Morgunblaðið - 24.11.2020, Blaðsíða 25
Þau bjuggu á Siglufirði og síðar í
Hafnarfirði. Börn Rutar og Bolla
eru: 1) Dagný, f. 9.11. 1979, mál-
fræðingur, kennari og markþjálfi
í Garðabæ, gift Hugin Frey Þor-
steinssyni, f. 29.12. 1978, heim-
spekingi og ráðgjafa hjá Aton.JL.
Þau eiga börnin Bolla Stein, f.
25.11.2000, Gunnar Bjart, f. 19.11.
2005, Freyju, f. 22.9. 2009, og
Indriða Hrafn, f. 10.8. 2011. 2)
Birna, f. 10.6. 1989, lista- og
menningastjóri, í sambúð með
Joakim Wallin, f. 10.2. 1988, at-
vinnutrommuleikara. Þau eru bú-
sett í Stokkhólmi í Svíþjóð og
eiga Eskil Wallin, f. 28.9. 2017. 3)
Dagur, f. 21.11. 1991, stefnumót-
unarsérfræðingur, umhverfisstjóri
hjá Búseta, í sambúð með Söru
Teresu Jónsdóttur, f. 9.10. 1992,
sálfræðinema. Þau eiga dótturina
Bríeti Maríu, f. 19.6. 2019.
Systkini Rutar eru Guðbjörg, f.
28.4. 1945, d. 3.5. 2010, öldr-
unarhjúkrunarfræðingur í Dan-
mörku; Kristín María, f. 2.9.
1947, d. 29.11. 1950; Jóhann
Fróði, f. 5.9. 1948, vélfræðingur í
Assens í Danmörku; Kristján
Marinó, f. 26.5. 1951, viðskipta-
fræðingur í Hafnarfirði; drengur
óskírður, f. 16.4. 1952, d. 20.6.
1952; Kristín María, f. 29.6. 1953,
þroskaþjálfi og kennari í Hafnar-
firði; Guðmundur Hólm, f. 23.8.
1954, útgerðatæknir í Hafn-
arfirði; Ragnar, f. 6.4. 1957, stýri-
maður í Garðabæ, og Birgir, f.
20.4. 1958, stýrimaður í Reykja-
vík.
Foreldrar Rutar eru hjónin
Hólmfríður Soffía Jóhannsdóttir,
f. 21.5. 1924, d.9.4. 2007, verka-
kona á Þórshöfn og í Hafnarfirði,
og Indriði Guðmundsson, f. 7. 11.
1914, d. 18.7. 1976, vélstjóri og
útgerðarmaður á Þórshöfn.
Rut
Indriðadóttir
Guðbrandur Guðbrandsson
bóndi á Syðri-Brekkum og víðar á
Langanesi
Margrét Jónsdóttir
húsm. á Syðri-Brekkum á Langanesi
Guðmundur Guðbrandsson
sjómaður og sigmaður á
Skálum á Langanesi
Guðbjörg Óladóttir
húsm. á Brimnesi á Langanesi
Indriði Guðmundsson
vélstjóri og
útgerðarmaður á
Þórshöfn
Óli Jóhannes Jónsson
bóndi og söðlasmiður í
Sveinungsvík í Þistilfirði
Þórunn Gunnarsdóttir
húsm. í Sveinungsvík í Þistilfirði
Stefán Jónsson
b. á Læknesstöðum á Langanesi
Hólmfríður Soffía Helgadóttir
húsmóðir á Læknesstöðum á
Langanesi
Jóhann Stefánsson
bóndi á Skálum á Langanesi
María Friðriksdóttir
húsm. á Skálum á Langanesi
Friðrik Jónatansson
útvegsbóndi og hreppstjóri
í Efri-Sandvík í Grímsey
Kristrún Konkordía Stefánsdóttir
húsmóðir í Efri-Sandvík í Grímsey
Úr frændgarði Rutar Indriðadóttur
Hólmfríður Soffía
Jóhannsdóttir
verkakona á Þórshöfn
og í Hafnarfirði
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2020
LJÓSAKRÓNUR Í ÚRVALI
Ármúla 24 • rafkaup.is
„ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ TALA VIÐ RAFVIRKJA.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... það sem hjálpar mér
í gegnum vinnudaginn.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HEHEMM… VOFF HVAÐ VAR
NÚ ÞETTA?
SÝNISHORN AF
ÞVÍ SEM KOMA
SKAL
AMLÓÐI, ÉG VIL AÐ
ÞÚ LÆRIR ALLT UM
FELUBÚNINGA… OG ÞESS
VEGNA ÁTTU AÐ KOMA MEÐ Í
RÁNSFERÐINA Á MORGUN!
HÉR!
Æ,
PABBI…
AMLÓÐI? HVAR ERTU?
FYLGSTU
MEÐ ÖÐRU
FÓLKI ÚR
ÖRUGGRI
FJARLÆGÐ
50 KR.
Helgi R. Einaesson yrkir „Einaleiðundalimru“:
Nær yfir Ásdísi leið
er Ási villtist af leið.
Fyrir það leið,
varð fokreið um leið,
en nú Ásdís ei lengur er leið.
Það er nú gott að hún jafnaði sig.
Ragnar Ingi Aðalsteinsson orti
um „metoo-byltinguna“:
Móðir, kona og meyja
margt hef ég við þig að segja;
ég hef ýmislegt gert
sem er ámælisvert.
Þakka þér fyrir að þegja.
Björgólfur Þorvarðarson yrkir
svo um þríeykið:
Þríeykið er lausnalið,
lyftir grettistaki,
Covid 19 kannast við
með Kára sér að baki.
Gunnar Hólm Hjálmarsson yrkir á
Boðnarmiði með þeirri athugasemd,
að Brynjar Níelsson ætli ekki að láta
bólusetja sig við kórónuveirunni:
Brynjar minn böl þitt ég þekki
bundinn í sérvisku hlekki.
Ég bóluset mig
sem björg fyrir þig.
Það er smámál svo – smitist þú ekki.
Hallmundur Guðmundsson yrkir
um „Þrautaráð Klausturbandalags-
ins“:
Þegar Vigdís til sæmdar sótti,
settist að flokknum ótti.
Þá formaður fann
að varaformann,
fjarri því þurfa þótti.
Friðrik Steingrímsson rifjaði upp,
að hann orti um klausturmálið á sín-
um tíma:
Með orðbragði undan sér skáru
og æran er nú fyrir bí
á klaustri var borð fyrir Báru
en bjánarnir viss’ekk’af því.
Jón Atli Játvarðarson yrkir með
þessari athugasemd: „Bara halda sig
við norgarmálin. Þá verður allt
notalegt“:
Vigdís létt með lundargeð
en leiðist brokkið Faxa.
Heldur Degi hangir með
og hlustar á grasið vaxa.
Hér eru tvær öfugmælavísur
gamlar:
Til altaris ég úlfinn sá,
asnann prestinn skrýða,
örn og smyril arni á
af sér fiðrið svíða.
Eldi er best að ausa í snjó,
eykst hans log við þetta,
gott er að hafa gler í skó
þá gengið er í kletta.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ein leiðindalimra, þríeykið
og klausturbandalagið