Morgunblaðið - 24.11.2020, Side 32
Vísnabókin, sem var svo fagurlega myndskreytt af Hall-
dóri Péturssyni, hefur skemmt kynslóðunum síðan hún
kom fyrst út árið 1946. Í dag, þriðjudag, kl. 12.05 verð-
ur Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir, lektor við Háskóla Ís-
lands, með hádegisfyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands
þar sem hún fjallar um sögu og gildi Vísnabókarinnar;
hún veltir fyrir sér sérstöðu bókarinnar og mögulegri
framtíð hennar. Fyrirlestrinum verður streymt gegnum
teams-livestream og verður hann einnig tekinn upp og
birtur á youtube-rás Þjóðminjasafnsins.
Fjallar um Vísnabókina með mynd-
skreytingum Halldórs Péturssonar
Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður Íslands í hand-
knattleik og leikmaður Stuttgart í þýsku 1. deildinni,
hefur byrjað tímabilið af miklum krafti. Viggó hefur
skorað 71 mark í 9 leikjum á tímabilinu og er marka-
hæsti leikmaður deildarinnar ásamt hinum austurríska
Robert Weber sem leikur með Nordhorn-Lingen. Bjarki
Már Elísson, leikmaður Lemgo, er í 3. sæti með 61 mark
en hann varð markahæsti leikmaður deildarinnar á síð-
ustu leiktíð. Stuttgart hefur einnig komið á óvart en
liðið er í fjórða sæti deildarinnar með 11 stig. »26
Hægri skyttan hefur farið á kostum
í Þýskalandi í upphafi tímabilsins
sunnudagssýningar á leikritinu
„Lalli og Töframaðurinn“ í Tjarn-
arbíói hafi legið niðri en haldi áfram
um leið og græna ljósið komi.
Ýmsir leggja Lalla lið á plötunni.
Á meðal textahöfunda eru Megas,
Ómar Ragnarsson, Ingibjörg Gunn-
arsdóttir og Karl Ágúst Úlfsson.
Lögin eru meðal annars eftir Megas
og Justin Bieber. Purumenn syngja
með honum lagið „Jólamamba“ eftir
Megas, Heiðrún Arna Friðriks-
dóttir, eiginkona Lalla, syngur með
honum lagið „Jólastelpa“ og Ævar
Þór Benediktsson vísindamaður lag-
ið „Jólakort“ eftir Lalla. „Hér kenn-
ir svo sannarlega ýmissa grasa,“
segir skemmtikrafturinn.
Jólaplatan hefur verið í vinnslu
allt árið og Lalli segir að óvænti frí-
tíminn hafi nýst vel. Hann á fjóra
frumsamda texta, þar á meðal
„Knús“ við aðallagið, sem kom upp-
haflega út með Justin Bieber 2011.
„Ég samdi textann 27. apríl, sama
dag og Kári Lennon, sonur okkar
Heiðrúnar, fæddist.“ Til nánari út-
skýringar segir hann að þegar átt
hafi að setja Heiðrúnu af stað hafi
hann ekki mátt fara með henni inn á
Heilbrigðisstofnun Vesturlands á
Akranesi og því beðið úti í bíl og
samið textann.
„Þótt brjálað sé að gera á Þorláks-
messu er það samt yndislegt og allt-
af er tími til að trappa sig niður og
knúsa fólkið sitt, en textinn fjallar
um konuna og börnin okkar.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Útgáfutónleikum jólaplötunnar
Gleðilega hátíð með Lalla töfra-
manni, hliðarsjálfi Lárusar Blön-
dals, verður streymt á „Jólastund
Lalla 2020“ á Facebook í kvöld og
hefst útsendingin klukkan 19:30.
„Vínylplatan
er komin í
búðir og á
Spotify en þar
sem ekki má
vera með út-
gáfutónleika,
eins og til stóð, vegna veirunnar,
ákvað ég að skella í jólastund 24.
nóvember, nákvæmlega mánuði fyr-
ir jól,“ segir Lárus, eða Lalli.
Jólaplatan er fyrsta plata Lalla
töframanns. „Ég er rosalega mikið
jólabarn, sem er skrýtið að segja, því
ég er eiginlega meiri jólamaður og
eins nálægt því að vera jólasveinn og
hægt er.“ Hann á eitt frumsamið lag
á plötunni og er skráður útgefandi.
Á henni eru 12 innlend og erlend ný
og gömul jólalög í íslenskum bún-
ingi. „Lárus Blöndal varð reyndar
miklu meira í plötunni en til stóð,“
segir Lalli. „Daði Birgisson, tónlist-
arséní og upptökustjóri, gerði það að
verkum að platan varð eins geggjuð
og hún er. Af því að hann er svo
flinkur duttum við í þann gírinn og
platan varð betri en við ætluðum.
Hún átti að vera hress og skemmti-
leg en í upptökuferlinu gerðust
töfrar og hún varð töff og góð.“
Á ráslínunni
Lárus vinnur fyrir sér sem Lalli
töframaður (toframadur.is). Hann
segir erfitt að vera skemmtikraftur í
veirustandinu. „Enginn veit ná-
kvæmlega hvenær allt fer aftur í
gang og ef maður ætlar að vera
tilbúinn á ráslínunni, þegar kallið
kemur og allir fara út og skemmta
sér, er ekki hægt að lofa upp í erm-
ina á sér og bóka sig í eitthvað ann-
að. Ég hef því haldið mér heitum til
að vera tilbúinn þegar flautað verður
út og allir mega fara í partíið.“
Í því sambandi nefnir hann að
Lalli töframaður
með ás uppi í erminni
Fyrstu útgáfutónleikum skemmtikraftsins streymt í kvöld
Hjón Lárus Blöndal og Heiðrún Arna Friðriksdóttir.
ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 329. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
ÍÞRÓTTIR MENNING