Morgunblaðið - 24.11.2020, Page 21

Morgunblaðið - 24.11.2020, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2020 ✝ Þyri DóraSveinsdóttir snyrtisérfræðingur fæddist í Reykjavík 18. febrúar 1945. Hún lést á heimili sínu 11. nóvember 2020. Foreldrar henn- ar voru hjónin Sveinn Helgi Sig- urðsson, f. 7. júní 1918, d. 10. október 1970, og Fjóla Vilmundardóttir, f. 13. janúar 1917, d. 6. apríl 1998. Bróðir Þyri Dóru var Sig- urður Helgi Sveinsson, f. 15. september 1953, d. 18. maí 2018. Börn Sigurðar Helga eru Bóas Helgi, f. 23. desember 1979, Fjóla Ruth, f. 3. maí 1982, Sveinn Helgi, f. 24. október 2011, og Eiríkur Helgi, f. 17. er Brynja Rós Thelmudóttir. Börn Kristins og Herdísar eru: a) Andrea, f. 7. júní 1988, maki Jón Friðrik Jónatansson, f. 7. desember 1987, sonur Andreu og Jóns Friðriks er Birnir, f. 16. janúar 2020. b) Tómas Árni, f. 28. desember 1993, maki Katrín Vera, f. 3. september 1998. c) Katrín Ása, f. 2. september 1999. Dóttir Kjartans af fyrra sam- bandi er Dóra Kjartansdóttir Welding, f. 15. janúar 1967, maki Hinrik Þráinsson, f. 20. nóvember 1965. Börn þeirra eru: a) Rebekka, f. 25. sept- ember 1990, dóttir Rebekku er Díana Marín Rúnarsdóttir, f. 27. júlí 2012. b) Viktoría, f. 26. ágúst 1994, maki Kristján Ingi Krist- jánsson, f. 2. október 1993. Son- ur Viktoríu og Kristjáns Inga er Hinrik, f. 25. júní 2020. Þyri Dóra ólst upp á heimili foreldra sinna í Reykjavík, fyrst við Óðinsgötu og síðar við Heið- argerði. Hún lauk landsprófi og hóf nám sitt á hárgreiðslu- og snyrtistofunni Valhöll við Laugaveg árið 1963, sem hún lauk með þriggja mánaða náms- dvöl í París. Eftir heimkomu starfaði hún á Valhöll til ársins 1965 en þá hóf hún störf hjá Snyrtihúsinu, þar sem hún starf- aði í fimm ár. Til ársins 1980 starfaði hún við fag sitt sem og hjá heildsölu sem umsjónarkona margra þekktustu vörumerkja snyrtivöruiðnaðarins. Árið 1980 stofnaði hún snyrtistofuna og verslunina Ársól í Grímsbæ ásamt samstarfskonu, frá árinu 1991 rak hún fyrirtækið ein. Hún lagði metnað sinn og stolt í rekstur stofunnar, sem hún starfrækti með dugnaði allt til dauðadags. Þyri Dóra var einn elsti starfandi snyrtisérfræð- ingur landsins, ef ekki sá elsti. Þyri Dóra verður jarðsungin frá Fossvogskapellu í dag, 24. nóvember 2020, klukkan 15, að viðstöddum nánustu ættingjum. Streymt verður frá athöfninni á slóð: https://youtu.be/PZhTKEo- ui7E/. Nálgast má virkan hlekk á streymið á: https://www.mbl.is/ andlat/. janúar 2013. Eftirlifandi eig- inmaður Þyri Dóru er Kjartan Ágústs- son, f. 26. janúar 1943, en þau giftust árið 1972. For- eldrar Kjartans voru Ágúst Snorra- son Welding, f. 16. júní 1920, d. 10. febrúar 1994, og Jóhanna Þórólfs- dóttir, f. 15. febrúar 1921, d. 29. ágúst 2012. Sonur Þyri Dóru og Kjartans er Sveinn Helgi, f. 2. júlí 1980. Sonur Þyri Dóru af fyrra sam- bandi er Kristinn Tómasson, f. 13. desember 1965, maki Herdís Sigurðardóttir, f. 25. mars 1965. Dóttir Kristins er Thelma Rut, f. 28. janúar 1982, dóttir Thelmu Elsku amma mín, nú ertu komin á fallegan stað til ömmu Grétu. Takk fyrir allt og takk fyrir að vera alltaf svona hvetjandi og góð og passa að maður ætti alltaf nóg af öllu, sérstaklega því sem tengdist húðinni; maður var allt- af fínn og með bestu kremin! Sakna þess að heyra í þér, amma mín, en ég veit að þú ert komin á betri stað og að þér líður mun betur. Elsku amma mín, guð og engl- ar varðveiti þig og ég hlakka til að sjá þig síðar. Elska þig, amma. Þín Rebekka. Við höfðum mælt okkur mót 10. nóvember. Ég lagði rós á borðið fyrir framan hana en hugsaði um leið hvernig datt mér í hug að kaupa svona föllita rós? Ekki hvarflaði að mér