Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.11.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.11.2020, Blaðsíða 15
15.11. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 síðasta ári og fjórmenningarnir fóru í hljóðver í Sundlauginni í Mosfellsbæ í febrúar síðast- liðnum. Ekki náðist þó að ljúka upptökum vegna kórónuveirunnar fyrr en í maí. „Það er alltaf svolítið skrýtið að tala um nýja plötu,“ útskýrir Addi. „Maður er búinn að vera svo lengi inni í henni sjálfur og er byrjaður að taka skrefið í burtu þegar aðrir byrja að kynn- ast henni. Ég er þó í ágætri æfingu að tala um þessa plötu, tók einhver sjötíu viðtöl við er- lenda miðla á netinu í ágúst. Það var full vinna. Við náðum líka að gera tvö myndbönd í sumar og vonumst til að geta túrað plötuna í fyllingu tímans, stefnum alla vega að því þegar að- stæður leyfa.“ Samvinna liðsheildarinnar Ekki er laust við að Endless Twilight og Co- dependent Love sé þyngri en síðustu plötur, Sólstafir nudda sér jafnvel utan í svartmálm- inn sem þeir eru sprottnir úr. Þarna kemur þó saman þyngra og mýkra efni og kennihljóm- urinn góði er á sínum stað. „Við þurftum að hætta að spila þungt til að fíla það aftur. Núna erum við búnir að spila Fjöru í tíu ár, sem er mjög gaman líka, þannig að tími var kominn til að prófa eitthvað annað. Annars finnst mér ekki vera neitt nýtt á þessari plötu, þannig lag- að. Að því sögðu þá kemur aldrei alveg það sama frá okkur, við erum hvorki Iron Maiden né AC/DC. Það besta sem við höfum gert gegnum tíðina er þegar við höfum allir fjórir verið saman í herberginu og hent hugmyndum á milli okkar. Þá verður þetta samvinna liðs- heildarinnar.“ Hann segir nýja manninn, Hallgrím Jón Hallgrímsson trymbil, síður en svo liggja á liði sínu en hann á bæði lög á plötunni og talsvert í textunum. „Við Hallgrímur kynntumst í hljóð- náminu úti í Glasgow og höfum verið góðir vin- ir síðan. Þegar hljómsveitir hafa starfað svona lengi er ekki sjálfgefið að finna nýjan mann sem passar inn, bæði tónlistar- og félagslega. Það er ekkert pláss fyrir farangur og Hall- grímur er ekki týpan sem er með vesen. Hefur smellpassað inn í hópinn.“ Sólstafir syngja mest á íslensku og titill nýju plötunnar sætir því tíðindum en síðustu plötur hétu Köld, Svartir sandar, Ótta og Berdreym- inn. Ein af eldri plötum sveitarinnar ber hins veg- ar erlendan titil, Mast- erpiece of Bitterness frá 2005. Að sögn Adda er tit- illinn Endless Twilight of Codependent Love hálf- gert slys; menn hafi kast- að ýmsum íslenskum nöfnum á milli sín en ekk- ert fest við plötuna. „Okk- ur fannst þetta til að byrja með bæði skrýtinn og langur titill en síðan vann hann á. Og við létum slag standa.“ Meðvirkni frekar nýtt orð – Þetta er mikill titill, Eilíft sólarlag með- virkrar ástar, í lauslegri þýðingu. Hvað eruð þið að segja? „Já, hann er það. Til útskýringar nota ég stundum annan enskan titil, Eternal Darkness of Toxic Relationships, og hann skilst strax betur. Meðvirkni er frekar nýtt orð í íslensku, alla vega yngra en „bátur“. Meðvirk ást getur til dæmis átt við þegar þú elst, tíu ára gamall, upp við það að pabbi þinn er alkóhólisti og þeg- ar þú kemur heim er mamma þín aftur og aft- ur grátandi með glóðarauga. Hvað gerir þú þá? Ferð beint inn í herbergi og gerir þig ósýnilegan. Veist að það er þér fyrir bestu.