Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.11.2020, Síða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.11. 2020
Fjölmiðlanefnd fann að því ískýrslu um Ríkisútvarpið(Rúv.), að það hefði fólk innan
vébanda stofnunarinnar í gerviverk-
töku, flokkaði greiðslurnar sem
kaup á efni frá sjálfstæðum fram-
leiðendum og hefði í þokkabót lagst í
blekkingaleik með það. Þar á meðal
voru burðarþættir í dagskránni á
borð við Vikuna, Silfrið, Menning-
una, Landann og Gettu betur. Rúv.
er skylt samkvæmt þjónustusamn-
ingi við ríkið að verja 10% heildar-
tekna sinna til innkaupa á dagskrár-
efni utan múra.
Bylgja kórónuveirusmita hélt
áfram að hjaðna, þó það gerðist
hægar og skrykkjóttar en flestir
kysu. Tíu hafa látist af hennar völd-
um í þessari bylgju, jafnmargir og
féllu í valinn í vor.
Kórónuveiran hefur víða áhrif, en
þannig kom á daginn að um 500
manns eru á biðlista eftir að komast
í bílpróf og löng bið framundan.
Heiða Björg Hilmisdóttir var end-
urkjörin varaformaður Samfylking-
arinnar með nokkrum mun atkvæða
á rafrænum landsfundi flokksins, en
Logi Einarsson formaður var end-
urkjörinn mótframboðslaust.
Nýtt bóluefni, sem bandaríski
lyfjarisinn Pfizer hefur þróað og
prófað í samvinnu við þýska líf-
tæknifyrirtækið BioNTech, mun
koma á markað fyrir árslok í ár.
Það verður þó ekki fyrr en á nýju
ári sem framleiðsla, dreifing og
bólusetning kemst á almennilegan
skrið. Dreifing þess er vandasöm,
þar sem halda þarf efninu kældu,
en eins þarf að sprauta fólk tvisvar
með því.
Heimsþing kvenleiðtoga í stjórn-
málum var haldið í Hörpu frá mánu-
degi til miðvikudags, en það var
haldið með fjarfundabúnaði. Sam-
hliða var haldinn ársfundur heims-
ráðs kvenleiðtoga, en honum stýrði
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra, sem er formaður heimsráðs-
ins.
Fulltrúar stærstu hótelkeðja lands-
ins og Samtök ferðaþjónustunnar
hafa óskað eftir því við sveitarfélög,
að greiðslu fasteignagjalda gistihúsa
verði frestað með útgáfu tiltölulega
langra skuldabréfa, en Lánasjóður
sveitarfélaga lánaði sveitarfélög-
unum fjárhæð sem svaraði hinum
ógreiddu fasteignagjöldum, svo
tekjur þeirra raskist ekki.
Ríkisútvarpið sendi umsögn um
fjárlagafrumvarpið, þar sem kvartað
var undan tekjufalli og kostnaðar-
auka vegna kórónuveirunnar. Er
þess þar farið á leit að ríkissjóður
bæti það að fullu með 600 milljónum
króna.
Matvælastofnun undirbýr skimun
fyrir kórónuveirunni á minkabúum,
en stökkbreytt afbrigði veirunnar
hefur breiðst út í minkabúum í Dan-
mörku. Ekki er grunur um að hún
hafi slegið sér niður hér á landi en
allur sé varinn góður. Níu minkabú
eru í landinu.
Hvanneyrarprestakall verður sam-
einað Reykholtsprestakalli, en síra
Geir Waage lætur af störfum í árs-
lok eftir að hafa setið staðinn í 42 ár.
Til stendur að leyfa fólki að draga
gjafafé til góðgerðarmála frá
tekjuskatti, allt að 350 þúsund krón-
ur á ári.
Námsráðgjafar segja að framhalds-
skólanemar hafi sýnt mikið þolgæði
í erfiðum aðstæðum faraldursins, en
þó sé farið að gæta þreytu gagnvart
fjarfundum og námið sé erfiðara en í
venjulegu skólahaldi. Ekki hafa þó
komið fram vísbendingar um aukið
brotthvarf úr námi.
Þrátt fyrir faraldurinn eða mögu-
lega vegna hans – neysluhættir eru
með mjög öðrum hætti en endranær
– þá hugar fólk vel að sínu heima.
Fasteignamarkaður er líflegri en
ráð mátti gera fyrir og t.d. seldist ný
blokk í Hafnarfirði upp á fimm dög-
um og mikil ásókn er í þakíbúðir við
Hlíðarenda. Sömuleiðis rokseljast
húsgögn og heimilistæki.
Sagt var frá ömurlegum aðstæðum
og vanrækslu vistmanna á vistheim-
ilinu Arnarholti á Kjalarnesi fyrir
hálfri öld.
Vonir um bóluefni juku bjartsýni í
ferðaþjónustunni um að senn vori í
þeirra veröld. Skarphéðinn Berg
Steinarsson ferðamálastjóri segir
að ef næsta sumar yrði þokkalegt
ætti ferðaþjónustan að geta rétt úr
kútnum tiltölulega skjótt.
