Morgunblaðið - 23.09.2020, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 23.09.2020, Qupperneq 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2020 Aðalstræti 2 | s. 558 0000 Milli 17:00–19:00 af völdum drykkjum og réttum HAPPY HOUR Lagasmíðar Steinunnar Arnbjargar Stefánsdóttur verða í fókus á tón- leikum Nordic Affect í Menningar- húsinu Mengi við Óðinsgötu klukkan 21 í kvöld, miðvikudagskvöld. Í til- kynningu segir að í ljóðum tón- skáldsins, sem fá að hljóma, bregði meðal annars fyrir ást, naglalakki, leikskólum og spilaborgum. Nordic Affect- hópurinn hefur á undanförnum ár- um vakið mikla athygli og hlotið lof jafnt fyrir upptökur sem tónleika og hefur hann áður flutt verk Steinunnar sem er tónskáld, ljóðskáld og sellóleikari. Nú verða frumflutt tvö ný verk eftir hana, auk þess sem eldri verk hennar hljóma. Steinunn tekur þátt í flutningnum og þá er sérstakur gestur á tónleik- unum söngvarinn og langspilsleik- arinn Eyjólfur Eyjólfsson. Verk Steinunnar verða fléttuð saman við tónsmíðar frá barokktímanum eftir meðal annars Matteis, Fontana og Philips. Mörgum verkefnum frestað Halla Steinunn Stefánsdóttir er í forsvari fyrir Nordic Affect og segir hún 30 sæti vera í boði á tónleikana í Mengi í kvöld. Nú á tímum veiru- faraldursins glími allir tónlistar- menn við þá spurningu hvort hægt sé og þá hvernig að koma fram að spila. „Við höldum þessa tónleika núna og höfum skipulagt aðra í októ- ber en tíminn verður að leiða í ljós hvort það gengur upp,“ segir hún. „Við höfum pantað verk hjá tón- skáldum sem hafa unnið að þeim hörðum höndum og okkur ber skylda til að sinna flutningi þeirra. Í vor höfðum við nýlokið tónleika- ferð um Bandaríkin þegar farald- urinn brast á en hátíð í Austurríki sem við áttum síðan að leika á var af- lýst. Við höfum verið bókuð aftur á hana á næsta ári og vonandi verður allt þá komið í góðan farveg. Svo áttum við núna að vera í stóru plötuupptökuverkefni í Noregi, því hefur verið frestað fram á næsta ár. En þótt mörgu sé frestað reynum við að gera það sem við getum.“ Varðandi samstarfið við Steinunni Arnbjörgu segir Halla Steinunn: „Fyrir nokrum árum lék Steinunn með okkur í efnisskrá í Skálholti. Ég hafði nokkru áður farið á einleiks- tónleika þar sem hún bæði söng og spilaði á sellóið, og hrifist af, og stakk upp á því að við hefðum lög eftir hana á efnisskránni og áheyr- endur hrifust mjög af þeim. Í fram- haldinu stakk ég upp á því að við pöntuðum fleiri lög frá henni og nú er loksins komið að því að flytja þau, ásamt fleiri verkum hennar. Stein- unn er sannkallaður þúsundþjala- smiður; hún er barokksellóleikari, getur dansað barokkdansa og hefur afar næma tilfinningu fyrir ýmsum stílum. Svo er hún ljóðskáld og hefur samið sum lögin, eins og þau sem hún samdi fyrir okkur, við eigin ljóð. En lögin sem við bættum á efnis- skrána samdi hún við texta eftir Caccini, frá barokktímanum, sem hún hefur þýtt og samið ný lög við. Það er rosaleg tjáning í orðunum og mikið drama og það skilar sér inn í þessar tónsmíðar Steinunnar.