Morgunblaðið - 24.11.2020, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 24.11.2020, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2020 England Burnley - Crystal Palace ........................ 1:0  Jóhann Berg Guðmundsson lék fyrstu 67 mínúturnar með Burnley. Wolves – Southampton ............................ 1:1 Staðan: Tottenham 9 6 2 1 21:9 20 Liverpool 9 6 2 1 21:16 20 Chelsea 9 5 3 1 22:10 18 Leicester 9 6 0 3 18:12 18 Southampton 9 5 2 2 17:13 17 Everton 9 5 1 3 19:16 16 Aston Villa 8 5 0 3 19:11 15 West Ham 9 4 2 3 15:10 14 Wolves 9 4 2 3 9:10 14 Manch.Utd 8 4 1 3 13:14 13 Crystal Palace 9 4 1 4 12:13 13 Arsenal 9 4 1 4 9:10 13 Manch.City 8 3 3 2 10:11 12 Leeds 9 3 2 4 14:17 11 Newcastle 9 3 2 4 10:15 11 Brighton 9 2 3 4 13:15 9 Burnley 8 1 2 5 4:12 5 Fulham 9 1 1 7 9:18 4 WBA 9 0 3 6 6:18 3 Sheffield Utd 9 0 1 8 4:15 1 Pólland Jagiellonia - Wisla Plock ........................ 5:2  Böðvar Böðvarsson kom inn á sem vara- maður á 83. mínútu hjá Jagiellonia. Danmörk FC Köbenhavn - Randers ....................... 1:2  Ragnar Sigurðsson var allan tímann á bekknum hjá FC Köbenhavn. Staðan: Midtjylland 9 6 1 2 17:12 19 SønderjyskE 9 5 3 1 17:10 18 Brøndby 9 6 0 3 17:13 18 AGF 9 4 3 2 17:11 15 AaB 9 4 3 2 11:11 15 Vejle 9 4 2 3 16:16 14 Nordsjælland 9 3 4 2 17:12 13 OB 9 3 2 4 13:15 11 Randers 9 3 1 5 12:10 10 København 9 3 1 5 15:19 10 Lyngby 9 0 3 6 9:20 3 Horsens 9 0 3 6 5:17 3 Svíþjóð Gautaborg - Häcken................................ 1:1  Oskar Tor Sverrisson kom inn á sem varamaður á 81. mínútu hjá Häcken. Norrköping - Falkenberg....................... 4:1  Ísak B. Jóhannesson lék allan leikinn með Norrköping. Staðan: Malmö 28 16 9 3 58:27 57 Elfsborg 28 12 13 3 46:35 49 Djurgården 28 13 6 9 46:31 45 Häcken 28 11 12 5 42:29 45 Norrköping 28 12 7 9 56:42 43 Hammarby 28 10 11 7 46:44 41 Mjällby 28 11 8 9 43:41 41 Örebro 28 11 6 11 35:37 39 AIK 28 10 8 10 28:30 38 Sirius 28 9 10 9 42:48 37 Varberg 28 9 7 12 42:41 34 Östersund 28 8 9 11 27:38 33 Gautaborg 28 5 13 10 29:41 28 Kalmar 28 5 9 14 29:49 24 Falkenberg 28 5 8 15 31:51 23 Helsingborg 28 4 10 14 29:45 22  Danmörk Aarhus - SönderjyskE......................... 25:26  Sveinn Jóhannsson skoraði ekki fyrir SönderjyskE. Svíþjóð Sävehof - Guif ...................................... 25:16  Daníel Freyr Ágústsson varði 2 skot í marki Guif.   Freyr Alexandersson, aðstoðar- þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta síðustu ár, viðurkennir í samtali við vefmiðilinn Fótbolta.net að hann hafi áhuga á að taka við sem landsliðsþjálfari, en Erik Hamrén tilkynnti á dögunum að hann myndi hætta með liðið. „Auðvitað langar mann alltaf að þjálfa landsliðið,“ sagði hann m.a. við miðilinn en Freyr er nú í Katar þar sem hann er orðinn aðstoðarþjálfari Al-Arabi. Heimir Hallgrímsson er þjálfari liðs- ins og með því leikur landsliðsfyrir- liðinn Aron Einar Gunnarsson. Freyr vill taka við landsliðinu Morgunblaðið/Eggert Landsliðið Freyr Alexandersson vill taka við þjálfun landsliðsins. