Morgunblaðið - 24.11.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2020
Ragnhildur Þrastardóttir
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
„Nákvæmlega hvað við fáum mikið
af hverju eða hvaða bóluefni við
fáum held ég að sé of snemmt að
segja,“ segir Ingileif Jónsdóttir, pró-
fessor í ónæmisfræði.
Tilkynnt var í gær að bóluefni
AstraZeneca og Oxford-háskóla veiti
um 90% vörn gegn kórónuveirunni ef
það er gefið í réttum skömmtum.
Ingileif segir kosti bóluefnisins
marga, t.a.m. hafi AstraZeneca gefið
það út að bóluefnið verði selt á kostn-
aðarverði og bóluefnið sé auðvelt að
geyma en það er hægt að geyma í
venjulegum ísskáp í sex mánuði. Ís-
land hefur nú aðgang að fjórum bólu-
efnum í gegnum Evrópusambandið,
þar á meðal umræddu bóluefni frá
AstraZeneca. Ingileif segir óljóst
hvort Íslendingar fái nokkrar teg-
undir bóluefna eða bara eina. Það
geti t.d. farið eftir framleiðslugetu.
Alls greindust þrjú kórónuveiru-
smit innanlands í fyrradag. Tveir
þeirra sem greindust voru í sóttkví
við greiningu en sá þriðji utan
sóttkvíar. 10 greindust smitaðir í
landamæraskimun, í einu tilviki
mældist mótefni en ekki í hinum. 45
liggja á sjúkrahúsi veikir af Co-
vid-19, þar af tveir á gjörgæslu.
Fram kom á upplýsingafundi al-
mannavarna að núgildandi sam-
félagstakmarkanir gilda til 1. desem-
ber og hyggst Þórólfur skila tillögum
um framhaldið til heilbrigðisráð-
herra um helgina. Vildi hann lítið
segja um hvað hann hyggst leggja
til, annað en að líklegt verði að þær
takmarkanir muni gilda út árið. Þá
sé unnið að almennum leiðbeiningum
er varða veisluhöld í kringum hátíð-
irnar, sem verði birtar í vikunni.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn
sagði að þeir sem ætluðu að halda jól
á Íslandi þyrftu að fljúga heim í síð-
asta lagi 18. desember til þess að
eiga möguleika á að vera lausir úr
sóttkví á aðfangadag.
Nýjar takmarkanir
muni gilda út árið
Jákvæðar fréttir af þróun bóluefnis Horft til jólahátíðar
1.900
763 806
659
198 eru með virkt smit og í einangrun
0-29 ára 30-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60-69 ára 70-79 ára 80-89 ára 90 ára +
1.900 763 806 659 479 184 86 34
Fjöldi kórónuveirusmita og -dauðsfalla
eftir aldurshópum
H
ei
m
ild
: c
ov
id
.is
3 ný inn an lands smit greindust sl. sólarhring
1 2
4
13
6
Uppsafnaður fjöldi smita innanlands frá 28. febrúar:
26 einstaklingar eru látnir5.289 staðfest smit
Uppsafnaður fjöldi smita Fjöldi látinna
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Norska fiskeldisfyrirtækið Måsøval
gerir ráð fyrir að leitað verði leiða til
að efla samstarf austfirsku fiskeldis-
fyrirtækjanna Laxa fiskeldis og
Fiskeldis Austfjarða. Norska félagið
á meirihluta hlutafjár í Löxum og
hefur nú eignast meirihlutann í Fisk-
eldi Austfjarða.
„Ég tel að þetta sé gríðarlega já-
kvætt skref fyrir greinina í heild og
okkur hér fyrir austan. Måsøval hef-
ur verið kjölfestufjárfestir Laxa fisk-
eldis og stutt vel við bakið á okkur,“
segir Jens Garðar Helgason, fram-
kvæmdastjóri Laxa fiskeldis, spurð-
ur um áhrif kaupa norska félagsins á
Fiskeldi Austfjarða.
Styrkir fjárfestinguna
Midt-Norsk Havbruk, dótturfyrir-
tæki fiskeldissamstæðunnar NTS,
hefur átt meirihluta hlutafjár í Fisk-
eldi Austfjarða og Måsøval Eiendom
AS á meirihlutann í Löxum fiskeldi.
Måsøval átti hlutabréf í Norway Ro-
yal Salmon, NRS, og Havbruks-
invest AS og skiptu fyrirtækin á
þeim hlutabréfum og eignarhlutnum
í Fiskeldi Austfjarða. Þetta eru við-
skipti upp á hátt í 20 milljarða ís-
lenskra króna. Þegar þau verða
gengin í gegn mun Måsøval eiga
55,6% hlut í Ice Fish Farm sem er
norsk eignarhaldsfélag um Fiskeldi
Austfjarða og er skráð á Merkur-
markaðnum í kauphöllinni í Osló og
Midt-Norsk Havbruk fer út úr félag-
inu.
