Morgunblaðið - 10.11.2020, Qupperneq 13
Fagráð í lífrænumbúskap tilkynnir:
Lífræn ræktun, umhverfi og lýðheilsa
Málþing um lífrænan landbúnað
Rafræntmálþing – sjá slóð á vef Bændablaðsins www.bbl.is
12. nóvember 2020 frá kl 10.00 -16.00
Fundarstjóri: Ragnheiður I Þórarinsdóttir, rektor LBHÍ
Kl. 10.00: Lífræn ræktun og kolefni í jarðvegi – binding eða losun ?
Þorsteinn Guðmundsson, doktor í jarðvegsfræði frá Háskólanum í Aberdeen,
prófessor við LBHÍ.
Kl. 10.45: Hringrásarkerfið – næringarefni í umferð á Íslandi
Cornelis Aart Meijles, umhverfisverkfræðingur og sérfræðingur hjá RML í
hringrásarhagkerfum
Kl. 11.40: Lífræn ræktun í grundvallaratriðum
Gunnþór Guðfinnsson, garðyrkjufræðingur og lífrænn bóndi í Skaftholti fjallar um
lífræna ræktun í framkvæmd
- Hádegishlé kl. 12.15 -
Kl. 13.00: Lífrænt ræktuðmatvæli og áhrif á heilsu. Samantekt nýjustu
rannsókna
Prófessor Carlo Leifert (PhD, Dipl. Ing. Agr.) Doktor í örverufræði, Southern Cross
University
Kl. 13.45: Lífræn sauðfjárrækt á Íslandi – hvað þarf til ?
Sveinn Margeirsson, doktor í iðnaðarverkfræði
Kl. 14.40: Lífræn framtíð á Norðurlandi – sjónarmið nýliða
Sunna Hrafnsdóttir, lífrænn bóndi að Ósi í Hörgársveit.
Kl. 15.15: Umræður og samantekt
Málþingi lokið kl. 16.00
Hægt verður að tengjast málþinginu í gegnum vef Bændablaðsins
www.bbl.is
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 2020
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Bóluefni sem þróað og prófað hefur verið í
samstarfi bandaríska lyfjarisans Pfizer og
þýska líftæknifyrirtækisins BioNTech hefur
sýnt 90% virkni gegn sýkingum af völdum kór-
ónuveirunnar í svonefndum þriðja fasa próf-
unum sem nú eru á lokastigi. Meðal þeirra sem
fagnað hafa þessu sem meiriháttar áfanga í
stríðinu gegn kórónuveirunni eru Joe Biden,
verðandi forseti Bandaríkjanna, og Donald
Trump, fráfarandi forseti. Þá ruku evrópskar
hlutabréfavísitölur upp við fregnina og olíu-
verð.
Talsmenn Pfizer og BioNTech sögðu að þau
áætluðu að koma með 50 milljónir skammta af
bóluefninu á markað þegar í ár og 1,3 milljarða
skammta á næsta ári, 2021. Fulltrúi Evrópu-
sambandsins (ESB) sagði aftur á móti síðdegis
að sambandið væri enn að prófa bóluefnið og
héldi fast við áætlanir sínar að hefja mætti
notkun þess á næsta ári.
Gengur beint til verks
Þótt Biden taki ekki við völdum fyrr en 20.
janúar nk. ætlar hann að ganga hart fram gegn
kórónuveirunni. Áformaði hann að setja þegar
í gær á stofn vísindamanna- og sérfræðinga-
sveit til að móta glímuna gegn veirunni næstu
vikurnar, og birti hann nöfn þeirra í gær.
Nú hafa rúmlega 50 milljónir manna sýkst af
kórónuveirunni um allan heim, og rúmlega 1,2
milljónir látist af völdum hennar. Þá hafa
237.760 Bandaríkjamenn dáið frá upphafi far-
aldursins en þar hafa sýkingar rokið upp að
undanförnu. Sérstakt teymi við Johns Hopk-
ins-háskólann sem fylgist með framgangi veir-
unnar segir að rúmlega 10 milljónir Banda-
ríkjamanna hafi smitast af völdum hennar og
sýni veiran engin merki þess að slagkraftur
hennar sé að dvína.
Forstjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar
(WHO), Tedros Adhanom Ghebreyesus, fagn-
aði fréttinni um nýja bóluefnið og sagði hana
„hvetjandi“. „Þetta eru góðar fréttir af hvetj-
andi bóluefni. Við tökum ofan fyrir öllum vís-
indamönnum og samstarfsmönnum þeirra sem
eru að þróa tæki og tól til að leggja Covid--
19-veiruna að velli,“ sagði Tedros.
Trump og Fauci ánægðir með tíðindin
Donald Trump hefur sætt harðri gagnrýni
fyrir hvernig hann hefur tekist á við kórónu-
veirufaraldurinn. Hann sagði fréttirnar af nýja
bóluefninu vera „frábærar fréttir“. Helsti far-
aldsfræðingur Bandaríkjanna, Anthony Fauci,
sagði sömuleiðis að árangurinn væri „framúr-
skarandi“.
Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum á ár-
angri bóluefnisins var fullri virkni þess náð 28
dögum eftir fyrri skammt og sjö dögum eftir
seinni skammt. Voru þátttakendur í prófunun-
um af mismunandi uppruna.
Um miðjan október voru 42 mismunandi
bóluefni á klínísku tilraunastigi en þau voru 11
um miðjan júlí. Tíu þeirra eru í þriðja fasa til-
rauna en þá er skilvirkni bóluefnis prófuð á
tugþúsundum manna í öllum heimsálfum. Að
sögn AFP-fréttastofunnar eru bandaríska líf-
tæknifyrirtækið Moderna, nokkrar ríkis-
tilraunastofur í Kína og evrópskt samstarfs-
fyrirtæki háskólans í Oxford og lyfjarisans
AstraZeneca að klára þróun bóluefna sem talin
eru lífvænleg.
Greinir á um ágætið
„Fyrstu niðurstöður úr þriðja tilraunafasan-
um sanna getu bóluefnis okkar til að kveða Co-
vid-19 í kútinn,“ sagði Albert Bourla, forstjóri
Pfizer. „Við stöndum nú umtalsvert nær því en
áður að geta boðið fólki um heim allan upp á
langþráð vopn til að kveða heimsfaraldurinn í
kútinn.“
Þriðji tilraunafasinn er lokastig klínískra
lyfjatilrauna. Tilraunir á nýju bóluefni,
BNT162b2, hófust seint í júlí og tóku 43.538
manns í prófunum á því. Pfizer segist vera að
afla mæligagna í framhaldi af seinni bóluefn-
issprautunni, en með þau í hendi uppfyllir
fyrirtækið kröfur bandaríska lyfjaeftirlitsins
(USFDA) um nauðsynlegar upplýsingar til að
hljóta neyðarheimild til að hefja almenna bólu-
efnisgjöf. Býst Pfizer við slíkri heimild í þriðju
viku nóvember. „Við hlökkum til að deila skil-
virkni lyfsins og öryggi,“ sagði Bourla.
Lækna og aðra sérfræðinga á heilbrigðis-
sviði greinir á um mikilvægi fréttarinnar. Í
þeim hópi efasemdarmanna er Eleanor Riley,
prófessor í ónæmis- og smitsjúkdómafræði við
Edinborgarháskóla í Skotlandi. Þar sem
sprauta þurfi tvisvar og halda bóluefninu of-
urkældu kalli það á flókin dreifingarvandarmál
eigi að koma því til allra.
Riley segir að ekki hafi verið upplýst hver
hafi verið aldursdreifing þátttakenda í klínísku
tilrauninni. „Eigi bóluefni að draga úr alvar-
legum veikindum og dauða og þar með gera al-
menningi kleift að hefja aftur eðlilegt daglegt
líf verður það að vera skilvirkt í rosknum sam-
borgurum okkar og öldruðum,“ sagði hún.
Veiran er óþreytt
Biden hvatti í gær samlanda sína til að bera
andlitsgrímu og sagði slíkt ekki vera pólitíska
yfirlýsingu. „Ég grátbið ykkur að bera grímu,
það er mikilvægasta skrefið í átt til þess að
hindra dreifingu hinnar banvænu kórónu-
veiru,“ sagði hann á blaðamannafundi síðdegis
í gær í Wilmington eftir að hafa fundað með
sérfræðingahópi sínum sem stofnaður var í
gær til að stýra baráttunni vegna kórónuveir-
unnar. Hann sagði að þrátt fyrir jákvæðar
fréttir af þróun bóluefnis gegn veirunni væri
skilvirkasta leiðin nú til að stöðva dreifingu
hennar að bera andlitsgrímu. Hann fagnaði
fréttum af bóluefni Pfizer og BioNTech og
sagði miklar vonir við það bundnar. Fram und-
an væri samt löng barátta gegn veirunni.