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í gær að áhorf- endur verði leyfðir á íþrótta- viðburðum utanhúss á nýjan leik en allt að 4.000 áhorfendur mega mæta á leiki frá og með 2. desem- ber. Svæðum í Bretlandi er skipt nið- ur í þrjú áhættusvæði vegna veir- unnar, en 4.000 áhorfendur mega koma saman þar sem áhættan er minnst, 2.000 þar sem áhættan er meðalmikil en enn verða engir áhorfendur á svæðunum þar sem áhættan er talin mest. Leyfa áhorf- endur á ný AFP Tómt Leikið hefur verið án áhorf- enda í ensku deildinni til þessa. ÞÝSKALAND Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður í handknattleik, hefur hafið tímabil- ið með Stuttgart í þýsku 1. deildinni af gríðarlegum krafti. Viggó, sem leikur í stöðu hægri skyttu, hefur skorað 71 mark í 9 leikjum á tíma- bilinu og er markahæstur í deildinni ásamt hinum austurríska Robert Weber, leikmanni Nordhorn- Lingen. Bjarki Már Elísson, leik- maður Lemgo, er í 3. sæti með 61 mark. Stuttgart er fjórða félagsliðið sem Viggó leikur fyrir á um einu og hálfu ári. Hann spilaði á þarsíðasta tímabili fyrir West Wien í aust- urrísku 1. deildinni og skipti svo yfir til Leipzig í þýsku 1. deildinni. Það- an fór hann til Wetzlar og spilar nú með Stuttgart. Viggó útskýrði af hverju félagsskiptin hafa verið svona tíð hjá honum að undanförnu: „Ég var í Austurríki á þarsíðasta tímabili og langaði virkilega að taka skrefið til Þýskalands en var með samning áfram í Austurríki og því var ekki auðvelt að losna. Það þurfti að kaupa mig burt. Undir lok apríl 2019 meiðist skytta hjá Leipzig þannig að þá vantar leikmann fyrir næsta tímabil og ákveða að kaupa mig. Ég síðan byrja tímabilið hjá þeim og ég er mjög ánægður þar enda mjög flottur klúbbur. Þar var ég varamaður fyrir Franz Semper og fékk mínútur hér og þar. Svo kom í nóvember á síðasta ári mjög óvænt tilboð frá Wetzlar. Þá vantaði skyttu og ég sá það bara sem gott tækifæri. Bæði buðu þeir góðan samning og Wetzlar hefur verið þekkt síðustu ár fyrir að hafa byggt upp mjög marga góða leik- menn sem hafa farið í stórlið. Ég sá því fram á að geta bætt mig heil- mikið þar, sem varð síðan raunin. Þó ég hafi ekki verið númer eitt þar fannst mér ég bæta mig og læra heilmikið,“ sagði hinn 26 ára gamli Viggó. Mikill styrkleikamunur „Maður tekur alltaf einhverja hluti frá hverju liði og hverjum þjálfara. Þjálfararnir í bæði Leipzig og Wetzlar voru báðir mjög flottir en mjög ólíkir og með ólíkar áherslur. Ég tók margt með mér frá þeim báðum. Sömuleiðis spilaði ég mína fyrstu landsleiki í fyrra og fór á mitt fyrsta stórmót og tók hellings reynslu út úr því. Á þessum tveimur vikum sem ég var með landsliðinu, bara það að spjalla aðeins við Guðjón Val, Alexander og Aron, og horfa á þá og æfa með þeim, það gerði mér mjög gott. Maður heldur alltaf að það sé klisja þegar það er sagt að það sé rosa reynsla að spila með reynslu- miklum leikmönnum, en það er í rauninni engin klisja því mér fannst ég taka gríðarlegum framförum. Ég allavega fann það strax hjá sjálfum mér,“ bætti Viggó við. Félagsskiptin til Stuttgart komu upp um sama leyti og Viggó samdi við Wetzlar. „Það kemur í rauninni upp þegar ég er í Leipzig. Í nóv- ember 2019 var komið í ljós að Leipzig myndi ekki framlengja við mig og á sama tíma og Wetzlar býð- ur mér samning út tímabilið býður Stuttgart mér samning til tveggja ára eftir það. Því vissi ég það þegar ég fór til Wetzlar að það yrði bara út tímabilið og að ég yrði svo næstu tvö ár í Stuttgart. Það er mjög algengt í Þýskalandi að lið séu að semja svolítið vel fram í tímann og fyrir íþróttamenn eins og mig sem eru með fjölskyldu er þetta líka gott. Þá er maður með at- vinnuöryggi næstu árin og mér finnst það mjög þægilegt.