„Måsøval sá fram á tækifæri til að
kaupa þennan hlut í Ice Fish Farm
AS, það var tækifæri til þess að
styrkja rekstur okkar og fjárfest-
ingar á Íslandi með slíkum hætti að
við gátum ekki hafnað því,“ segir í
fréttatilkynningu sem Måsøval sendi
frá sér í gærmorgun. Vísað er til fisk-
eldisleyfa og umsókna Fiskeldis
Austfjarða.
Sjálfstæð til að byrja með
Laxar eru með höfuðstöðvar á
Eskifirði og Fiskeldi Austfjarða á
Djúpavogi. Þau standa saman að
laxasláturhúsinu Búlandstindi á
Djúpavogi. Spurður hvort líkur séu á
sameiningu fyrirtækjanna segir Jens
Garðar að of snemmt sé að segja til
um það. Þau verði áfram rekin sem
sjálfstæð fyrirtæki, að minnsta kosti
til að byrja með. Hins vegar telur
hann að frekari samvinna geti skapað
mikil tækifæri til uppbyggingar fisk-
eldis á Austfjörðum.
Måsøval er tiltölulega lítið fisk-
eldisfyrirtæki á norskan mælikvarða.
Það er fjölskyldufyrirtæki sem verið
hefur í fiskeldi frá árinu 1973 og er
nú í eigu Lars og Anders Måsøval
sem eru af þriðju kynslóð fiskeldis-
manna. Måsøval er með höfuðstöðvar
á eyjunni Frøya í Þrændalögum.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Berufjörður Fiskeldi Austfjarða er með heimahöfn á Djúpavogi.
Stefnt að auknu
samstarfi félaga
Ráða báðum fiskeldisfyrirtækjunum
„Það gengur allt ljómandi vel núna. Það eru rétt um 20
manns í húsinu sem þykir lítið miðað við það sem á
undan er gengið,“ segir Gylfi Þór Þorsteinsson, um-
sjónarmaður farsóttarhússins við Rauðarárstíg.
Farið er að hægja á starfsemi farsóttarhússins eftir
annasaman októbermánuð. Af þeim 20 sem nú dvelja í
húsinu eru 13 sýktir en aðrir í sóttkví. Að sögn Gylfa
voru mest um hundrað manns í tveimur farsóttar-
húsum í síðasta mánuði.
„Frá því seinni bylgja hófst 15. júní hafa 797 manns
dvalið hjá okkur og þar af hafa 355 verið Covid-
jákvæðir. Við toppum Landspítalann hvað það varðar,“ segir Gylfi.
Hann segir að með auknu flugi hingað til lands í kringum jólin megi
búast við að fleiri fái þar inni. Þó sé líklegt að flestir sem komi hingað
yfir hátíðirnar geti verið í sóttkví á þeim stað sem þeir ætli að dveljast
á.
Aðeins 20 í farsóttarhúsi
FARIÐ AÐ HÆGJA Á STARFSEMINNI EFTIR ANNIR Í OKTÓBER
Gylfi Þór
Þorsteinsson
Mikið óveður gekk yfir Færeyjar um
helgina. Það olli því að skipið Tuk-
uma Arctica, sem lá við bryggju í
Þórshöfn, losnaði frá hafnarbakk-
anum aðfaranótt laugardags, færðist
til í höfninni og skorðaðist við hinn
enda hennar.
Tukuma Arctica er eitt af þremur
skipum í samsiglingum Eimskips og
grænlenska skipafélagsins Royal
Arctic Line. Þegar veðrinu slotaði
var skipið fært að réttri bryggju og
skemmdir kannaðar. Engin slys urðu
á fólki og engar skemmdir á farmi
ásamt því að engar vísbendingar
voru um olíuleka.
Viðgerð á skipinu lauk í gærmorg-
un og hélt það úr höfn áleiðis til Dan-
merkur á tíunda tímanum. Um borð
eru m.a. vörur sem lestaðar voru á
Íslandi og verður einhver töf á af-
hendingu þeirra.
Brúarfoss, hið nýja skip Eim-
skips, kom til Færeyja í fyrrakvöld.
Skipið gat ekki lagst að bryggju fyrr
en Tukuma Arctica var farið, því að-
eins er pláss í höfninni fyrir eitt skip
í þessum strærðarflokki. Hin nýju
skip Eimskips eru 26.169 brúttó-
tonn. Því verður seinkun á því að
Brúarfoss komi til Reykjavíkur í
fyrsta sinn og er hann væntanlegur
á miðvikudaginn.
sisi@mbl.is
Morgunblaðið/sisi
Tukuma Arctica Skipið kom í fyrsta skipti til Reykjavíkur í apríl sl.
Óhapp tafði för
Grænlenska skipið Tukuma Arctica
slitnaði frá bryggju Brúarfossi seinkar