Morgunblaðið - 24.11.2020, Qupperneq 11
Verndunarsjón-
armiða ekki gætt
Elliðaárvirkjun og mannvirki henn-
ar voru friðuð af mennta- og menn-
ingarmálaráðherra 14. júlí 2012 og
teljast friðlýst samkvæmt lögum um
menningarminjar. Friðlýsingin nær
meðal annars til Árbæjarstíflu.
Þetta kemur fram í bréfi Minja-
stofnunar Íslands til Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) frá 19. nóvember
sl. vegna tæmingar Árbæjarlóns til
frambúðar. Það voru Hollvina-
samtök Elliðaárdals sem bentu
Minjastofnun á tæmingu lónsins.
Stofnunin fékk ekki tilkynningu frá
OR um að tæma ætti lónið fyrir ofan
Árbæjarstíflu til frambúðar. „Því
hefur sjónarmiða um verndun menn-
ingarminja ekki verið gætt sem
skyldi,“ segir m.a. í bréfinu.
Minjastofnun bendir á það í bréfi
sínu að samkvæmt lögum um menn-
ingarminjar gildi það um friðlýst hús
og mannvirki að óheimilt sé að gera
nokkrar breytingar á friðlýstu húsi
eða mannvirki án vitundar Minja-
stofnunar Íslands. Leita skuli álits
stofnunarinnar við endurbætur og
viðhald friðlýstra húsa og mann-
virkja og, ef til þurfi, leyfis Minja-
stofnunar Íslands með minnst sex
vikna fyrirvara
Minjastofnun óskar eftir upplýs-
ingum frá OR um hvers vegna stofn-
uninni var ekki kynnt að til stæði að
tæma Árbæjarlón til frambúðar.
Einnig hvort gerðar hafa verið var-
anlegar breytingar á Árbæjarstíflu,
sem er friðlýst mannvirki, við þá að-
gerð? Jafnframt var óskað upplýs-
inga um hvort gerð hafi verið könn-
un á því hvort og þá hvaða áhrif það
kunni að hafa á varðveislu Árbæj-
arstíflu ef ekki verður lengur uppi-
stöðulón fyrir ofan hana.
Undir bréfið rita Guðný Gerður
Gunnarsdóttir, minjavörður Reykja-
víkur og nágrennis, og Pétur Ár-
mannsson, sviðsstjóri og arkitekt.
gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Árbæjarstífla Lónið var tæmt til
frambúðar 29. október 2020.
Minjastofnun krefur OR um svör
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2020
SMÁRALIND
www.skornir.is
Netversl
un
www.sko
rnir.is
Vatnsheldir
Kuldaskór
Innbyggðir
broddar í sóla
Verð 19.995
Stærðir 36 - 47
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég held að þessi staðsetning henti
mörgum sem nota þjónustuna bet-
ur,“ segir Anna De Matos,
stofnandi og framkvæmdastjóri
Munasafns Reykjavíkur, sem opnað
var við Laugaveg 51 á dögunum.
Munasafnið var fyrst opnað úti á
Granda árið 2018 og starfsemi þess
mæltist vel fyrir en kórónuveiran
setti strik í reikninginn fyrr á árinu.
„Við gátum ekki borgað leiguna þar
og urðum að flytja,“ segir Anna. Í
fyrstu fékk Munasafnið aðstöðu í
kjallaranum á Laugavegi 51 en svo
náðust hagstæðir samningar við
leigusala um að taka einnig við aðal-
hæðinni. Anna segir í samtali við
Morgunblaðið að hún vonist til að
starfsemi Munasafnsins hjálpi til við
að lífga upp á Laugaveginn og hvetur
fleiri grasrótarsamtök og -fyrirtæki
að flytja starfsemi sína þangað. Ljóst
sé þó að húsaleiga þurfi að lækka á
svæðinu.
Munasafn Reykjavíkur er einnig
þekkt sem Reykjavík Tool Library.
Anna segir að um félagasamtök sé að
ræða sem byggi á hugmyndafræðinni
um deilihagkerfið. Hún líkir starf-
seminni við bókasafn nema fyrir
verkfæri og ýmsa aðra hluti. „Þó þú
eigir ekki hlutina þarftu samt að nota
þá,“ segir Anna og útskýrir að gegn
vægu félagsgjaldi geti fólk fengið
lánuð verkfæri, útilegutól eða jafnvel
súpupott og Kitchen Aid-hrærivél
fyrir veisluna.
