Morgunblaðið - 23.09.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2020
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐ
ÞÉR AÐ
KOSTNAÐAR-
LAUSU
Ertu að byggja eða þarf að
endurnýja gamla glerið?
Það skiptir miklu máli að velja einangrunargler sem
reynist vel við íslenskar aðstæður.
Fáið tilboð hjá Glerborg í Mörkinni 4 eða
á heimasíðunni okkar WWW.GLERBORG.IS
Hótel leyfa sér gjarnan að bjóðaupp á enskan morgunverð,
jafnvel hótel sem staðsett eru utan
Englands og líka í þeim tilfellum
þar sem hótelin taka með nafngift-
inni enga sérstaka afstöðu til Eng-
lands eða annarra hluta yfir-
ráðasvæðis Elísabetar drottningar.
Fólk á það líka tilað tala um
franska kossa án
þess að telja sig
með því vera að
lýsa sérstakri af-
stöðu til franskrar
menningar eða
háttsemi enda al-
mennt viðurkennt
að ekki séu allir eins, hvorki innan
landamæra Frakklands né annars
staðar.
Þá kemur það fyrir að atburðireru kenndir við einstök ríki,
jafnvel neikvæðir atburðir, og jafn-
vel kenndir við ríki sem komu at-
burðunum ekki við og er Tyrkja-
ránið þekkt dæmi um þetta.
Ennfremur er þekkt að veirurog veikindi séu kennd við
lönd eða landsvæði, svo sem
spænska veikin, sem hafði lítið með
Spán að gera, og MERS-kórónu-
veiran, kennd við Mið-Austurlönd.
Nýju kórónuveiruna finnst sum-um þrátt fyrir þetta að megi
ekki kenna við upprunaborgina,
Wuhan, eða upprunalandið, Kína.
Það er nýstárleg viðkvæmni.
Nýjasta dæmið um þessa við-kvæmni er svo að fundið var
að því að sóttvarnalæknir skyldi
kenna afbrigði veirunnar, sem
tveir franskir ferðamenn báru
hingað til lands og dreifðu með
óábyrgum hætti, við Frakkland. Er
þetta virkilega aðfinnsluvert?
Þórólfur
Guðnason
Wuhan-veiran og
ofurviðkvæmnin
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Segja má að skollið sé á verðstríð á þremur sjálfs-
afgreiðslustöðvum olíufélaganna á Akureyri. Atl-
antsolía tilkynnti á mánudag um lækkun á bensín-
lítranum niður í 185,5 krónur á stöð sinni við
Baldursnes. Dísillítrinn fór niður í 181,5 krónur.
Er þetta sama verð og Atlantsolía hefur boðið við-
skiptavinum sínum í Kaplakrika.
Í kjölfarið brugðust Orkan og ÓB við á Akureyri
og lækkuðu sitt eldsneytisverð; Orkan á Mýrar-
vegi og ÓB við Hlíðarbraut. Eru félögin þrjú nú
með verðið á sömu slóðum og hefur viðgengist á
stöðvum á höfuðborgarsvæðinu í nágrenni við
Costco í Garðabæ. Þar hefur lægsta verðið verið í
boði á stöðvum sem krefjast ekki afsláttarkorta
eða lykla.
Líkt og víða annars staðar var Orkan á Akur-
eyri með lítraverðið tíu aurum lægra en annars
staðar. Til samanburðar við þessar þrjár stöðvar í
bænum var almennt verð á bensíni hjá Orkunni á
Hörgárbraut 215,6 krónur og hjá Atlantsolíu á
Glerártorgi og ÓB á Sjafnargötu 215,7 krónur. Þá
var lítraverð hjá N1 á Akureyri 214,9 krónur, mið-
að við stöðuna síðdegis í gær.
Verðstríð í bensíni á Akureyri
Verð á þremur stöðvum
svipað og hjá Costco
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Olíufélögin Nú býðst Eyfirðingum og lengra
komnum lægra eldsneytisverð á Akureyri.
Stoppistöð Strætó við Hádegismóa í
Árbæjarhverfi í Reykjavík hefur nú
loks fengið skýli á ný. Hefur bið-
stöðin verið án skýlis frá því í nóv-
ember sl., en þá var hún færð úr
hringtorgi og inn á götu vestan við
torgið. Ástæða þess er sú að óheim-
ilt er samkvæmt umferðarlögum að
stöðva ökutæki á hringtorgi.
Þegar upp komst um ólögmæti
stoppistöðva í hringtorgum þurfti
Strætó að loka biðstöðvum, m.a.
þeirri sem stendur við Hagatorg í
Vesturbæ Reykjavíkur. Í kjölfarið
urðu hringtorg mikið til umræðu,
einkum eftir að Reykjavíkurborg
ákvað að skilgreina Hagatorg sem
„óhefðbundið“ hringtorg. Í júní sl.
nýtti borgin sér svo sérákvæði í um-
ferðarlögum til að heimila notkun
stoppistöðvarinnar á ný. Sama
ákvæði var þó ekki notað til að
opna biðstöðina við Hádegismóa.
„Það liggur minna undir. Þessi
biðstöð er mun minna notuð, hún er
nær þjóðvegi og þarna er gjarnan
meiri hraði,“ segir Guðbjörg Lilja
Erlendsdóttir, yfirverkfræðingur á
umhverfis- og skipulagssviði. Þá
segir hún ekki gert ráð fyrir bið-
stöð á þessum stað í framtíðar-
leiðakerfi Strætó. khj@mbl.is
Biðstöðin fær loks skýli
Morgunblaðið/Kristján H. Johannessen
Stopp Þeir sem taka vilja strætó við Hádegismóa geta skýlt sér fyrir veðri.