Morgunblaðið - 24.11.2020, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 24.11.2020, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2020 Ég hóf nýlega störf sem íþróttablaðamaður. Á tímum kórónuveirunnar hefur það verið sérlega áhugavert. Ég hlaut eldskírn mína á knattspyrnuleik í byrjun október þar sem ég fór með beina textalýsingu og tók viðtöl. Í kjölfar þessa leiks sá ég fram á að taka nokkra leiki í við- bót í síðustu umferðum Pepsi Max-deilda karla og kvenna. Daginn eftir leikinn var sett upp plan í því skyni og ég fullur til- hlökkunar að fá að fara á fleiri leiki og lýsa þeim. Degi síðar var allri íþrótta- iðkun frestað og því skyndilega engir leikir til að fara á. Um mánuði síðar var sett upp nýtt plan með nýjum dagsetningum, aftur átti ég að fara á knatt- spyrnuleiki, lýsa þeim og taka viðtöl. Örfáum dögum síðar var það plan aftur að engu orðið þegar Íslandsmótinu í knatt- spyrnu var aflýst með öllu. Fjöl- breytt verkefni hafa komið í kjöl- farið á íþróttadeildinni en ég viðurkenni fúslega að ég sakna þess að fara á leiki. Nú bíður maður og vonast eftir því að handboltinn og körfuboltinn fái að fara af stað á næstunni. Enn hefur nýtt leikja- plan ekki litið dagsins ljós enda mega leikmenn ekki einu sinni æfa sökum sóttvarnareglna. Þær tilslakanir sem búist er við að verði tilkynntar í lok mán- aðarins gefa vonandi íþrótta- hreyfingunni gaum og leyfa æf- ingar og kappleiki að nýju. Þegar nýtt leikjaplan lítur svo dagsins ljós þyrfti kannski að fara varlega í að setja upp plan fyrir mig að fara á leiki, því það hefur hingað til ekki kunnað góðri lukku að stýra. BAKVÖRÐUR Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.isJón Stefán Jónsson, annar þjálfara kvennaliðs Tindastóls í knatt- spyrnu, hefur sagt starfi sínu lausu. Ástæðuna segir hann vera þá að hann geti ekki verið búsettur á Sauðárkróki allan ársins hring vegna dagvinnu sinnar. Tindastóll vann 1. deildina í sumar og komst upp í efstu deild í fyrsta skipti í sög- unni og þjálfaði Jón liðið ásamt Guðna Þór Einarssyni. Í yfirlýsingu frá Tindastóli er Jóni Stefáni þakk- að fyrir ómetanlegt starf og greint frá því að leit að eftirmanni hans sé þegar hafin. Jón yfirgefur Tindastól Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson Sauðárkrókur Tindastóll fær nýjan þjálfara fyrir næsta tímabil. Jóhann Berg Guðmundsson lék sinn 100. leik í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöld er Burnley náði í sinn fyrsta sigur, 1:0, gegn Crystal Palace. Chris Wood skoraði sigur- markið snemma leiks. Jóhann er sjöundi Íslendingurinn sem nær 100 leikjum í deildinni. Wolves og Southampton skildu jöfn, 1:1, í hinum leik gærdagsins. Theo Walcott kom Southampton yf- ir í seinni hálfleik en varamaðurinn Pedro Neto jafnaði fyrir Southamp- ton stundarfjórðungi fyrir leikslok og þar við sat. AFP Hundrað Jóhann Berg hefur leikið 100 leiki í ensku úrvalsdeildinni. Jóhann Berg lék 100. leikinn GOLF Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili náði sínum besta árangri frá upphafi á Evrópu- mótaröðinni í golfi á The Saudi La- dies Team International-mótinu á Royal Greens-vellinum í Sádi-Arabíu á dögunum. Guðrún Brá hafnaði í 39. sæti en hún lék fyrsta hringinn á þremur höggum undir pari og var í þriðja sæti eftir fyrsta keppnisdag. Henni fataðist hins vegar flugið þegar leið á mótið og lék á samtals þremur högg- um yfir pari. Kylfingurinn, sem varð Íslands- meistari þriðja árið í röð í sumar, keppti einnig á Saudi Ladies Int- ernational-mótinu í Sádi-Arabíu, dagana 12.