Engin sauðfjárvarnargirðing í
landinu er fjárheld alla leið, svo ráð-
gert er að bæta þar úr. Riða hefur
komið upp á bæjum í Skagafirði,
sem gerir það brýnna en ella.
Malasíski viðskiptajöfurinn Vincent
Tan vill reisa munaðarhótel á Mið-
bakka við Reykjavíkurhöfn og segist
þegar vera með tugi milljarða króna
til reiðu til þess. Borgaryfirvöld eru
hins vegar tregari til eða meirihlut-
inn í borgarstjórn alltjent, því málið
hefur ekki verið borið undir stjórn
Faxaflóahafna.
Nýtt fjölmiðlafrumvarp er í bí-
gerð hjá ríkisstjórnarflokkunum,
en sem kunnugt er hefur frumvarp
um beina fjárstyrki til einkarek-
inna fjölmiðla ekki komist í gegn-
um þingið. Í stað þess að nota
styrki stendur til að beita skatt-
kerfinu til þess að skjóta styrkari
stoðum undir rekstrarumhverfi
fjölmiðla.
Neysluveislan hélt áfram á degi ein-
hleypra, en þá varð mikill upp-
kippur í sölu á alls kyns varningi
sem einhleypir gefa sjálfum sér.
Lömbin eru þögnuð, en í lok slátur-
tíðar er ljóst að lömb hafa aldrei
verið þyngri en í haust. Slátrunin
heldur hins vegar áfram að dragast
saman, enda hefur lömbum fækkað
um 75 þúsund á þremur árum.
Komin er fram tillaga að deiliskipu-
lagi Laugavegar milli Klapparstígs
og Frakkastígs. Breytingarnar fel-
ast helst í því að gera göngugötuna
þar og niður Vatnsstíg varanlega,
auk ýmissa endurbóta til þess að
gera umhverfið vistlegra.
Páll Bergþórsson gaf út óvenjulega
langtímaspá í vikunni, en hann telur
að hnattræn hlýnun kunni að seinka
næstu ísöld. Fasteignaverð hækkaði.
Íslendingar töpuðu fyrir Ungverjum
í fótbolta karla í Búdapest 2:1, svo
draumurinn um Evrópumeistaramót
varð að engu.
Þrátt fyrir mun minni framleiðslu á
lambaketi stefnir samt í að upp hlað-
ist ketfjall, enda varð mikill sam-
dráttur á sölu innanlands í sumar og
margir hefðbundnir útflutnings-
markaðir lokaðir vegna heimsfarald-
ursins. Lagt hefur verið til að stöðva
ketinnflutning tímabundið meðan
grynnkað er á birgðunum hér.
Fjölmiðlafyrirtækið Sýn sendi fjár-
laganefnd andsvar við umsögn Rík-
isútvarpsins við fjárlagafrumvarpið
og gagnrýndi harðlega málatilbúnað
þess. Það virtist telja sig, einn fjöl-
miðla, hafa orðið fyrir búsifjum af
völdum kórónuveirunnar, og vildi
skekkja samkeppnisstöðu sína enn
frekar á kostnað annarra fjölmiðla
og skattgreiðenda.
Umboðsmaður Alþingis telur sig
ekki geta sinnt frumkvæðisathug-
unum vegna mannaskorts og pen-
ingaleysis.
Á daginn kom að stöðugildum rík-
isins hefði fjölgað um rúm 10% frá
árinu 2013. 71% allra ríkisstarfa eru
unnin á höfuðborgarsvæðinu.
Skýrsla um fjöldasmit kórónuveir-
unnar á Landakotsspítala, sem
dregið hafa tíu sjúklinga þar til
dauða, var gerð opinber, en þrátt
fyrir margvísleg svör vakti hún einn-
ig spurningar. Þar var helst tínt til
að um mætti kenna ástandi hús-
næðis, loftræstingu og öðrum að-
búnaði, sem væri ófullnægjandi með
tilliti til sóttvarna.
Nýjar sóttvarnareglur, sem gilda
frá næsta þriðjudegi, voru kynntar á
föstudag. Þar voru þrjár breytingar
helstar, að rakarar og nuddarar
mættu opna á ný, að allar íþróttir
barna væru heimilar og fjöldatak-
mörk í framhaldsskólum voru rýmk-
uð.
Fjölskylduhjálpin hóf að afhenda
matargjafir frá Kaupfélagi Skag-
firðinga til þeirra sem örðugt eiga á
dögum faraldursins. Það er höfð-
inglegasta góðgerð hér á landi og
mun standa fram að jólum.
Í fréttum
var þetta helst
Hús á horni Skólavörðustígs og Týsgötu var útbíað í veggjakroti um skuldir. Mögulega er þar um að ræða nýjar aðferðir
handrukkara, en þar mun Stjórnarskrárfélagið þó ekki hafa verið að verki enda prýðilega fjáð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
8.11.-13.11.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma