Morgunblaðið - 25.09.2020, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 25.09.2020, Qupperneq 26
H vað vilduð þið kalla fram með þessum breytingum? „Okkur vantaði herbergi fyrir fjögurra ára dóttur okkar, en hún hafði deilt herbergi með sjö ára bróður sínum. Okkur fannst líka skipulagið ekki alveg nógu skemmtilegt, með þessa borðstofu sem við nýttum eingöngu á afmælum og ára- mótum og eldhúsið svona lokað af frammi. Valið stóð á milli þess að flytja eða ráðast í breyt- ingar. Svo erum við mjög ánægð með staðsetn- inguna innan hverfisins en við erum með útsýni yfir leikskólann og skólann þannig að við end- uðum á að velja það síðarnefnda. Við sáum fyrir okkur skemmtilegri fjölskyldustemningu með eldhúsið samofið stofunni, sem hefur verið raunin,“ segir Katrín. Katrín og Sveinn færðu eldhúsið í borðstof- una. Fyrir valinu varð hvít sprautulökkuð inn- rétting með eyju. „Við vorum alveg ákveðin í að hafa hvíta inn- réttingu og ljósan stein. Við erum hrifin af nátt- úrulegum efnum og okkur þykir marmari alveg ótrúlega fallegur en flestir vara við því að hann sé svo viðkvæmur. Við vorum búin að panta kvarts, en prufurnar voru lengi á gólfinu hjá farþegasætinu í bílnum og alltaf þegar ég rak augun í þær hugsaði ég um hversu miklu fal- legri mér þótti marmarinn. Eftir svefnlausar nætur sneri ég því ákvörðuninni. Þetta er í raun það eina sem ég var svona efins með og lengi að ákveða. Ég sé alls ekki eftir ákvörðuninni, ég nýt þess að horfa á marmarann og svo er alveg ótrúlega gott að koma við hann, hljómar fárán- lega en það er satt,“ segir hún og hlær. Fenguð þið einhverja hjálp varðandi hönnun á innréttingum og litavali? „Ég var algjörlega óviss um hvernig ætti að koma þessari innréttingu fyrir þarna og eftir 26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Færðu eldhúsið inn í borð- stofu til að fá aukaherbergi Hjónin Katrín Atladóttir borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og Sveinn Friðrik Eydal Sveinsson fjármálastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi búa í fallegri íbúð við Teigana í Reykjavík. Hjónin eiga tvö börn, fjögurra og sjö ára, og vantaði aukaherbergi. Valið stóð á milli þess að flytja eða breyta íbúð- inni og völdu þau síðari kostinn. Marta María | mm@mbl.is Innréttingin er hvít sprautulökkuð og klassísk. Hún er höldulaus með ríflegu skápaplássi. Á borðplötunum er marmari sem setur svip á umhverfið. Hvíta borðstofuborðið fer vel við bleikar sjöur Arne Jacobsen og PH-ljósið sem gef- ur svo fallega birtu. Stringhillunni er treyst fyrir dýrmætum kaffiboll- um úr Múmíndal og frá Royal Copenhagen. Katrín Atladóttir borg- arfulltrúi segir að fjöl- skyldulífið hafi breyst mikið eftir að þau færðu eldhúsið inn í borðstofu.  SJÁ SÍÐU 28 Vínkælirinn er á sínum stað í eldhúsinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.