“ Við horfumst í augu og Addi veit hvað ég er að fara að spyrja um áður en ég kem orðum að því. „Nei, þessi saga byggir ekki á mínu lífi held- ur lífi fólks í kringum mig. Flest þekkjum við þennan tíu ára krakka, ef við erum hann ekki sjálf. Meðvirknin verður meiri og meiri – þú þorir ekki að rugga bátnum og reita fólk til reiði. Þóknast þess í stað öðrum. Síðan verður þú þrítugur og fertugur og skilur ekki hvað amar að þér. Þú ert svo vanur að fela allt. Það er ákveðið tabú að tala um þessa hluti og núna þegar við erum sjálfir á ýmsan hátt búnir að taka til í okkar lífi þá langar okkur að vekja at- hygli á þessu. Í grunninn erum við ekki póli- tískt band en skilaboðin eru þau að það sé eng- in skömm fólgin í því að vera í myrkrinu. Sjálfir höfum við glímt við alkóhólisma, kvíða og þunglyndi og farið með lyftunni niður í svartasta myrkrið. Ekki bara óvart. Við höfum þurft að hafa fyrir því að anda. Neyslan var minn djöfull, ég deyfði mig með áfengi og lyfj- um, og maður hugsar sig ekki einn og óstudd- ur út úr slíkum aðstæðum. Þess vegna er svo mikilvægt að leita sér hjálpar og huga að sínu geðheilbrigði.“ Í sjöunda himni Í dag líður Adda vel í eigin skinni. „Ég er hundrað prósent sáttur við viðsnúninginn í mínu lífi. Ég var á vissan hátt heppinn að eng- inn dró mig út úr partíinu. Ég fór sjálfur. Ég þekki menn sem eru djúpt sokknir, pissublaut- ir og langar að kála sér. Ég finn til með þeim og vona að þeir sjái ljósið áður en það verður um seinan. Línan hjá manni verður ekkert flöt þótt maður hætti að drekka. Maður þarf bara að endurstilla sig. Lífið hefur upp á svo margt að bjóða.“ Sólstafurinn í lífi Adda í dag er dóttir hans, Eva Rut Aðalbjarnardóttir, sem fæddist 17. apríl sl. Hans fyrsta barn. Þau barnsmóðir hans voru aðeins saman til skamms tíma og sambandinu var lokið áður en Eva Rut fædd- ist. Hún býr hjá móður sinni en Addi hefur fengið að verja drjúgum tíma með henni. „Það er svo merkilegt að ég fæddist 7.7 ’77 og þegar ég er búinn að vera edrú í sjö ár þá eignast ég barn. Tilviljun?“ spyr hann með bros á vör. „Annars hélt ég að ég myndi aldrei eignast barn; fannst ég vera búinn að missa af því tækifæri, kominn yfir fertugt, og var satt best að segja búinn að sætta mig við það. Síðan var ég allt í einu viðstaddur heimafæðingu og kominn með krílið á brjóstkassann. Það er ekkert sem býr mann undir þá tilfinningu. Því- líkt kraftaverk að upplifa. Ég hafði aldrei skipt á barni en tók þetta nýja hlutverk strax föstum tökum; í dag skiptir ekkert meira máli í lífinu en að veita dóttur minni ást og umhyggju og bera á henni ábyrgð.“ Hann er afar þakklátur fyrir að vera edrú þegar hann tekst þetta verðuga verkefni á hendur. „Ég þekki marga alkóhólista og hef heyrt mjög sorglegar lýs- ingar á því hvernig börnin voru fyrir meðan þeir voru að drekka. Hugsaðu þér af hverju þetta fólk missti! Sjálfum finnst mér ekkert jafnast á við að leika við dóttur mína hérna á stofu- gólfinu. Það eru ómet- anlegar stundir. Ég hlakka mjög til að gera alls konar hluti með henni í framtíðinni. Það er eins gott að henni líki Gibson-gítarar,“ segir hann en gott safn er að finna í húsinu. „Nú endar plötusafnið mitt heldur ekki í Góða hirð- inum; það er kominn erfingi.