að næsta morgun væri Þyri Dóra öll. Hún var eins og rós, falleg, í sterkbleikum litum, jákvæð, góð og tillitsöm. Mikið söknum við hennar. Þyri Dóra soroptimistasystir okkar til næstum 40 ára var sterkur hlekkur í klúbbnum, mikil félagsvera, alltaf til í vera með, hvetjandi í að taka þátt í öllu sem í gangi var hjá soroptim- istum. Eftir stöndum við hljóðar og söknum vinkonu og systur. Þegar við fórum í ferðalög eins og í Munaðarnes eða að Reykjum í Hrútafirði, sem við gerðum hvert haust árum saman, eða á landssambandsfundi utan höfuð- borgarsvæðisins, var það órjúf- anlegur þáttur af gleðinni að Þyri Dóra væri með fulla tösku af prufum og snyrtivörum og allar fengum við tilsögn um rétt val á litum og ráðleggingar um með- ferð. Þyri Dóra var snyrtifræð- ingur eins og þær gerast bestar. Fagið var líf hennar og yndi. Hún var ekki hávær en einstaklega traust, mikil dama og elegans sem fylgdi henni. Þyri Dóra rak snyrtistofu áratugum saman og allt fram á síðasta dag. Þangað komum við klúbbsystur reglu- lega, hvort sem var til þess að spjalla eða fá snyrtingu. Oft talaði Þyri Dóra um ógleymanlegu ferðirnar okkar klúbbsystra til Jersey og Álands- eyja. Ljúfar voru þær og mikil vinátta og kærleikur innan hóps- ins. Þyri Dóra var mörg ár í fjár- öflunarnefnd fyrir klúbbinn og stóð hún vaktina af sömu sam- viskusemi og dugnaði eins og í öðru sem hún tók að sér. Þá var Þyri Dóra þátttakandi í vikulegum gönguferðum klúbbs- ins árum saman. Þegar veikindi hennar gerðu vart við sig og hún treysti sér ekki til þess að ganga langar vegalengdir kom hún allt- af þegar heilsan leyfði í kaffi með okkur eftir gönguferðir. Þá var spjallað og skipst á skoðunum um málefni líðandi stundar. Við þökkum Þyri Dóru ára- tuga vináttu og samfylgd og sendum fjölskyldu hennar inni- legar samúðarkveðjur. Fyrir hönd Soroptimista- klúbbs Bakka og Selja, Guðrún Erla Björgvinsdóttir. Það var harmafregn að heyra 11. nóvember sl. að elskuleg frænka mín, Þyri Dóra, hafði lát- ist fyrr um morguninn. Við Þyri Dóra vorum systkina- börn. Hún var sex árum eldri en ég og elst okkar barnabarna Halldóru Ingimundardóttur, húsfreyju í Enni við Blönduós. Faðir Þyri Dóru, Helgi Sveinn, var bróðir móður minnar Arínu Margrétar. Þau voru ásamt Hólmfríði börn Halldóru og fyrri eiginmanns hennar Sigurðar. Halldóra eignaðist einnig þrjú börn með seinni eiginmanni sín- um Þorsteini, þau Elsu, Sigurð og Ævar. Samband föður Þyri Dóru og móður minnar var afar náið og var mikill samgangur á milli fjöl- skyldna okkar þegar við vorum börn. Traustur vinskapur hélst með okkur Þyri Dóru alla tíð síð- an. Þyri Dóra tengdist einnig hálfsystkinum föður hennar og mörgum börnum þeirra sterkum böndum. Í minningunni kemur Þyri Dóra fyrir sem falleg manneskja. Hún hafði útlitið með sér en feg- urðin kom ekki síður innan frá því að hún var sönn og lét sér annt um að rækta tengslin við sína nánustu. Hún kunni að hlusta og því laðaðist frændfólkið að henni. Hún var því í reynd óformlegur foringi innan fjöl- skyldunnar. Þyri Dóra bjó yfir æðruleysi allt sitt líf. Það sýndi sig hvað gleggst þegar hún greindist með illvígan sjúkdóm fyrir þremur ár- um. Leitin að lækningunni reyndist í senn löng og ströng en samt bar hún höfuðið ætíð hátt og gekk til sinna starfa til hinsta dags, þess fullviss að handan við hornið biðu betri tímar. Þess vegna kom fráfall Þyri Dóru nú okkur flestum á óvart. Það er mikill missir að Þyri Dóru. Mestur er hann þó fyrir Kjartan, eftirlifandi eiginmann hennar, börn og ástvini þeirra. Megi Guð styrkja þau í sorg þeirra. Minningin um mæta konu lifir! Gunnar Helgi Hálfdanarson. Þyri Dóra Sveinsdóttir ✝ Steinþóra Jó-hannesdóttir fæddist 4. maí 1931. Hún lést 10. nóvember 2020 á Hrafnistu í Reykja- vík. Foreldrar hennar voru Jó- hannes Skúlason, bóndi á Geirmund- arhóli í Hrollleifs- dal, og Sigurlaug Guðný Jónsdóttir húsmóðir. Systkini hennar: Björn Ey- steinn, fæddur 1923, dáinn 2018, Guðni Óskar, fæddur 1925, dáinn 1926, Þuríður Sveina, fædd 1926, dáin 1969, Sigrún Guðný, fædd 1929, Magnús Ingiberg, fæddur 1933, dáinn 1986, Unnur, fædd 1935, börn og 22 barnabarnabörn og fjögur barnabarnabarnabörn. Steinþóra missti móður sína fjögurra ára og ólst upp hjá föður sínum og ömmum til 12 ára aldurs á Geirmundarhóli. Þegar heimilið flosnaði upp var hún send sem vinnukona til vandalausra þar sem hún vann fyrir sér á ýmsum stöðum til 1959 er hún fór sem ráðskona til Þórarins Salómonssonar, þar sem hún bjó í Bergsholti og Syðri-Tungu, en 1981 flutti hún í Stykkishólm og bjó þar með Sigurgrími Guðmundssyni þar til hún flutti til Reykjavíkur og bjó lengst af í Möðrufelli 3. Útför hennar verður gerð frá Bústaðakirkju í dag, 24. nóv- ember 2020, klukkan 13 að við- stöddum nánustu ættingjum í ljósi aðstæðna og streymt verð- ur frá jarðarförinni. Stytt slóð á streymið: https://tinyurl.com/y2ccbwg3/. Hægt er að nálgast virkan hlekk á streymið á: https://www.mbl.is/andlat dáin 2018. Börn: 1) Erla Gunnarsdóttir, f. 1952, maki: Steinn Símonarson, látinn. 2) Óskírður dreng- ur, f. 1955, látinn. 3) Petrína Krist- jana Ólafsdóttir, f. 1956, maki Finnur Guðmundsson. 4) Jón Steinar Ólafs- son, f. 1958, maki Praiya Kanisarn. 5) Salómon Þórarinsson, f. 1960, maki Jóna Björg Kristinsdóttir. 6) Sig- urlaug Guðný Þórarinsdóttir, f. 1961, maki Leifur Þór Ingólfs- son. 7) Jóhannes Bergþór Þór- arinsson, f. 1965, maki Sigríður Elín Júlíusdóttir. Steinþóra eignaðist 18 barna- Tilviljun hagaði því svo að elskuleg Steinþóra mín réðst til heimilisstarfa hjá okkur fjöl- skyldunni fyrir um það bil 26 ár- um. Hún þá tiltölulega nýflutt til Reykjavíkur, og ég nýkomin heim eftir sjúkrahúslegu. Það er ekki ofsögum sagt að hún hafi verið sem sending af himnum of- an. Hún hafði þá þegar húsnæði í borginni sem einungis varð tímabundið, svo úr varð að hún flutti til okkar í Garðabæinn. Steinþóra var glaðlynd kona, kannski svolítið stríðin og skemmtileg var hún líka, vand- virk og vinnusöm og þótti okkur yndislegt að hafa hana hjá okk- ur. Í fasi og lund bar hún öll merki þess að að hafa verið gæfusöm í lífinu. Að því kom að Steinþóra flutti í sitt eigið húsnæði, fallega íbúð í Breiðholtinu. Ávallt var gott og gaman að líta þar inn. Ekki var síður ánægjulegt að um langt árabil skyldi mín kona mæta vikulega í stofuna í Garðabæn- um, uppábúin, hress og kát með prjónana. Þá hlotnaðist henni viðurnefnið Steinþóra stofustáss. Eftir því sem kynni okkar Steinþóru urðu nánari sagði hún mér meira frá lífshlaupi sínu, allt aftur til þess tíma er hún missir móður sína fjögurra ára gömul. Systkinahópurinn var stór og leystist heimilið upp í kjölfarið á næstu árum. Stein- þóra er aðeins 12 ára gömul er hún var send sem vinnukona, á milli bæja til vandalausra. Óör- yggið, slitrótt skólagangan og óvissan um framtíðina hefur vitaskuld hvílt þungt á Stein- þóru á þessum árum, þó svo að aldrei hafi örlað á biturð í frá- sögnum hennar, heldur báru þær einatt vott um æðruleysið og hugrekkið sem var henni eðl- islægt. Tólf ára stúlkubarnið sem átti ekki í nein hús að venda, engan griðastað. Tvívegis man ég til þess að hún varð meyr og reið við frásögn úr for- tíðinni, sú fyrri var hálfkláruð setning, þessi setning er greypt í huga minn æ síðan: „… og svo það, Þórunn, að lenda stundum hjá vondu fólki“. Hin frásögnin