-15. nóvember, en þar náði hún sér ekki á strik. „Ég er mjög sátt með árangurinn á síðasta móti þótt maður geti auðvit- að alltaf gert betur,“ sagði hin 26 ára gamla Guðrún Brá í samtali við Morgunblaðið. „Ég spilaði ekki nægilega vel á fyrra mótinu en það má kannski skrifa það aðeins á leik- og keppnis- æfingu ef svo má segja. Ég var kom- in betur í gang á seinna mótinu og það sást á spilamennskunni. Mér gekk virkilega vel á fyrsta keppnis- degi en á öðrum keppnisdegi var ég með rástíma fyrri part dags og það byrjaði að hvessa mikið seinni part- inn og hringirnir tveir voru því erf- iðari en fyrsti hringurinn. Ég ætla ekki að fara að nota það sem einhverja afsökun en vindurinn spilaði klárlega inn í. Þá var pútter- inn ekki alveg jafn heitur eins og fyrri daginn og á þessu stigi golfsins er oft mjög lítill munur á því að spila illa og vel. Ég vil þess vegna ekki ganga svo langt og tala um vonbrigði á seinni keppnisdeginum en ég er al- veg tilbúin að segja það upphátt að ég hefði getað spilað betur. Eins og ég sagði í viðtölum fyrir mótið þá hafði ég í raun ekki spilað neitt golf af viti mánuðinn áður en ég fer út, og það hefur alltaf áhrif þegar á hólminn er komið,“ bætti Íslands- meistarinn við. Kylfingurinn fékk ekki mörg tæki- færi til þess að upplifa Sádi-Arabíu enda strangar sóttvarnareglur þar í landi vegna kórónuveirufaraldurs- ins. „Það var frábært að fá tækifæri til þess að taka þátt í fyrsta kvenna- golfmótinu sem fer fram í Sádi- Arabíu. Þeir eru með herferð í gangi núna þar sem þeir hvetja konur til að taka þátt í golfíþróttinni og konum var t.d. boðið frítt ár- og félagsgjald hjá stærstu golfklúbbunum í landinu. Það voru einhver 1.000 pláss í boði og það fylltist strax þannig að að- sóknin og áhuginn er svo sannarlega til staðar. Þetta er allt á réttri leið í landinu og konur mega t.d. keyra núna en ég get alveg viðurkennt að það er erfitt að tengja við þetta. Það virðist hins vegar vera fólk þarna sem er að kalla eftir breytingum og þetta er á leið í rétta átt. Sjálf fann ég ekki mikið fyrir þessu enda mjög strangar sóttvarna- reglur í gangi vegna kórónuveiru- faraldursins. Ég var nánast ein- göngu á golfvellinum og svo í „búbblu“ á hótelinu en þetta hefur vissulega verið skrítið. Maður er orð- inn aðeins vanur þessu en það er skrítið að geta ekki borðað með vin- konum sínum eða spilað æfinga- hringi með þeim og þess sakna ég mest.“ Erfitt og krefjandi Guðrún viðurkennir að kórónu- veirufaraldurinn hafi gert henni erf- itt fyrir og að veiran hafi haft mikil áhrif á keppnistímabilið. „Ég vann mér inn fullan keppnis- rétt á Evrópumótaröðinni í ár en í staðinn fyrir að keppa á yfir tuttugu mótum á árinu hef ég spilað á ein- hverjum sjö mótum eins og staðan er í dag. Það er gríðarlega erfitt að ferðast á milli landa í dag vegna far- aldursins og flugferðir falla niður hægri vinstri þannig að þetta hefur verið mjög erfitt og krefjandi. Peningalega séð hefur þetta verið mikið hark og ég hef þurft að vinna með golfinu þegar ég hef verið heima á Íslandi í Kúnígúnd í Kringl- unni. Forskot, styrktarsjóður kylf- inga á Íslandi, hefur staðið mjög þétt við bakið á mér í ár og það er í raun þeim að þakka að ég hef getað stund- að golfið eins og ég hef gert á tíma- bilinu. Þetta eru erfiðir og krefjandi tímar en það eru allir í þessari stöðu og sama hvað þú ert að gera þá er óvissa hjá öllum. Það hjálpar ekki að stressa sig á hlutum sem ekki