Morgunblaðið - 10.11.2020, Side 11
sóknar, aðalsafnaðarfundi Hvann-
eyrarsóknar, sóknarnefnd Lundar-
sóknar og sóknarnefnd Bæjarkirkju.
Þar hafi ýmist verið bókaðar stuðn-
ingsyfirlýsingar eða bókað að fólk sé
ekki mótfallið sameiningu.
Í Hvanneyrarprestakalli eru fjór-
ar kirkjur, Hvanneyrarkirkja, Bæj-
arkirkja, Lundarkirkja og Fitja-
kirkja. Ekki er vitað hvenær kirkja
var fyrst reist á Hvanneyri en elsti
máldagi hennar sem varðveist hefur
er frá árinu 1257. Kirkjan sem nú
stendur á Hvanneyri var vígð hinn
15. október 1905 og var hún teiknuð
af Rögnvaldi Ólafssyni. Síðasti
prestur á Hvanneyri var séra Flóki
Kristinsson. Hann hætti fyrir
nokkru og hefur séra Geir í Reyk-
holti þjónustað Hvanneyri síðan þá.
Kirkjur hafa staðið í Reykholti frá
upphafi kristni. Breiðabólstaðargoð-
ar byggðu þar kirkjur og fimm
þeirra voru prestar þeirra, þar til
sóknin var seld Snorra Sturlusyni
árið 1206.
Tvær kirkjur eru nú í Reykholti.
Reykholtskirkja eldri sem reist var
árið 1886 og Reykholtskirkja yngri
sem vígð var árið 1996. Uppbygging
nýrrar kirkju með áföstu Snorra-
safni og fræðasetri hófst 1988. Eldri
kirkjan hefur verið í vörslu Þjóð-
minjasafns Íslands síðan 2001.
Morgunblaðið/Golli
Reykholtskirkja yngri Kirkja og Snorrastofa setja sterkan svip á Reykholt.
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 2020
STOFNAÐ 1956
Mark30 plus
skrifstofustóll
7.418 kr. án arma
5.706 kr. með örmum
TILBOÐ
% afsláttur
6
7
0
Verð
Verð
3
Mjúk hjól
Hæðarstilling á baki
Armar hæða- og
dýptarstillanlegir,
fæst með og án arma
Pumpa í baki, stillir
stuðning við mjóhrygg
Hallastilling á baki
Hæðarstilling setu og baks
Samhæfð stilling setu
og baks fylgir hreyfingu
notandans
Dýptarstilling á setu
Hægt að stilla stífleika setu
og baks eftir þyngd notanda
Bæjarlind 8-10
201 Kópavogur
sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Einnig til í bláu
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Aðstæður hér í Grindavík, sjáv-
arbyggð fyrir opnu hafi, bókstaf-
lega kröfðust þess að hægt væri að
bregðast við slysum við sjóinn. Árið
1930 var þörfin mikil og er enn,
þótt aðstæður hafi breytst. Starf-
semin okkar er meðal mikilvægra
innviða samfélagsins,“ segir Bogi
Adolfsson, formaður Björgunar-
sveitarinnar Þorbjörns í Grindavík.
Þess er minnst nú að 90 ár eru
frá stofnun Þorbjörns sem er meðal
þeirra deilda Slysavarnafélagsins
Landsbjargar sem lengsta sögu á. Í
tilefni tímamóta hefur fjöldi mynda
úr starfi sveitarinnar – gamalla
sem nýrra – verið birtur á sam-
félagsmiðlum en mannamót bíða
um sinn.
Runnu sjóslysin til rifja
„Grindvíkingum runnu sjóslysin
til rifja. Í rennunni hér úti fyrir
hafnarmynninu þurfti að fara í
gegnum þröngt sund og fram hjá
boðum sem stundum tókst ekki.
Fjöldi báta ýmist strandaði hér eða
fórst og oft varð mannskaði. Flug-
línutæki sem björgunarsveitin fékk
og var öðrum þræði stofnuð um
sönnuðu fljótt gildi sitt,“ segir Bogi.