var um litla soninn sem lést í örmum hennar. Læknirinn kom aldrei í vitjunina. Í þeirri miklu sorg sagðist hún hafa farið að efast um tilvist Guðs. Á þessum tíma, í sögunni sem hér er fjallað um, bauðst þeim sem minna máttu sín ekki neitt ann- að en þolgæði og sterkasti mátt- urinn, vonin. Þetta tvennt hefur í raun líka átt erindi til okkar allra á þessu ári sem senn er á enda. Steinþóra sem við kveðj- um hér í dag var merk kona, sönn hetja. Af henni lærði ég margt sem ekki verður lært á bókina. Við Jón og dætur vottum börnum og fjölskyldu Steinþóru allri okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Stein- þóru. Þórunn Þórhallsdóttir. Þegar horft er til baka eru minningar margar og góðar um þig elsku mamma og tengdó. Okkur þótti svo gott að hafa þig nálægt okkur árin sem þú bjóst í Stykkishólmi, það var alltaf vel tekið á móti okkur á Vallarflötinni með gleði og hlýju, maður kom aldrei að tómum kofanum hjá þér, alltaf nóg með kaffinu. Hvenær dags sem maður kom var borðið dekkað með hnallþórum eða mat. Það var alltaf auðsótt mál að leita til þín með að passa strák- ana ef á þurfti að halda eða hvaðeina sem við þurftum hjálp við. Skemmtileg minning kem- ur upp í hugann við sláturgerð sem var fastur liður á hverju hausti, þú að hræra í bala, Grímur að brytja mörinn og við Lauga og Leifur að sauma keppi, þá var oft kátt í kotinu. Fleiri minningar sækja á eins og þegar við fórum fjögur saman til Þýskalands Stein- þóra, Grímur, Lauga og Leifur, flugum til Danmerkur og tók- um bílaleigubíl og keyrðum þaðan til Þýskalands og ferð- uðumst þar um og gistum á krám og heimahúsum. Minning- arnar úr Syðri-Tungu koma líka upp í hugann, þar var nú oft þétt setið þótt húsið væri lítið og lélegt en alltaf hreint og öll- um leið þar vel. Þú varst félagslynd og þótti gaman að taka á móti gestum og þá var oft mikið hlegið og alltaf var tekið á móti fólki af miklum höfðingsskap. Þótt þú hafir ekki alltaf haft mikið milli handa varstu ein- staklega örlát og vildir helst aldrei kveðja öðruvísi en að rétta einhverju að okkur. Það er með miklum söknuði sem við kveðjum þig elsku mamma og tengdó. Þó sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý. Því burt varst þú kölluð á örskammri stundu, í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða, svo falleg, einlæg og hlý. En örlög þín ráðin – mig setur hljóða, við hittumst samt aftur á ný. Megi algóður guð þína sálu geyma, gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó komin sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Sigríður Hrönn Lárusdóttir) Sigurlaug og Leifur. Steinþóra Jóhannesdóttir Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, JÓNS HALLDÓRS JÓNSSONAR, fv. forstjóra Keflavíkurverktaka. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild B2 á Landspítalanum í Fossvogi fyrir einstaka umönnun. Björg K.B. Jónsdóttir Óðinn Sigþórsson Kristín G.B. Jónsdóttir Þórólfur Halldórsson Jón H. Jónsson Karen H. Jónsdóttir Vilhjálmur S. Einarsson Dagný Þ. Jónsdóttir Halldóra V. Jónsdóttir Ragnheiður E. Jónsdóttir Marco Mintchev barnabörn og langafabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSDÍS EYRÚN SIGURGEIRSDÓTTIR, Skipastíg 22, Grindavík, lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð laugardaginn 14. nóvember. Útförin hefur farið fram. Innilegt þakklæti til starfsfólks Víðihlíðar fyrir góða umönnun. Einar Björn Bjarnason Sæunn Kristinsdóttir Guðrún Bjarnadóttir Pétur Gíslason Þórkatla Bjarnadóttir Lúðvík Gunnarsson Sigurgeir Þór Bjarnason Kristjana Halldórsdóttir Sveinbjörn Bjarnason Ingibjörg S. Steindórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.