Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.11.2020, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.11.2020, Blaðsíða 29
15.11. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is eða í App Store og Google Play SÆKTU APPIÐ Sæktu appið frítt á AppStore eða Google Play Hreyfils appið Pantaðu leigubíl á einfaldan og þægilegan hátt Þú pantar bíl1 3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn. 2 fylgist með bílnum í appinu SJÓNVARP Handritshöfundurinn og framleiðandinn David E. Kelley á marga aðdáendur hér á landi eftir þætti á borð við Ally McBeal, Bost- on Legal og Big Little Lies. Nýj- ustu þættirnir hans kallast Big Sky og verða frumsýndir í Bandaríkjunum eftir helgina. Þar er hermt af leit lög- reglu og einkaspæjara að tveimur systrum sem trukkabílstjóri á að hafa rænt í Montana. Grunur leikur á að bílstjórinn sé raðmorðingi. Í helstu hlutverkum eru Kylie Bunbury og Ryan Philippe. Kylie Bunbury leikur í nýju þáttunum. AFP BÓKSALA 4.-10. NÓVEMBER Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Snerting Ólafur Jóhann Ólafsson 2 Þagnarmúr Arnaldur Indriðason 3 Fjarvera þín er myrkur Jón Kalman Stefánsson 4 Næturskuggar Eva Björg Ægisdóttir 5 Fávitar Sólborg Guðbrandsdóttir 6 Berskjaldaður Gunnhildur Arna Gunnarsd. 7 Gata mæðranna Kristín Marja Baldursdóttir 8 Eldarnir Sigríður Hagalín Björnsd. 9 Brúðkaup í desember Sarah Morgan 10 Vetrarmein Ragnar Jónasson 1 Þín eigin undirdjúp Ævar Þór Benediktsson 2 Jól í Múmíndal Tove Jansson 3 Nornasaga 2 – nýársnótt Kristín Ragna Gunnarsdóttir 4 Herra Bóbó Amelía og ættbrókin Yrsa Sigurðardóttir 5 Íslandsdætur Nína Björk Jónsdóttir 6 Krakkalögin okkar Jón Ólafsson/Úlfur Logason 7 Fíasól og furðusaga um krakka með kött í maga Kristín Helga Gunnarsdóttir 8 Nærbuxnavélmennið Arndís Þórarinsdóttir 9 Eddi glæsibrók og hryllingsleikföngin Andy Riley 10 Ísskrímslið David Walliams Allar bækur Barnabækur Ég hef alla tíð verið forfallinn bóka- nörd og reyni því að lesa eins mikið og ég mögulega get. Lestrarmark- miðið mitt fyrir 2020, eins og síð- ustu ár, var að lesa a.m.k. 100 bæk- ur og náði ég því um daginn. Hérna eru nokkrar af áhugaverðustu bók- unum sem ég hef lesið undanfarið. Ég byrjaði nýlega að hlusta á hljóðbækur og er eiginlega í sjokki að ég hafi ekki byrjað á því fyrr enda er það alveg æðislegt að geta les- ið á meðan maður gerir hversdagslega hluti eins og að elda eða brjóta saman þvott. Ein fyrsta hljóðbókin sem ég hlustaði á er sjálfsævisaga Bruce Springsteen Born to Run lesin af sjálfum stjóranum. Ég hef alltaf verið mikill Springsteen-maður og hef séð hann tvisvar á tónleikum og þessi bók er algjör skyldulesning fyrir alla Springsteen-aðdáendur. Stjórinn er bæði fyrsta flokks sögu- maður og frábær stílisti og hann lýsir ævi sinni á hátt sem rímar full- komlega við tónlistina hans með hreinskilnum lýsingum á daglegu striti fólks, meðvitund fyrir þeim pólitísku öflum sem móta samtím- ann og óþrjótandi von gagnvart mannkyninu. Greinasafnið Trick Mirror eftir blaðamanninn Jia Tolentino er önnur hljóðbók sem ég er að hlusta á. Gegn- umgangandi þemu í bókinni eru sjálfið á tímum internetsins, neysluvæð- ing femínismans og samfélags- staða ungs fólks á tímum síðkapí- talisma. Í einni af fyndnustu og áhrifamestu greinum bókarinnar, „The Story of a Generation in Se- ven Scams“, fjallar Tolentino um heimsmynd þúsaldarkynslóð- arinnar (sem bæði ég og hún til- heyrum) í gegnum sjö mismunandi svindl, allt frá hinu mislukkaða Fyre Festival yfir í kosningu Donalds Trumps. The Midnight Library eftir Matt Haig er ein besta skáldsagan sem ég hef lesið í ár. Bókin fjallar um Noru Seed, 35 ára konu sem er með nagandi eftirsjá gagnvart nán- ast öllu sem hún hefur eða hefur ekki gert í lífinu. Nora fær tækifæri til að takast á við þessa eftirsjá þegar hún rankar við sér í miðnæturbókasafninu í eins konar millibilsástandi á milli lífs og dauða þar sem bækurnar tákna enda- lausar mismunandi útgáfur af lífi hennar sem hefðu getað orðið. Að lokum langar mig að nefna