Morgunblaðið - 10.11.2020, Qupperneq 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 2020
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur fyrir
veturinn, og tek að
mér ýmis smærri
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Vallholt 5, Akranes, fnr. 210-0132 , þingl. eig. Jörfagrund ehf.,
gerðarbeiðendur Sóltún ehf. og Akraneskaupstaður, þriðjudaginn 17.
nóvember nk. kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
9. nóvember 2020
Félagsstarf eldri borgara
Bústaðakirkja Við bjóðum uppá göngutúr kl 13:00 á miðvikudaginn
frá Bústaðakirkju, safnaðarheimilismegin. Við virðum millibil og
stóttvarnarreglur og njótum útiverunnar. Gengið verður um nágrenni
Bústaðakirkju. Hólmfríður djákni.
Grafarvogskirkja Eldri borgurum verður boðið upp á ýmislegt
fróðlegt og skemmtilegt eftir hádegi á þriðjudögum á Facebookhópi
starfsins.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum frá kl. 10.30 eingöngu fyrir íbúa
Skólabrautar 3-5. Ef veður leyfir þá verður púttað á vellinum við
Skólabraut kl. 10.30. Öll önnur dagskrá á vegum félags og
tómstundastarfsins fellur niður. Munum að virða fjarlægðamörk og
almennar sóttvarnir.
Vantar þig
hjólbarða?
FINNA.is
mbl.is
alltaf - allstaðar
✝ BernhardSchmidt fædd-
ist 20. maí 1938 í
Reykjavík. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnun Suð-
urnesja 17. október
2020.
Foreldrar hans
voru Kristjana
Schmidt, f. 7. des-
ember 1911, d. 11.
febrúar 1981, og
Róbert Schmidt, f. 15. maí
1911, d. 14. apríl 1982. Bræður
Bernhards eru Ágúst, f. 27.
mars 1945, Grétar, f. 4. mars
1947, og Kjartan Leó, f. 25.
febrúar.
Hinn 11. maí 1965 kvæntist
Bernhard Bryndísi Gísladóttur,
f. 8. janúar 1945. Þau kynntust
í skíðaskálanum í Hveradölum.
Foreldrar hennar voru Gísli
Guðmundsson, f. 18. október
1910, d. 1982, og Hallfríður
Jónsdóttir, f. 1915, d. 1981.
Dætur Bernhards og Bryndísar
eru: 1) Kristjana Schmidt, f.
1965, gift Birgi
Gíslasyni, f. 1966.
Dætur þeirra eru
Bryndís, f. 1990,
Sóley, f. 1995, og
Eva María, f. 2003.
2) Fríða Reyn-
isdóttir, f. 1971,
gift Örvari Hall-
dórssyni, f. 1978.
Dætur þeirra eru
Júlía, f. 2005,
Andrea Líf, f. 2007,
og Ísabella, f. 2009. Barna-
barnabörnin eru tvö.
Bernhard ólst upp í Barma-
hlíð. Hann var í sveit á sumrin
á Steinum undir Eyjafjöllum.
Bernhard var KR-ingur, skíða-
maður og fluguveiðimaður.
Hann lærði rennismíði hjá Agli
Vilhjálmssyni og vann við þá
iðn hjá Vélasjóði ríkisins. Síð-
ustu starfsárin vann hann hjá
Faxa-Stáli.
Útför Bernhards fór fram í
Lindakirkju 27. október 2020.
Hann var jarðsettur í Kópa-
vogskirkjugarði.
Bernhard Reynir Schmidt var
fæddur 20. maí 1938. Hann ólst
upp í Hlíðahverfi í Reykjavík hjá
foreldum sínum, Kristjönu og
Róbert Schmidt rennismið, og
þremur bræðrum, þeim Grétari,
Ágústi og Leó, en Reynir var
elstur af þeim bræðrum.
Bernhard Reynir Schmidt
„eðaltöffari“ lést hinn 17. októ-
ber síðastliðinn. Hann kom inn í
okkar fjölskyldu, sem er mikil
KR-fjölskylda, og var honum
strax vel tekið þar sem hann var
KR-ingur í húð og hár og passaði
vel inn, en hann æfði og keppti
fyrir KR í mörg ár.
Reynir, eins og hann var jafn-
an kallaður, giftist Bryndísi
systur okkar og mágkonu 1965.
Foreldrar hans og foreldrar
okkar urðu miklir vinir. Og ekki
var nú vinskapurinn síðri hjá
Reyni og Gísla tengdapabba
hans. Ófáir veiðitúrarnir farnir
og mikið ferðast um landið.
Fjölskylda Reynis og Bryn-
dísar stækkaði og eignuðust þau
tvær myndarstúlkur, þær Krist-
jönu og Fríðu. Kristjana er líf-
eindafræðingur á Landspítalan-
um en Fríða býr í Seattle í
Ameríku með sinni fjölskyldu.