“ Það kom Adda í opna skjöldu að hann varð alveg ofboðslega „óléttur“ sjálfur meðan á meðgöngunni stóð. „Ég grét af minnsta tilefni, það var eins og ýtt hefði verið á einhvern takka sem vonlaust var að slökkva á,“ rifjar hann upp hlæjandi. „Þetta voru bara tár, tilfinn- ingar og fleiri tár. Alveg stórkostlega skrýtið.“ Addi er ekki eini hljómsveitarliðsmaðurinn í þessum sporum en Hallgrímur trymbill eign- aðist son í sumar með eiginkonu sinni. „Kötu pönk frá Neskaupstað. Þú verður að skrifa það. Hún verður brjáluð,“ segir Addi sposkur en við erum að tala um hina ástsælu söngkonu Katrínu Halldóru Sigurðardóttur. Ólst upp í Gamla bakaríinu Þegar ein saga hefst þá lýkur annarri, eins og gengur í þessu lífi. Þannig var tilkynnt á dög- unum að Gamla bakaríinu á Ísafirði hefði verið lokað en það hefur lengi verið í eigu fjölskyldu Adda. „Öll mín æska var í gamla bakaríinu. Tryggvi Jóakimsson, langafi minn, keypti Gamla bakaríið og gerði það upp eftir bruna snemma á síðustu öld. Þegar afi minn og al- nafni dó árið 1970 þá tók Árni föðurbróðir minn við og amma Ruth [Tryggvason] vann þarna fram á síðasta dag. Hún var búin að gera lista yfir allt sem hún ætlaði að gera þeg- ar hún yrði gömul en hafði aldrei tíma í það; vann tíu tíma á dag þangað til hún dó, 89 ára fyrir tæpum tíu árum. Fyrst þegar ég vann í Gamla bakaríinu, sumarið 1995, man ég að ég labbaði þangað klukkan fjögur að nóttu frá Maju frænku með fyrstu Sólstafademóin í vasadiskóinu mínu. Síðast vann ég þarna í sumar, tók nokkrar vaktir við að þrífa af borð- um. En nú er búið að loka Gamla bakaríinu og það er til sölu. Við lifum á öld stórmarkaðanna og það verður sífellt erfiðara að reka bakarí.“ Í blálokin spyr ég Adda hvort hann sjái ekki fyrir sér að starfrækja Sólstafi áfram. „Jú, ég geri það,“ svarar hann ákveðinn. „Við höfum verið til í 25 ár og aldrei stoppað í mánuð, hvað þá meira. Ég spyr strákana stundum hvort þeir vilji halda áfram og svarið er alltaf já. Hvers vegna ættum við svo sem að hætta? Þetta er orðið aðeins meira en hobbí. Persónu- lega er þetta það sem mig dreymdi alltaf um að gera, ekkert annað, og ég er að gera það. Lifa drauminn. Við höfum ferðast um allan heim og að heyra hundruð manna syngja lögin okkar á íslensku á fjarlægum stöðum eins og Bógóta er ólýsanleg tilfinning. Á því augna- bliki leið okkur eins og Queen á Live Aid! 1985.“ Nýr dagur er runninn upp þegar ég kveð Adda og hverf út í blauta og dimma nóttina. Er það ekki á einhvern ljóðrænan hátt ein- staklega fallegt og viðeigandi í ljósi þess sem okkur fór á milli? Nýr dagur. Morgunblaðið/Eggert Sólstafir hafa mjög afgerandi stíl og hefðu tekið sig vel út í einhverjum hveitilengjuvestranum. F.v.: Svavar Austmann, Hallgrímur Jón Hallgrímsson, Aðalbjörn Tryggvason og Sæþór Maríus Sæþórsson. Ljósmynd/Íris Dögg Einarsdóttir ’Síðan var ég allt í einuviðstaddur heimafæð-ingu og kominn með kríliðá brjóstkassann. Það er ekkert sem býr mann undir þá tilfinningu. Þvílíkt kraftaverk að upplifa.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.