Morgunblaðið - 25.09.2020, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020
STOFNAÐ 1956
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
Sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir
arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi
sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni
klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem
er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
Við erum ótrúlega ánægð með leikskólann og
skólann sem og íþróttafélögin Þrótt og Ármann
sem sinna börnunum okkar vel. Svo eigum við
líka frábæra nágranna.“
Hvað finnst þér að góð borg þurfi að hafa til
að bera?
„Góð borg þarf að bjóða upp á góða grunn-
þjónustu fyrir borgara. Þar þurfa að vera góðir
skólar og tryggð daggæsla við lok fæðingar-
orlofs. Það þarf að vera gott að búa þar, lífsgæði
mikil sem og lífvænleiki. Það þarf að vera fjöl-
breytileiki svo fólk hafi val um hvers konar lífi
það vill lifa. Það þarf að vera frelsi og val varð-
andi til dæmis búsetu og samgöngumáta, og þá
er ég að tala um raunverulegt frelsi. Kostirnir
þurfa allir að vera góðir. Góð borg býður upp á
mannlíf og menningu, skemmtilega viðburði að
sækja og góða veitingastaði. Það þarf að vera
frjór jarðvegur og umhverfi fyrir fyrirtækj-
arekstur. Án atvinnulífsins eru engin störf fyrir
íbúa. Álögur á íbúa þurfa svo að vera í hófi svo
fólk geti notið erfiðis vinnu sinnar.“
Hvað finnst þér að þurfi að gerast í borginni
svo hún verði betri?
„Borgin þarf að þjónusta barnafólk betur.
Það þýðir lítið að stæra sig af ódýrustu leikskól-
unum þegar í sumum hverfum komast börn
ekki að fyrr en tveggja og hálfs árs. Mér finnst
mikilvægara að veita bestu þjónustuna en ódýr-
ustu. Fólk er að lenda í því að þurfa að keyra
tugi kílómetra á dag með barnið sitt í leikskóla
utan hverfis, sem eykur bæði umferð, mengun
og streitu foreldra. Útsvar er í hámarki og fast-
eignagjöld hafa hækkað upp úr öllu valdi, heim-
ilum og ekki síður fyrirtækjum til mikils ama.
Við þetta má bæta stanslausu hiksti á ýmiss
konar þjónustu á vegum borgarinnar. Húsnæð-
isskortur er áþreifanlegur, heim-
ilislausum fjölgar og vandræða-
gangur við mönnun leikskóla er
endurtekið efni.“
Hvað drífur þig áfram í
vinnunni þinni sem borg-
arfulltrúi?
„Ástríða fyrir frelsi einstak-
lingsins, valfrelsi og til að búa til
betri borg. Það er mjög gefandi
að leggja fram tillögur að ein-
hverju sem maður trúir að geri
borgina betri og fá þær sam-
þykktar og sjá þær í framkvæmd,
finna að maður raunverulega hef-
ur áhrif. Ég er núna formaður
stýrihóps um nýja hjólreiða-
áætlun, sem er mest spennandi verkefni sem ég
hef fengið.“
Finnst þér vanta eitthvað í hverfið þitt?
„Hér í Laugardalnum er allt til alls og stutt í
mikið af þjónustu, íþróttum og afþreyingu. Það
væri kannski gaman að sjá íþróttaaðstöðuna
uppfærða svolítið, þar sem hún er komin vel til
ára sinna. Ég vissi ekki að það væri hægt að
koma jafn mörgum krökkum á einn gervigras-
völl og raun ber vitni. Þróttur á ekkert íþrótta-
hús, eins eru íþróttahúsin við skólana annaðhvort
lítil eða ekki til staðar. Rakið mál að bæta úr því.“
Baðherbergið var endurnýjað
og fékk það upplyftingu í
sama stíl og eldhúsið.
„Okkur vantaði
herbergi fyrir fjög-
urra ára dóttur okk-
ar, en hún hafði deilt
herbergi með sjö ára
bróður sínum.
Á ganginum eru fal-
legar myndirnar af af-
kvæmum Katrínar.
Kaffivélin er á sínum
stað í eldhúsinu og
við hlið hennar er
góður kaffimalari sem
er mikið notaður.
Katrín segir að það sé mikil ham-
ingja með það á heimilinu að
bæði börnin séu nú komin með
sérherbergi en áður notaði yngra
barnið stofuna sem leikvöll.
Bleiki liturinn á herberginu pass-
ar vel við bleiku Stringhillurnar.