Reynir og Bryndís héldu ætíð
afar fallegt heimili, nú síðast í
Reykjanesbæ.
Reynir var mikið snyrtimenni
og alltaf fallega klæddur, heimili
og bíl ætíð vel við haldið. Þau
hjón fóru nánast á hverju ári til
útlanda til að skoða sig um og
komu heim með mergjaðar
ferðasögur.
Reynir fetaði í spor föður síns
og lærði rennismíði. Og starfaði
við þá iðn alla tíð, eða þar til
hann hætti og fór að njóta elliár-
anna með Bryndísi sinni, og æv-
intýrin héldu áfram hjá þeim
hjónum.
Takk fyrir samfylgdina.
Hvíl í friði.
Minningin lifir.
Halla Gísladóttir.
Björgvin Gíslason.
Guðbjörg Ragnarsdóttir.
Góður vinur og vinnufélagi til
margra ára, Reynir Schmidt, er
fallinn frá.
Margs er að minnast og marg-
ar skemmtilegar minningar
koma upp í hugann. Þegar ég
stofnaði mína eigin vélsmiðju
fylgdi Reynir mér og er ég æv-
inlega þakklátur fyrir það. Hann
var góður starfsmaður, snilling-
ur í öllu sem hann gerði og vin-
sæll meðal vinnufélaga. Eftir að
við hjónin komumst á aldur og
settumst í helgan stein, leit hann
oft inn til okkar á Hraunbrautina
og var þá mikið spjallað um
gamla tíma og slegið á létta
strengi yfir góðum kaffibolla.
Bryndís mín, innilegar sam-
úðarkveðjur til þín og fjölskyld-
unnar.
Jakob og Dúna.
Þegar sú frétt berst að Reynir
Schmidt sé látinn rifjast upp þau
ár sem Reynir var með okkur
undirrituðum í knattspyrnu hjá
KR fyrir sextíu árum. Reynir
var með okkur í unglingaliðum
og síðar í Meistaraflokki frá
árinu 1960, sem KR vann og
keppt var um bikarmeistara í
fyrsta sinn og áfram. Reynir var
síðan með liði KR á árunum sem
kölluð hafa verið gullöld félags-
ins. Íslandsmeistarar annað
hvert ár, sigrar í Reykjavíkur-
mótum og Bikarmeistarakeppni.
Já, hann Reynir var góður í
fótbolta og var þar líka frábær
félagi, glaðlegur, örvandi og
brosandi mættur á hverju sem
gekk. Á þeim árum sem Reynir
lét til sín taka gekk vel hjá KR
og það var ekki síst vegna fram-
komu hans, gleði og nærveru.
En við vorum ekki bara í fót-
bolta saman, heldur líka félagar,
vinir og ljúfir drengir, hvort
heldur um var að ræða skemmt-
anir, æfingar eða samvinnu, ann-
ars vegar á leikvellinum og hins
vegar í daglegum verkefnum.
Við undirritaðir höfum um
ævina alla látið til okkar taka
hér og þar og kannski stundum
gleymt þessum dögum og tím-
um, þegar fótboltinn réð ferð-
inni. Samskiptin við Reyni hafa
því miður dregist saman eftir því
sem árunum hefur fjölgað og
aldurinn lengst. En Reynir, sem
hét einnig Bernhard, hefur
ávallt verið í huga okkar sem
drengur góður og kviknar stund-
um í endurminningum um hann
og aðra sem allar eru yndislegar.
Ekki síst þegar menn eins og
Reynir hafa átt sinn þátt í kappi,
gleði, hlátrum og yndislegu lífi.
Við félagarnir sem þessa kveðju
skrifum erum þakklátir fyrir að
hafa átt Reyni sem félaga og vin
og notið endurminninga úr sam-
ferðinni með þessum skemmti-
lega og bjarta vini okkar. Við
sendum fjölskyldu og ættingjum
Reynis innilegar samúðarkveðj-
ur.
Ellert B. Schram og
Sveinn Jónsson.
Bernhard Schmidt
Minningar og andlát
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum.
Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru aðgengilegar öllum
en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum.
Á vefnum er að finna upplýsingar um þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber að
höndum og aðrar gagnlegar upplýsingar ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát
Minningargreinar
Hægt er að lesaminningargreinar,
skrifa minningargrein ogæviágrip.
Þjónustuskrá
Listi yfir aðila og fyrirtæki sem
aðstoða þegar andlár ber að höndum.
Gagnlegar upplýsingar
Upplýsingar og gátlisti fyrir
aðstandendum við fráfall ástvina
Minningarvefur á mbl.is