyra þegar nákomnir falla frá en samt er hægt að gleðjast þegar almættið ákveður að kalla til sín yndislega konu sem hefur lifað langa og farsæla ævi og veita henni hvíld. Hún var orðin lúin en samt svo kát og hress og til í að syngja og skemmta sér. Valla á stóran hlut í bernsku minni. Móðir mín þurfti að vinna mikið, sérstaklega fyrir jólin, og þá var gott að eiga hauk í horni þar sem Valla og móðurbróðir minn Óli voru. Þau opnuðu heimili sitt upp á gátt fyrir stelpukríli sem þurfti samastað í annríki aðventunnar. Og ég var svo sannarlega velkom- in. Kærar minningar streyma fram þegar horft er til baka til þeirra tíma þegar þau hjónin bjuggu í Bogahlíðinni og sosum líka á Háa- leitisbrautinni. Gott var að hitta Sigrúnu sem var árinu eldri en ég og við gátum leikið okkur enda- laust. Ég minnist þess að hafa vaknað þegar Valla gekk hljóðlega um barnaherbergin og setti sæl- gætismola í skó barna sinna og auðvitað minn líka. Svo snaraðist ég eldsnemma á fætur, löngu á undan hinum, og nældi mér í sæl- gætið úr öllum skóm, alsæl og ánægð. En Valla mín reddaði þessu, hún bara plataði börnin pínulítið og kom fyrir mola í stað hinna horfnu. Elsku Valla mín var alltaf svo glöð þegar við hittumst, henni fannst hún eiga mig með múttu. Og það var vel þegið eign- arhald. Valla og Óli eignuðust fjögur börn sem veittu þeim sanna lífsfyll- ingu. En sorgin er aldrei langt und- an og hún knúði dyra hjá Völlu minni þegar hún missti tvö börn, Flosa og Sigrúnu, fyrir tólf árum. Þá reyndi verulega á og erfitt var að halda í jákvæðnina og létta lund. En hún var sterk kona og lét engan bilbug á sér finna. Af öllu hjarta þakka ég Völlu minni samfylgdina gegnum lífið og vildi óska að ég hefði hitt hana oft- ar. En vonandi hittumst við bara hinum megin þegar tími er til kom- inn. Megi endurfundir við Óla, Sig- rúnu og Flosa verða gleðilegir þarna fyrir handan. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Brynja Baldursdóttir. Valgerður Guðmundsdóttir Elsku mamma mín, bless í bili. Við sjáumst aftur og ég veit að þú verður í móttökunefndinni minni þegar ég kem eins og við ræddum, ég hlakka til að sjá þig. Sambandið okkar byrjaði á öðruvísi nótum, en það hafði ekk- ert með okkur að gera, við urðum bæði fyrir umhverfisslysum og mengunin sem réð för til að byrja með. Það skilgreindi þó hvorki okkur né okkar samband. Það sem skilgreindi okkur var að við stóð- um bæði upp og hreinsuðum af okkur mengunina og náðum að vera við. Það var ómetanlegt og vá hvað við erum falleg, vorum það Sif Ingólfsdóttir ✝ Sif Ingólfsdóttirfæddist 26. jan- úar 1941. Hún lést 14. september 2020. Útför Sijfar fór fram 21. september 2020. reyndar ávallt líkt og við öll. Árin sem við átt- um eftir heilun okk- ar voru stórkostleg og ég mun alltaf varðveita þau innst í mínu hjarta. Margar ómetanleg- ar minningar og ég varð fyrir vikið að betri manni, föður, afa og maka. Við hlógum, grétum, pældum og rökræddum allar hliðar mann- legrar tilveru, sönn vinátta. Mamma, við vorum perluvinir sem ekkert skilur að, hvort sem það er þessa heims eða annars. Eitt sterkasta einkennið okkar var að við stóðum alltaf saman í öllu, sama hvað. Við vorum svo tengd að stundum hringdir þú og spurðir: Jæja, hvað var í gangi í gær? Ég fann umhyggjuna og brosið í gegnum símann. Það var orðið þannig að ef eitthvað var í gangi þá hringdi ég í þig og sagði þér hvað það var og að það væri allt í lagi með alla og síðan skelli- hlógum við. Hvernig þú gast gert litla hluti að stórum í huga barnanna minn var magnað og margar góðar minningar sem ferðast með þeim áfram í þeirra lífi. Takk innilega fyrir þig elsku mamma, við sjáumst síðar. Þinn sonur og vinur, Ingólfur. Komið er að kveðjustund. Það er alltaf jafn sárt þegar kallið kemur jafnvel þótt það hafi verið vitað að hverju stefndi. Elskuleg Sif okkar hefur kvatt þennan heim. Farin yfir í sumarlandið þar sem henni hefur verið vel fagnað af vinum sem farnir eru á undan. Við vorum svo heppin á Núpi að fá hana í fjölskylduna. Hún kom fyrst sex ára og átti að dvelja í hálfan mánuð en endaði með því að vera í tíu sumur ásamt ótelj- andi helgarfríum og varð svo sannarlega ein af okkur. Alltaf var tilhlökkunarefni þegar von var á henni í sveitina, jákvæð, glöð og skemmtileg stelpa, dugleg og mik- ill dýravinur. Naut hún hverrar stundar. Hún hafði mjög gaman af söng og var oft tekið lagið og sungið raddað þegar vel lá á okk- ur. Hún kunni líka að spila á gítar og það fannst okkur hinum alveg snilld. Sif átti rætur í Reykjavík og þar fundu þau hvort annað Hörð- ur og hún. Þau giftu sig og stofn- uðu heimili, þar sem gott var að koma. Þau eignuðust tvö börn, Ástu og Ingólf, og lífið brosti við þeim. Þau voru dugleg að skapa sér störf, hugmyndarík og dug- andi. Höfðu lag á að láta fólki líða vel sem leitaði til þeirra og gátu leyst alls konar vandamál og verð- ur margt af því aldrei fullþakkað. Við þökkum elskulegri Sif fyrir allt það sem hún var okkur og biðjum henni Guðs blessunar. Elsku Ásta, Ingólfur og fjöl- skyldur, innilegar samúðarkveðj- ur og góður Guð styðji ykkur og styrki. F.h. fjölskyldunnar frá Núpi, Sigríður Guðmundsdóttir (Sigga systir).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.