“ Í síðasta leik Stuttgart skoraði Viggó 11 mörk í 30:34 tapi gegn Flensburg og hann er að skora tals- vert meira en hjá Leipzig og Wetzl- ar. Hvað hefur breyst í leik Viggós? „Það sem hefur kannski breyst er það að ég kem í þýsku deildina í fyrra og er þá á mínu fyrsta ári. Það er mikill styrkleikamunur á deild- unum í Austurríki og Þýskalandi. Ég kannski vanmat aðeins mína eigin styrkleika í fyrra og hélt að- eins aftur af mér. Svo var ég með minni rullu í lið- inu, bæði í Leipzig og Wetzlar, held- ur en ég er með hér í Stuttgart. En ég átti samt leiki inn á milli í fyrra þar sem ég sá að ég gat þetta alveg, þar sem ég skoraði nokkrum sinn- um 5-7 mörk í leik og fékk nasaþef- inn af þessu. Ég var í rauninni bú- inn að setja mér það markmið að sama hvaða liði ég yrði í, hvort sem það væri Leipzig, Wetzlar eða því sem varð á endanum, Stuttgart, ætlaði ég mér alltaf að vera númer eitt í minni stöðu. Það gekk á und- irbúningstímabilinu með Stuttgart, þá náði ég að festa mig í sessi sem númer eitt hjá okkur og í rauninni hefur gengið fáránlega vel síðan.“ Sveif um á gólfinu Viggó segir upplifunina af því að fara á stórmót með landsliðinu hafa verið frábæra. „Það var auðvitað bara frábært. Ég kom inn á í fyrsta leik á EM fyr- ir framan 12.000 manns á móti Dan- mörku og við náðum síðan að vinna þann leik. Það var mjög sérstök til- finning. Mig minnir að þegar ég labbaði inn á hafi ég ekki náð al- mennilegri jarðtengingu, mér leið eins og ég væri að svífa á gólfinu. Það var óþægileg tilfinning að finn- ast maður vera að svífa en svo fær maður boltann í fyrsta sinn og þá hverfur þetta og manni líður vel.“ Viggó er í 35 manna æfingahóp fyrir HM sem fer fram í Egypta- landi í janúar á næsta ári. Hann er bjartsýnn á að vera í lokahópnum. „Ég er búinn að vera í síðustu hópum þó það hafi auðvitað verið lítið um verkefni vegna kórónuveir- unnar. Ég er bjartsýnn og vona að ég fái tækifæri til þess að spila með landsliðinu á HM.“ Hann kveðst ekki vera farinn að rýna í andstæðinga Íslands á mótinu en telur þó möguleika liðsins góða. „Fyrst og fremst vona ég að það verði spilað. Þó það væri fyrir tómum höllum þá hlakka ég til að spila. Ég tel okkur vera með mjög spennandi lið, það eru margir að spila mjög vel. Við erum með þokkalega ungt lið líka. Miðað við hvernig þetta leit út hjá okkur á móti Litháen, auðvitað voru Litháar ekki með sitt sterkasta lið, en ég tel að við getum gert góða hluti. Þó það tækist ekki núna strax í janúar tel ég að á næstu árum getum við orðið mjög góðir,“ bætti Viggó við. Hefur gengið lygilega vel  Viggó Kristjánsson hefur slegið í gegn í Þýskalandi og er markahæstur í deildinni ásamt Weber  Hefur tekið gríðarlegum framförum á einu og hálfu ári Morgunblaðið/Einar Ragnar Markahæstur Viggó Kristjánsson raðar inn mörkunum í þýsku 1. deildinni og er markahæstur ásamt Weber. Næstu lands- leikir íslenska karlalandsliðsins í handknattleik verða spilaðir á Ásvöllum í Hafn- arfirði, en þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu sem HSÍ sendi frá sér í gær. Íslenska lið- ið hefur hingað til leikið landsleiki sína í Laugardalshöll en í síðustu viku sprakk lögn í höllinni sem varð til þess að vatn flæddi um öll gólf. Höllin er því ónothæf næstu mán- uðina þar sem skipta þarf um gólf í henni. HSÍ sótti um undanþágu til evr- ópska handknattleikssambandsins, EHF, um að næstu leikir landsliðs- ins yrðu spilaðir á Ásvöllum og var sú beiðni samþykkt. Landsleikir á Ásvöllum Guðmundur Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.