Morgunblaðið - 10.11.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 10.11.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 2020 40 ára Ásdís Halla ólst upp á Akranesi en býr núna í Mosfellsbænum. Hún er stuðnings- fulltrúi í Helgafells- skóla. Ásdís fór í há- skóla í Bretlandi, í Newcastle, þar sem hún lærði dýrafræði.Helstu áhugamál Ásdísar eru samvistir með fjölskyldunni og svo er gott að fara í göngutúra með hundinn. Þá er fjölskyldan hrifin af því að spila borðspil með vinum. Maki: Páll Þór Pálsson, f. 1980, fram- kvæmdastjóri. Barn: Sindri Dylan, f. 2008. Móðir: Gerða Bjarnadóttir, f. 1961, bók- ari hjá Rauða krossinum. Hún býr í Reykjavík. Ásdís Halla Sigríðardóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það sem þú gefur af þér verður að veruleika. Vertu auðmjúkur gagnvart lífs- kraftinum og láttu ekki blett á skjöld þinn falla. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú hefur vakið athygli yfirmanna þinna með frammistöðu þinni. Láttu undr- un annarra engin áhrif hafa. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Treystu hugboðum sem þú færð á fjármálasviðinu í dag. Hugboð þitt um að þessi útgjöld séu nauðsynleg er rétt. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Allar breytingar eru eðlilegur þátt- ur af tilverunni svo taktu þeim fagnandi. Sá sem svarar kallinu og réttir út hjálp- arhönd er ekki sá sem þú bjóst við. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þótt hæfileikum þínum sé ekki tekið með opnum örmum, skaltu samt halda áfram. Svo lengi sem þú ert á réttri leið, er allt í þessu fína. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Mál skipast svo í þína þágu að það veldur þér ánægjulegri undrun. Taktu frumkvæðið og hafðu forystu um að leiða verkið til lykta. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er erfitt að gera svo öllum líki og reyndar er það sjaldan besti kosturinn. Málamiðlun er þá nauðsynleg og þér í hag að hafa frumkvæði að henni. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ert að brjótast í þeim mál- um sem þér finnast þér ofvaxin. Njóttu lífsins eins og þú getur og gerðu eitthvað skemmtilegt með vinum og ættingjum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Einhver þér eldri og reyndari gefur góð ráð í dag. Njóttu þess og efldu styrk þinn fyrir átakameiri tíma. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú upplifir alls konar tilfinn- ingar núna og munt líklega meðhöndla þær af kostgæfni. Reyndu að gera hvað þú getur til að bæta umhverfi þitt og gera það skilvirkara. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þetta er góður tími til að ræða vandamálin við maka þinn eða náinn vin. Vertu sérstaklega á verði gagnvart þeim sem vilja hnýsast í einkamál annarra. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert nú að taka til í eigin garði og sérð hvað undir býr. En hálfnað er verk þá hafið er og vilji er allt sem þarf til þess að þú náir árangri. kynntist mörgu frábæru fólki.“ Síð- ustu þrjá mánuði ársins 2011 var Ingvar aðstoðarmaður heilbrigð- isráðherra en þá fór hann aftur í einkarekstur og var ráðgjafi á sviði almannatengsla og stjórnendaráð- gjafar. Þaðan lá leiðin í MBA-nám í HR þar sem hann útskrifaðist árið 2013. Ingvar lét hendur standa fram úr ermum og hann var sá sem keypti fyrstu skoðanakönnunina sem sýndi fram á að ef flokkarnir á vinstri vængnum myndu sameinast í Reykja- víkurlistanum, þá kæmust þeir í stjórn, sem varð enda raunin. Ingvar fór að vinna í einkageir- anum en tók að sér að vera kosn- ingastjóri og í kosningastjórnum bæði fyrir Samfylkinguna og Reykjavíkur- listann. Hann segist fylgjast mjög vel með og að hann hafi mjög gaman af strategíu og áætlunum, orðræðunni og hvernig myndir eru dregnar upp í stjórnmálum. Hins vegar henti það honum illa að eiga að sitja og standa eftir flokkslínum. „Ég vil bara vinna með góðu fólki og vinna að góðum málum og koma þeim í gegn, hvaðan sem þau koma.