Morgunblaðið - 25.09.2020, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020
Vandaðir álsólskálar
og glerhýsi
Höfðabakka 9
110 Reykjavík
Sími 578 6300
skelinehf@ skelinehf.is
www.skelinehf.is
Húsið fallega hrátt
eins og maðurinn
Vera Wonder Sölvadóttir kvikmyndagerðarkona er með flottan smekk. Hún segir gott
að eiga fallegt afrep fyrir fjölskylduna úti á landi. Ekki síst á tímum kórónuveirunnar.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Svarta eldhúsið og
svörtu flísarnar fara vel
með viðarklæðning-
unni á veggjunum.
V
era Wonder er að klára fæðingarorlof með Grímu dóttur sinni. Meðfram
því vinnur hún í handriti að fimm þátta sjónvarpsseríu ásamt Lindu Vil-
hjálmsdóttur frænku sinni. „Ég bý í vesturbæ Kópavogs með Gunnari
Gylfasyni manninum mínum, eldri dóttur minni Sögu og nýjasta fjöl-
skyldumeðlimnum Grímu sem er sjö mánaða. Hér býr líka tíkin Kolka og
Oddný, næstyngsta dóttir mannsins míns, er hér reglulegur heimalningur.“
Hvað er gott heimili að þínu mati?
„Gott heimili er staður sem maður vill vera á. Það er ekkert betra en að langa
til þess að vera heima hjá sér. Ég hef búið á stöðum sem mig langar bara alls
ekki að koma heim í. Þetta er allt spurning um andrúmsloft og að þar sé fólk
sem manni líður vel með. Ekki skemmir fyrir ef það er pláss fyrir alla og sæmi-
lega hreint. Mér finnst gaman að gera kósí og er ansi heimakær þessa dagana.“
Áttu þér uppáhaldshönnuð?
„Ég þekki aðallega leikmyndahönnuði og þeirra verk. Ég hef verið hrifin af
því sem Heimir Sverrisson og Hálfdán Pedersen hafa verið að gera innanhúss
hér heima. Ég myndi kalla það „fágaðan hráleika“ sem ég er hrifin af. Svipað
því sem Gunnar maðurinn minn hefur verið að gera í húsinu okkar fyrir austan.
Ég er voða lítið fyrir pjatt. Ég myndi samt aldrei fúlsa við að búa í húsi eftir
Högnu Sigurðardóttur. Þau eldast sérlega vel. Hún notaði aðallega náttúruleg
efni og sýndi mikla dirfsku í verkum sínum á starfsævi sinni. Þrátt fyrir frum-
leika sinn hafa verk Högnu elst stórkostlega vel. Frönsku áhrifin og formin
heilla mig alltaf.“
Sumarhúsið notað í frístundum
„Fyrir rúmum þremur árum fann Gunnar þennan yndislega stað fyrir aust-
an í Laugarási, Bláskógabyggð. Hann fjárfesti í grunni þar sem hægt var að sjá