uppáhaldsljóðabókina mína í ár, 1900 og eitthvað eftir Ragnheiði Lár- usdóttur sem nýlega hlaut bókmennta- verðlaun Tómasar Guðmundssonar. Ég er vissulega ekki hlutlaus hvað hana varðar enda er höfundurinn mamma mín og það gladdi mig einstaklega mikið að sjá hana fá þessi verðlaun fyrir sína fyrstu ljóðabók. Í bókinni fjallar Ragn- heiður um æsku sína sem prests- dóttir á Vestfjörðum á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar, í heimi sem er kunnuglegur mörg- um af eldri kynslóðum en mjög framandi fólki á mínum aldri og yngri. ÞORVALDUR SIGURBJÖRN ER AÐ LESA Búinn með 100 bækur Þorvaldur Sigurbjörn Helgason er rithöfundur. Æðisgengin leit að systrum um, hundurinn með hattinn, Spori, og aðstoðarmaður hans, kettlingur- inn Tási, þurfa að leysa dularfullt hundshvarf á voldugu sveitasetri. Úr vöndu er að ráða og allir liggja undir grun,“ segir Guðni. – Þetta hljómar svolítið eins og Agatha Christie? „Já, þetta er ráðgátusaga í anda Hercule Poirot og Sherlock Holmes; skrifuð eins og fullorðinsglæpasaga en hönnuð fyrir lesendur sem ekki eru tilbúnir í stórar hlussubækur. Eigum við að segja sjö ára og upp úr? Í og með er ég að búa krakkana undir áhuga á sakamálasögum og ráðgátum. Og að sjálfsögðu er ekk- ert gefið upp fyrr en í blálokin.“ Bráðum Áðan – sem er mergjaður titill – er ævintýrabók fyrir ung- menni tíu ára og eldri enda þótt Guðna sé kunnugt um níu ára les- anda sem át bókina upp til agna. „Bráðum Áðan er skrifuð til að fylla upp í gat. Það er ekki mikið að koma út af ungmennabókum eftir ís- lenska höfunda. Sú deild er oft út undan. Sagt er að mörg börn hætti að lesa um þrettán ára aldurinn og þess vegna hafa menn ekki fyrir því að skrifa fyrir þann hóp. Ég held hins vegar að þetta sé kjúklingurinn og eggið – ef ekkert er skrifað fyrir þennan hóp þá les hann ekki.“ Bráðum Áðan er fantasía um tímaflakk sem gerist á Íslandi. Eins og svo oft þegar hann sest við skrift- ir spurði Guðni sig fyrst: Hvað hefði ég sjálfur viljað lesa á þessum aldri? „Þessi tímaflakkssaga hefur þá sérstöðu að aðalpersónurnar ferðast fram í tímann til að komast aftur til nútíðar. Hitt stóra elementið í sög- unni er alkemía eða gullgerðarlistin og inn í þetta þvælast skrímsli og yf- irnáttúrulegir hlutir og risastórar persónur frá ýmsum tímum,“ segir Guðni og bætir við að sagan sé inn- blásin af ærslateiknimyndum á borð við Rick & Morty og japönsku Anime og Back to the Future- kvikmyndunum. „Það sem skiptir mestu máli er að lesandinn týni sér í sögunni.“ Sjaldan eða aldrei hefur verið mikilvægara að skrifa bækur fyrir ungmenni enda samkeppnin um at- hygli þeirra gríðarleg á tækniöld. „Það er miklu auðveldara að ýta bara á „play“ og liggja eins og skata. Ekkert við því að segja í sjálfu sér en það þýðir hins vegar að við rithöf- undarnir þurfum að skrifa skemmti- legri bækur og vera duglegir að halda þeim að krökkunum sem val- kosti. Bráðum Áðan er til dæmis sér- hönnuð fyrir krakka sem alla jafna nenna ekki að lesa.“ – Þið bræður skrifið fyrir sama hópinn. Er mikil samkeppni á milli ykkar? „Það er engin leið að keppa við Ævar,“ svarar Guðni hlæjandi. „Við erum báðir að þvælast í ævintýrum og fantasíum en í mínum huga erum við ekki að berjast um lesendur; miklu frekar að berjast í sameiningu við að fá fleiri krakka til að lesa, eins og aðrir höfundar sem skrifa barna- og ungmennabækur. Öll höfum við þörf fyrir að skrifa fyrir börn til að halda lestraráhuga gangandi.“ Guðni segir þá bræður alltaf hafa lesið mikið; til að mynda byrjað „allt of ungir“ að lesa Stephen King og slíka höfunda. „Við ólumst upp í sveit og vorum með annan fótinn á bókasafninu í Borgarnesi, þannig að skrifin voru alltaf eðlileg fyrir okkur. Lífið snýst um sagnagerð. Sjálfur hef ég stigið út og inn úr þessu og finna að ég þarf að skapa og skrifa og mun halda því áfram. Mínu verki er hvergi nærri lokið.“ Guðni Líndal Bene- diktsson segir mik- ilvægt að halda lestrar- áhuga barna gangandi. Ljósmynd/Lara Cappelli

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.