“ „Árið 2004 var ég ráðinn fram- kvæmdastjóri Góðs fólks auglýs- ingastofu og ég gegndi því starfi til 2009. Starfaði svo hjá Jónsson & Le- ’macks í stutta stund eftir hrun en varð síðan aðstoðarmaður samgöngu- ráðherra, Kristjáns Möller, og það var gífurlega góður skóli fyrir mig og ég lærði mikið um stjórnsýsluna og I ngvar Sverrisson fæddist í Reykjavík 10. nóvember 1970 og ólst upp í Breiðholtinu. „Ég var í Fellaskóla alla mína grunnskólagöngu og það sem helst stendur upp úr er hversu góða vini ég eignaðist í hverf- inu. Blaðamenn voru svolítið að tala niður hverfið á sínum tíma en þarna var ógrynni af krökkum og mikil orka og gaman. Svo var líka fínt að pabbi var forstöðumaður í Fellahelli.“ Ingv- ar segist þó alltaf fá sting í hjartað þegar hann er beðinn um að rifja upp æskuna, því þá kemur upp sorg yfir að hafa misst yngri bróður sinn, Frið- þjóf, sem lést af slysförum, og hafði sá missir mikil áhrif á Ingvar og fjöl- skylduna alla. Besti skólinn Ingvar fór í MR í þrjú ár en lauk stúdentsprófi frá FB. „Ég var mjög ánægður þar og var í leiklist og varð formaður nemendafélagsins í FB. Þetta voru fyrstu skrefin í alvöru- embætti sem maður gegndi á þeim tíma. FB var stærsti skóli landsins og nemendafélagið rak mötuneyti. Þarna lærði ég um rekstur, starfsmannahald og svo margt sem viðkemur rekstri og samskiptum. Þetta var ótrúlega mikill skóli og mikilvægur.“ Eftir stúdentsprófið fór Ingvar í háskóla í eitt ár en hætti og fór að vinna. „Eftir að ég hætti í háskóla vann ég ýmis störf, en á sama tíma var ég byrjaður að vesenast í pólitík. Sama ár og ég útskrifaðist úr FB sett- ist ég fyrir hönd borgarinnar í skóla- nefnd skólans og sit þar enn sem for- maður.“ Vill ekki pólitískt þras Ingvar gekk í Alþýðuflokkinn og var einn af þeim sem börðust mjög fyrir því að Reykjavíkurlistinn yrði til og sat á þeim lista árið 1994 og var varaborgarfulltrúi til 1998. „Ég var ráðinn framkvæmdastjóri Alþýðu- flokksins 1997 og gegndi því starfi til 2000 þegar ég tók þátt í stofnun Sam- fylkingarinnar. Þarna var ég búinn að finna einhverja félagsmálafjöl sem hófst þegar ég var formaður nem- endafélagsins og ég var valinn for- maður á fyrsta fundinum í borgar- málaráði ungra jafnaðarmanna.“ Samskiptin hafa breyst Ingvar stofnaði svo ráðgjafarfyrir- tækið Aton árið 2013 og hefur verið framkvæmdastjóri þar síðan. Árið 2019 sameinaðist það fyrirtækinu JL og í dag heitir fyrirtækið Aton.JL. „Við erum í grunninn ráðgjafarfyrir- tæki á sviði samskipta – samskipta- félag – en einblínum sérstaklega á stefnu fyrirtækja og stofnana þegar kemur að samskiptum við viðskipta- vini og hagaðila, en miklar breytingar hafa orðið á þeim vettvangi undan- farin ár. Við vinnum með hvar og hvernig upplýsingum er komið á framfæri í þessu breytta umhverfi á markaðnum,“ segir Ingvar og bætir við að fólk velji orðið miklu meira hvaða upplýsingar það tekur til sín og samfélagsmiðlar séu bara eitt tæki af mörgum sem sýna hvernig við eigum í samskiptum hvert við annað. Ingvar heldur samt alltaf í sínar fé- lagsmálarætur. „Ég er formaður ÍBR í dag og hef verið það frá því 2009. Fé- lagsmálatröllið getur ekki sleppt því og ég hef gaman af því að starfa fyrir íþróttahreyfinguna í Reykjavík.“ Ingvar segir að áhugamálin séu Ingvar Sverrisson framkvæmdastjóri Aton.JL – 50 ára Fjölskyldan Hér er Ingvar með Degi Frank, Hólmfríði og Bjarka Hrafni á Ítalíu árið 2015. „Ég vil vinna að góðum málum“ Fótboltinn Hér er Ingvar með son- um sínum á Anfield, heimavelli Liv- erpool. F.v. Dagur Frank, Ingvar, Bjarki Hrafn og Viktor Marteinn. Til hamingju með daginn Reykjavík Ragna Elísa Gunn- arsdóttir fæddist 15. desember 2019 kl. 0.03. Hún vó 3.565 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Gunnar Steinn Aðalsteinsson og Sigríður Elísa Eggertsdóttir. Nýr borgariÁlnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is Við erum sérhæfð í gluggatjöldum PLÍ-SÓL GARDÍNUR alnabaer.is 30 ára Magnús er Reykvíkingur og hefur alltaf búið þar fyrir ut- an stutta viðkomu á Selfossi. Magnús er tæknimaður og um- sjónarmaður viðhalds hjá Hreyfingu. Helstu áhugamálin eru almenn útivist og þá helst ísklifur, fjallaskíði og straumvatns- björgun. Síðan hefur hann mikinn áhuga á ljósmyndun. Maki: Elísabet Jónsdóttir, f. 1992, snyrti- fræðimeistari. Barn: Kári Freyr, f. 2018. Foreldrar: Sigurður Magnússon, f. 1965, rútubílstjóri og Björk Reynisdóttir, f. 1968, starfsmaður á leikskóla. Þau búa á Selfossi. Magnús Stefán Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.