Slysavarnadeildin Þorbjörn var
stofnuð 2. nóvember 1930. Um
fimm mánuðum síðar, 24. mars
1931, standaði franskur togari, Cap
Fagnes, við Hraunshverfi skammt
austan Grindavíkur. Til voru kall-
aðir björgunarsveitarmenn sem
þarna notuðu í fyrsta sinn á Íslandi
fluglínutækin. Línan, sem skotið
var úr landi, náði í togarann í
fyrstu atrennu og þannig tókst að
bjarga áhöfninni í land, alls 38
manns. Fleiri atvik þessu lík komu
ekki löngu seinna og árið 1947 var
sérstök björgunarsveit stofnuð inn-
an Þorbjörns.
Á 90 árum hafa björgunar-
sveitarmenn í Grindavík unnið
kraftaverk með fluglínutækjum.
„Nákvæm tala þeirra sem sveitin
hefur bjargað er 233 manns,“ sagði
Bogi þegar hann sýndi blaðamanni
björgunarmiðstöðina í Grindavík.
Þar eru á veggjum myndir úr
starfinu á ýmsum tímum, meðal
annars af strandi skipa og björg-
unaraðgerðum við erfiðar að-
stæður.
Í dag eru í björgunarsveit Þor-
björns starfandi um 60 félagsmenn.
Um helmingur þeirra er virkur í
starfi og á útkallslista. Slysavarna-
deildin Þórkatla er öflug og sinnir
meðal annars forvörnum og fjáröfl-
unarstarfi. Þá er starfandi ung-
lingadeild og eru nemendur í efstu
bekkjum grunnskólanna í Grinda-
vík þar virkir.
„Í unglingadeild læra krakkarnir
skyndihjálp, mikilvæg atriði í úti-
vist og fjallamennsku, fá að prófa
sig við sjóinn, fara í ferðalög og
fleira. Nokkur úr þessum hópi skila
sér alltaf í björgunarsveitina og til
þess er leikurinn líka að hluta til
gerður,“ segir Bogi. „Sjálfur kom
ég inn í þetta starf fyrir um 20 ár-
um, þá liðlega tvítugur og fann mig
strax. Hef ánægju af útivist, verk-
efnin eru fjölbreytt, félagsskap-
urinn fínn og því fylgir góð tilfinn-
ing að finna að starfið skiptir
bæjarfélagið miklu máli.“
Í flota björgunarsveitarinnar
Þorbjörns eru þrír stórir bílar,
harðbotna björgunarbátur, tveir
slöngubátar og jafnmörg fjórhjól
og svo mætti áfram telja. Við
bryggju er björgunarskipið Oddur
V. Gíslason og hefur útgerð þess
margsannað gildi sitt. Með betri
bátum, öruggari innsiglingu í
Grindavík og þjálfun sjómanna hef-
ur verkefnum við sjóinn þó fækkað,
en þess í stað komið útköll til
landsins, svo sem aðstoð við ferða-
fólk.
Útgerðin er öflugt bakland
„Við erum vel sett miðað við
margar aðrar björgunarsveitir á
landinu hvað varðar tæki. Útgerð-
arfélögin hér í Grindavík og stétt-
arfélög sjómanna í bænum standa
mjög þétt að baki okkur og eru öfl-
ugt og mikilvægt bakland. Lions-
klúbburinn og fleiri hafa einnig
komið myndarlega að málum. Svo
þarf alltaf nýjan búnað og efst á
óskalista nú eru fleiri drónar og
hitamyndavél og vonandi fæst
þetta fljótlega,“ segir Bogi Adolfs-
son að síðustu.
Björgunarsveit fyrir opnu hafi
Þorbjörn í Grindavík er 90 ára Öflugt starf Hafa bjargað 233 sjómönnum með fluglínutækj-
um Starf sem skiptir bæjarfélagið miklu máli Góður tækjakostur og mikilvægir bakhjarlar
Ljósmynd/Otti Rafn Sigmarsson
Aðgerðir Bátaflokkurinn úr Grindavík við leit á Þingvallavatni fyrir nokkrum misserum.
Björgun Skúmur GK strandaði við Hópsnes 3. febr-
úar 1987. Fréttin er úr Mbl. Myndina tók RAX.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Strand Jón Baldvinsson RE við Reykjanes 29. mars 1955.
Sveitin úr Grindavík bjargaði öllum skipverjunum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Formaður Fann mig í starfinu, segir Bogi Adolfsson.