Morgunblaðið - 23.09.2020, Side 10

Morgunblaðið - 23.09.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2020 pinnamatur Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitinbgatrnar þínar. Pinna og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, tilbúið fyrir veisluborðið Fagnaðir Hólshraun 3 · 220 Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Mikill umsnúningur til verri vegar hefur átt sér stað í rekstri stærstu sveitarfélaga landsins á tímum veirufaraldursins og voru heildar- tekjur fjögurra af fimm stærstu sveitarfélögum landsins í A-hluta rekstrar 1,6% lægri á fyrri hluta árs- ins en á sama tíma í fyrra. Þetta er lækkun um 3,9% ef reiknað er á föstu verðlagi. Rekstrarafgangur í fyrra hefur snúist yfir í verulegan halla. Skuldir og skuldbindingar þessara fjögurra sveitarfélaga voru komnar í 223 milljarða króna í lok júní sl. og höfðu þá hækkað um 10,2 milljarða kr. frá áramótum. Samband íslenskra sveitarfélaga birti í gær þessar upplýsingar úr árshlutauppgjörum fjögurra af fimm stærstu sveitarfélögunum, þ.e.a.s. Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnar- fjarðar og Akureyrar. Í þeim búa nær 220 þúsund manns eða tæplega 60% landsmanna. Þegar heildar- tekjur þeirra eru skoðaðar kemur í ljós að tekjufallið er mest í Reykja- víkurborg, eða um 2,6%, og er það sagt skýrast ekki síst af samdrætti í sölu byggingarréttar. Á hinn bóginn hafa skatttekjur þriggja af þessum fjórum sveitar- félögum hækkað lítillega á fyrri hluta ársins eða um 0,7%. Í Hafnar- firði lækkuðu skatttekjurnar örlítið frá í fyrra. Skatttekjur Akureyrar- bæjar hækkuðu um 3,2% á fyrstu sex mánuðum ársins. Veltufé frá rekstri á fyrri helmingi ársins er 64% minni en á sama tíma í fyrra. Framlög sem sveitarfélögin hafa fengið úr Jöfnunarsjóði hafa lækkað vegna lægri tekna sjóðsins af skatt- tekjum ríkissjóðs og kemur það þyngst niður á Kópavogsbæ þar sem framlögin hafa lækkað um 13%. Útgjöld sveitarfélaganna hafa hækkað verulega, samtals um 4,3 milljarða á fyrri hluta ársins eða um 4,6% og vega þar launahækkanir þungt en laun og tengd gjöld hafa aukist um 6,7% á fyrri helmingi yfir- standandi árs. „Launakostnaður hækkar mest hjá Reykjavíkurborg, um 7,6%, en minnst á Akureyri um 4,1%,“ segir í umfjöllun Sambands ísl. sveitarfélaga. Á fyrri hluta seinasta árs skiluðu sveitarfélögin fjögur 2,3 milljarða kr. rekstrarafgangi en nú hefur staðan versnað mikið eins og fyrr segir ef litið er á heildarniðurstöðuna og snú- ist yfir í halla upp á 3,6 milljarða kr. Þetta er viðsnúningur sem nemur 5,9 milljörðum króna á einu ári. Missa 10 til 15 milljarða Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir sveitarfélögin á landinu hafa orðið fyrir gríðarlegu tekjufalli og mikilvægt sé fyrir þau að ná góðri niðurstöðu í yfirstandandi viðræðum við ríkið um með hvaða hætti ríkið geti stutt við þau mikilvægu verkefni sem sveitarfélögin sinna. Fundi sem halda átti um þessi mál í hádeginu í gær var frestað vegna veikinda og er vonast til að samtölin milli ríkis og sveitarfélaga geti hald- ið áfram í dag en boðað er til fundar í svonefndri Jónsmessunefnd í dag. „Við erum í miklum samskiptum við ríkisvaldið um með hvaða hætti við getum í sameiningu séð til lands. Við erum að horfa til margra hluta, almenns framlags til að mæta tekju- falli eins og t.d. af útsvarinu en þar sýnist mér að sveitarfélögin séu að missa 10 til 15 milljarða,“ segir Aldís. Þá eru ótaldar margvíslegar aðrar tekjur sveitarfélaganna sem hafa dregist saman. Komið hefur fram að framlög í Jöfnunarsjóð sveitarfélag- anna verði fjórum milljörðum króna minni en sveitarfélögin höfðu gert ráð fyrir. Að sögn Aldísar blasir því við mikið tekjutap og á sama tíma eigi sér stað veruleg aukning út- gjalda. Launahækkanirnar sem samið hefur verið um eru mjög mikl- ar þar sem laun eru að hækka um 6,7% á árinu. Ganga þarf frá samkomulagi við ríkið fyrir mánaðamót Hafa þarf hraðar hendur því ríkis- stjórnin þarf að leggja fram endur- skoðaða fjármálastefnu, fjármála- áætlun og fjárlagafrumvarp næsta árs þegar þing kemur saman 1. októ- ber. Aldís bendir á að lögin um op- inber fjármál kveði á um að þá þurfi að vera búið að ganga frá samkomu- lagi milli ríkis og sveitarfélaga um fjármálahlið rekstrar beggja aðila. ,,Ég lít þannig á að við höfum þessa viku og mögulega næstu til þess að ná lendingu um með hvaða hætti rík- isstjórnin ætlar að vernda þessa þjónustu sem sveitarfélögin eru að sinna.“ Skuldir jukust um 10,2 milljarða  Fjárhagsstaða fjögurra af stærstu sveitarfélögunum hefur versnað til muna á árinu  Útgjöld jukust um 4,3 milljarða  Tekjufallið mest í Reykjavíkurborg  Launakostnaður hækkaði þar um 7,6% Morgunblaðið/Eggert Akureyri Fjárfestingar í sveitarfélögunum drógust saman um 18,9%. Úr rekstrarreikningi stærstu sveitarfélaganna Kennitölur, hlutföll af tekjum á tímabilinu janúar til júní 2019 og 2020 Skuldir og skuldbindingar námu í lok júní 2020 alls 223 ma.kr. og hækkuðu um 10,2 ma.kr. frá áramótum Allar tölur eru í prósentum Reykjavík Hafnarfjörður Kópavogur Akureyrl 2019 2020 2019 2020 2019 2020 2019 2020 Rekstrar- niðurstaða 2,9 -5,1 1,9 -1,3 -1,9 -5,9 -5,9 -3,4 Skuldir og skuldbindingar* 89,9 97,4 130,5 135,7 158,5 166,3 101,6 111,9 Veltufé frá rekstri 10,8 3,1 6,7 3,2 8,2 4,3 2,3 -1,6 Handbært fé frá rekstri 5,5 -1,1 13,8 3,3 14,3 -5,3 8,8 7,9 *Miðað við heilsárstekjur. Heimild: Samband íslenskra sveitarfélaga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.