Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.11.2020, Page 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.11.2020, Page 17
á ferðinni. Og þar með höfðu þeir styrk til að kalla eft- ir viðurkenningu annarra á því að lækning væri hinn kosturinn við Bakkus. Ekki væri fullyrt að vandinn yrði úr sögunni, en hann yrði héðan af undir eftirliti þess sýkta og með traustum bakstuðningi hans. Stóri sigurinn fólst í því að það var ekki lengur þjóðfélags- legur dauðadómur að viðurkenna að maður „hefði veikleika“ en einnig styrk til að halda honum í órafjar- lægð. Fyrstu heimilin sem gáfu drykkjumönnum önnur skjól en bátskrifli í Örfirisey voru í fyrstu að með- höndla vanda en ekki sjúkdóm. Sú greining veltur mest á hinum sýkta. Umræðan nú á auðvitað ekki að vera neitt feimnismál. En hún verður að vera í sam- hengi. Bréfritari þekkir ekki til þessara málavaxta né sögulegra forsendna. En það þarf ekki að fara 70 ár aftur í tímann til að skynja hve úrræðin voru átakan- lega fá og fordómarnir miklir. Það á við um svo margt. Þjóðirnar eru að slást við veiruna. Við líka. Enn lifir fólk sem lifði það að Ísland varð fullvalda. Það man sjálfsagt ekki til þess. Það ár dóu tæplega 500 mann- eskjur úr faraldri, spænsku veikinni. Það svarar til þess að 3.500 manneskjur hefðu dáið vegna kórónu- veirunnar núna! Það varð ekki mörgum vörnum kom- ið við. Þá eins og nú fékk almenningur góð ráð til að fara eftir. Eitt það mikilvægasta var: Ekki láta ykkur verða kalt. Það var hægara sagt en gert. Hús voru illa einangruð og eldsneyti var af skornum skammti í lok heimsstyrjaldar. Þessi ógnarfjöldi sem féll fyrir veir- unni á Íslandi þá var enn tilfinnanlegri þar sem svo margt ungt fólk, í blóma lífsins, féll frá á örfáum dög- um. Ef við höldum núverandi stöðu gegn faraldrinum má að lokum fagna góðum varnarsigri, þótt hver og einn sem veiran tekur sé þjóðinni harmsefni. Umræðan verður ljósari Arnar Þór Jónsson, lögfræðingur og héraðsdómari, hefur skrifað merka ritgerð í tímaritið Þjóðmál sem allir þeir sem vilja vera tækir í umræðu um mikilvæg- ustu hagsmuni þjóðarinnar á lögfræðilegum grund- velli gerðu rétt í að kynna sér vel. Í aðfaraorðum greinarinnar segir: „Með fullgild- ingu EES-samningsins 1993 undirgekkst íslenska ríkið nýja skipan mála varðandi regluverk og innleið- ingu erlendra reglna. Grein þessi er rituð með skír- skotun til þess áhrifaleysis sem framkvæmd EES- samningsins hefur opinberað í tilviki Íslands. Að mati höfundar eru álitamál sem tengjast stöðu íslenskrar löggjafar og innleiðingarferlinu í heild af þeirri stærðargráðu að engin þjóð sem vill teljast sjálfstæð getur látið þau liggja í þagnargildi. Með skírskotun til þeirra meginstoða um lýðræði, fullveldi og temprun valds sem stjórnskipun Íslands hvílir á er hér undir- strikað að innleiðingarferli erlendra reglna getur ekki og má ekki vera hömlulaust. Greinin er rituð sem innlegg í gagnrýna umræðu um hlutskipti Íslands í samhengi EES.“ Þessi aðfaraorð benda réttilega á mikilvægi þess- arar umfjöllunar og hvaða hagsmunir eru í húfi og hversu mikið er undir. Greinin sjálf og sterkur raka- grundvöllur hennar er aðgengileg og ljós og veitir sennileg svör við áleitnum spurningum. Morgunblaðið/Árni Sæberg 15.11. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.