Tedros Adhanom Ghebreyesus forstjóri
hvatti þjóðir heims í gærkvöldi til að slaka
hvergi á því enda þótt almenningur væri orð-
inn langþreyttur á glímunni við faraldurinn
væri veiran ekki búin að „fá nóg af okkur“.
AFP
Bóluefni Joe Biden hvatti í gær Bandaríkjamenn til að halda áfram að ganga með grímu.
Nýtt bóluefni brátt í dreifingu
Pfizer hyggst setja 50 milljónir skammta af bóluefninu á markað í ár og 1,3 milljarða skammta 2021
Biden grátbað landa sína að bera grímu Rúmlega 50 milljón tilfelli staðfest frá upphafi faraldursins
Þróun ofurhraðlestarinnar Virgin
Hyperloop færist nær endamark-
inu en gerðar voru tilraunir með
farþega í þróunarlestinni í
Nevadaeyðimörkinni í fyrradag,
sunnudag.
Hugmyndin að lestinni, sem lík-
ist helst hylki, er að hún aki á
ógnarhraða innan í lofttæmis-
göngum. Orku til hröðunar fær
hún með segulmagni og svífur
lestin þar af leiðandi nokkrum
millimetrum ofan við segulteininn.
Í tilrauninni fór hylkið með tvo
starfsmenn fyrirtækisins innan-
borðs tvær ferðir í hinum 500
metra löngu göngum. Mesti hraði
sem náðist á 15 sekúndna sprett-
inum var 172 km/klst. Er það ekki
nema brot af væntanlegum rúm-
lega 1.000 km hraða þegar hún
kemst í notkun.
Sara Luchian, samskiptastjóri
hjá fyrirtækinu, var önnur þeirra
er fóru í tímamótaferðina. Lýsti
hún henni fyrir BBC-stöðinni sem
„hressandi upplífgun bæði fyrir
sál og líkama“. Hún og tæknistjór-
inn Josh Giegel voru íklædd flís-
peysu og gallabuxum en ekki flug-
galla í tilrauninni, sem fór fram
skammt frá Las Vegas. Hún sagði
ferðina hafa verið þægilega og
ekkert líka rússíbanareið. Bætti
við að hröðunin hefði verið „mun
sprækari“ á lengri braut. Hvorugt
þeirra Giegels varð bílveikt.
Virgin Hyperloop hefur verið
mörg ár í þróun og er byggð á
hugmynd Elons Musks, eiganda
bílsmiðjunnar Tesla. Gagnrýn-
endur uppátækisins segja áformin
hljóma eins og upplestur úr vís-
indaskáldsögu. Lestin er byggð á
svonefndri maglev-segulspólunar-
tækni en er með lofttæminu í rör-
inu stóra ætlað að ná enn meiri
ferð en hingað til hefur tekist.
Maglev-lest setti hraðamet við
Fujifjallið í Japan 2015 og náði
þar 600 km/klst ferð.
Forsvarsmenn Virgin Hyperlo-
op segja lestina fræðilega séð geta
flutt farþega á milli Lundúna-
flugvallanna Gatwick og Heathrow
á aðeins fjórum mínútum en þar á
milli eru 70 kílómetrar. Í höfuð-
stöðvum fyrirtækisins í Los Ang-
eles er verið að þróa hugmyndir
að brautum í öðrum löndum, með-
al annars eina sem byði upp á að-
eins 12 mínútna ferð milli Dúbaí
og Abú Dabí, en með núverandi
samgöngumáta tekur ferðin á aðra
klukkustund.
Ofurlest prófuð með
farþega innanborðs
Svífur með segulmagni á ógnarhraða
Ljósmynd/Virgin Hyperloop
Ofurlest Virgin Hyperloop-lestin
getur ferðast á 1.000 km/klst.