er hægt að stjórna og þetta er sama hugsun og í golfinu í raun. Mitt sæti á Evrópumótaröðinni á næsta ári er öruggt og eftir að ég fékk þær fréttir hefur stressið minnkað til muna. Ég á svo von á því að fá mótanið- urröðun fyrir næsta tímabil í vik- unni. Planið er að byrja hægt og svo fer allt af stað eftir maímánuð. Það verður mestmegnis spilað í Evrópu en það er erfitt að festa eitthvað enda mikil óvissa sem ríkir í heim- inum í dag,“ bætti Guðrún við. Meistarinn þarf að vinna fyrir sér á Íslandi Ljósmynd/LET Högg Guðrún Brá Björgvinsdóttir slær af braut í Sádi-Arabíu.  Guðrún Brá náði sínum besta árangri á Evrópumótaröðinni í Sádi-Arabíu Dagný Brynj- arsdóttir, lands- liðskona Íslands í knattspyrnu og leikmaður Sel- foss, er á leið í Val samkvæmt heimildum mbl.is. Dagný, sem er 29 ára gömul, sneri heim úr at- vinnumennsku síðasta haust og samdi við Selfoss. Hún lék þrettán leiki með liðinu í úrvalsdeildinni, Pepsi Max-deildinni, í sumar þar sem hún skoraði fimm mörk. Miðjumaðurinn þekkir vel til á Hlíðarenda en hún lék með liðinu frá 2007 til ársins 2013 og varð þrí- vegis Íslandsmeistari með liðinu, 2007, 2008 og 2009. Þá varð hún einnig bikarmeistari með liðinu 2010 og 2011. Dagný hefur leikið með Bayern München og Portland Thorns á atvinnumannaferli sínum en hún á að baki 118 leiki í efstu deild þar sem hún hefur skorað 44 mörk. Þá á hún að baki 90 A-lands- leiki þar sem hún hefur skorað 29 mörk. Dagný verður þriðji leikmað- urinn sem skrifar undir samning við Hlíðarendaliðið á stuttum tíma en þær Mary Vignola og Anna Rak- el Pétursdóttir leika báðar með lið- inu á næstu leiktíð.Valskonur höfn- uðu í öðru sæti Íslandsmótsins í ár. bjarnih@mbl.is Frá Selfossi á Hlíðarenda Dagný Brynjarsdóttir „Maður er alltaf hissa þegar maður vinnur svona verðlaun en á sama tíma erum við búin að eiga frábært tímabil,“ sagði Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, í samtali við Morgunblaðið en hún var útnefnd þjálfari ársins í Svíþjóð um helgina. Kristianstad, sem var stofnað árið 1998, hafn- aði í þriðja sæti sænsku úrvalsdeildarinnar á ný- liðnu tímabili en þetta er besti árangur liðsins frá upphafi. Þá leikur liðið einnig í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn á komandi keppnistímabili. Beta, sem er 44 ára, tók við þjálfun liðsins árið 2009 og var því að ljúka sínu tólfta tímabili sem þjálfari liðsins en hún var einnig útnefnd þjálfari ársins árið 2017. „Þó að nafnið mitt sé skráð fyrir þessari viður- kenningu þá eru þetta fyrst og fremst verðlaun fyrir allt þjálfarateymið. Við höfum unnið ótrú- lega vel saman á þessu ári og ég deili þessum verðlaunum með þeim. Það var gaman að vinna verðlaunin árið 2017 en mér fannst ég satt best að segja varla eiga það skilið á þeim tíma. Linköping varð meistari það ár með miklum yfirburðum en í ár áttum við svo sannarlega frábært tímabil og það er kannski stærsti munurinn á viðurkenningunum tveimur.“ Það hefur ýmislegt breyst í þjálfaratíð Betu í Kristianstad. „Ég var ung þegar ég kom hingað fyrst og ég ætlaði að gera allt í sjötta gír. Ég ætlaði mér að sigra heiminn og var ef til vill hálfhrokafull líka í minni nálgun á verkefnið. Ég hef lært mikið og það hefur ýmislegt breyst, þar með talin ég og auðvitað ýmislegt í kringum félagið líka,“ bætti þjálfarinn við. bjarnih@mbl.is Ljósmynd/@_OBOSDamallsv Útnefnd Elísabet er þjálfari ársins í Svíþjóð. Ætlaði að gera allt í sjötta gír

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.