„Þannig minnkum við sóun, nýtum
betur það sem er nú þegar til og
stuðlum að frekari sjálfbærni og
grænni þróun samfélagsins,“ segir
hún. Starfsemin er ekki í hagnaðar-
skyni og það sem afgangs er nýtist í
svokölluð viðgerðarkvöld sem haldin
eru mánaðarlega. Þá getur fólk kom-
ið með muni og hjálpast að við endur-
bætur á þeim.
Í tilkynningu kemur fram að
Munasafn Reykjavíkur mun einnig
bjóða upp á samvinnurými fyrir
sprotafyrirtæki og aðgengi að fram-
leiðslurými með stærri og sérhæfðari
verkefnum og vöruþróun. Þar að
auki verður sýningarrými og aðgengi
að sýningarplássi á besta stað á
Laugaveginum sem hægt er að leigja
til þess að kynna vörur og selja.
Morgunblaðið/Eggert
Líflegt Anna De Matos er ánægð með að Munasafnið hafi fengið húsnæði á Laugavegi og horfir björt fram á veginn.
Vonar að Munasafnið
færi aukið líf á Laugaveg
Hægt að fá lánuð verkfæri og hrærivél gegn vægu gjaldi
„Þótt árangur á prófum sleppi til finn
ég vel að krakkarnir óttast að skiln-
ingur þeirra á námsefni sé kannski
minni en ella. Mörg óttast að undir-
stöður þeirra í námi verði til lengri
tíma litið veikari
en ella,“ segir Júl-
íus Viggó Ólafs-
son, formaður
Sambands ís-
lenskra fram-
haldsskólanema.
Fulltrúar sam-
bandsins hafa að
undanförnu verið
í samtali við skóla-
fólk um raskanir
sem orðið hafa á námi þeirra vegna
kórónuveirunnar. Hafa þau einnig átt
vikulega fundi með Lilju Alfreðs-
dóttur menntamálaráherra um þessi
sömu efni.
„Þegar framhaldsskólanemar eru
heima svo mánuðum skiptir verður
aðhald í námi lítið og leiðbeiningar frá
kennurum aldrei neitt í líkingu við
hvað gerist í staðnámi. Skipulag í
náminu riðlast og sumir nemendur
segja að í heimanámi upplifi þeir sig
eins og á eyðieyju. Séu eins konar
Róbínson Krúsó,“ segir Júlíus Viggó,
sem sjálfur er nemandi við Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja og stefnir að
brautskráningu með stúdentspróf nú
um jólin.
Í flestum framhaldsskólum lands-
ins er kennt út líðandi viku, en í þeirri
næstu hefjast próf. Ljóst er að flestir
nemendur munu taka prófin yfir net-
ið og segir Júlíus ósk nema að fyrir-
komulag prófa taki mið af óvenju-
legum aðstæðum.
Brottfall segir takmarkaða sögu
„Bakgrunnur eftir nám nú á haust-
önn er veikari en venjulega. Efnis-
próf þar sem nemendur hafa náms-
bækur tiltækar væru æskileg. Margir
kvíða prófum og andlega líðan hefur
oft borið á góma í samtölum okkar við
stjórnendur skóla og ráðherra. Allir
eru meðvitaðir um þann þátt mála,
segir Júlíus og heldur áfram:
„Að brottfall úr skólunum hafi ekki
aukist á tímum veirunnar segir tak-
markaða sögu. Framboð atvinnu nú
er takmarkað, framhaldsskólanemar
hafa því fáu að hverfa að og halda því
áfram í skólanum. Í stóra samheng-
inu er svo verðugt að hafa í huga
langtímaáhrif af ringulreið á skóla-
starfi á landsframleiðslu og hagvöxt.
Menntun er afgerandi áhrifaþáttur í
því sambandi og því þarf kröftuga
inngjöf í skólamálum þegar veiran er
afstaðin.“ sbs@mbl.is
Nemar óttast
minni skilning
Heimanám minnir á Róbínson Krúsó
Morgunblaðið/Eggert
Grímutími Nýnemar í kennslustund í Verzlunarskóla Íslands í sl. viku.
Júlíus Viggó
Ólafsson