“ Samtímatónlistin eftirsótt Steinunn mun sjálf syngja í tveim- ur laganna sem hljóma í kvöld en Eyjólfur í fjórum. Hann spilar líka á langspil. „Svo mætti hann á æfingu með flautu sem hann hafði smíðað úr rabarbara! Við ákváðum þá að hljóð- færið yrði með á tónleikunum,“ segir Halla Steinunn. „Það er æðislegt hljóð í þessari rabarbaraflautu.“ Nordic Affect lék fyrst í stað bar- okktónlist og það var ekki fyrr en tveimur árum eftir stofnun sem hóp- urinn flutti fyrst samtímatónlist á tónleikum. „Við höfum síðan gert mikið af því að flytja þetta tvennt í flútti en mál hafa samt þróast þann- ig að erlendis er í dag svo mikill áhugi á íslenskri samtímatónlist að við erum oft beðin að mæta bara með hana. En núna njótum við þess að flétta þetta saman í Mengi. Enda er svo margt í tónlist Steinunnar sem tengist með skemmtilegum hætti ýmsu sem gert var snemma á barokktímanum,“ segir Halla Stein- unn. efi@mbl.is Ljósmynd/David Oldfield Flytjendurnir Meðlimir Nordic Affect ráða ráðum sínum yfir nótnablöðum en hópurinn leikur í Mengi í kvöld. Rosaleg tjáning og mikið drama  Nordic Affect frumflytur ný verk eftir Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur í Mengi í kvöld  Verk Steinunnar verða fléttuð saman við tónsmíðar nokkurra höfunda frá barokktímanum Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir Gestir sem sátu á svölum óperuhúss- ins Teatro Real í Madríd á sunnudag komu í veg fyrir sýningu á óperu Verdis, Un Ballo in Maschera, með klappi og hrópum í meira en klukku- stund. Ástæða háreystinnar var óánægja mikils hluta gesta sem höfðu keypt miða á svölunum með það hversu þröngt þeir voru látnir sitja og að ekki hafi verið hugað nægilega vel að sóttvörnum. Smitum vegna kórónuveirunnar hefur farið fjölgandi síðustu daga á Spáni. Ljósmyndir og myndbönd sem gestir tóku sýna að fyrir sýninguna voru gestir komnir í langflest sæti á svölum en laus sæti voru látin vera á milli gesta neðar í salnum. Blaðamaður sem var í salnum, og rætt er við í The New York Times, segir gesti á svölum hafa byrjað að mótmæla fyrir sýninguna þegar ljóst var hversu þröngt þeir ættu að sitja. Talsmenn óperuhússins sögðu í yfirlýsingu að þeir hefðu farið eftir settum reglum um fjarlægð milli gesta, sem þýddi að einungis var selt í 65 prósent sæta hússins. Við mót- mælin var 200 gestum á svölum boð- ið að færa sig neðar í salinn en það dugði ekki til; eftir að hljómsveitin hafði leikið forleikinn að óperunni, en látunum linnti ekki, var sýningin slegin af. Gestir stöðvuðu óperusýningu  Ósáttir við þrengsli á svölum Skjáskot/Vanguardia Mótmæli Gestir óperuhússins klöppuðu og púuðu í um klukkustund. Magnús Helgason hefur opnað sína þriðju einkasýningu í sýningarsal Listamanna gallerís á Skúlagötu 32. Sýninguna kallar hann „Róleg- ur Snati – við snertum aldrei rúllu- stigahandrið“. Á sýningunni gefur að líta málverk sem Magnús hefur unnið með ýmsum aðferðum í vinnustofu sinni í Slippnum á Akur- eyri undanfarin tvö ár. Magnús fell- ir saman í verkunum allrahanda fundinn efnivið, sem hann málar, slípar, sagar og meðhöndlar með ýmiskonar öðrum hætti við sköpun áhugaverðra verkanna. Sýningin er opin virka daga vikunnar. Magnús sýnir hjá Listamönnum Morgunblaðið/Einar Falur Litskrúðug Magnús við eitt málverka sinna á sýningunni í Listamönnum galleríi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.