Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.11.2020, Síða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.11.2020, Síða 30
Kaíró. AFP | Morðóðar múmíur, hryllingshús, bráðvel gerðar brellur og drungaleg tónlist setja mark sitt á nýja egypska þáttaröð, sem nefnist „Paranormal“ eða „Yfirskilvitlegt“ og efnisveitan Netflix veðjar á að muni slá í gegn um allan heim. Þættirnir eru byggðir á metsölu- bókum eftir egypska rithöfundinn Ahmed Khaled Tawfik. Þættirnir urðu aðgengilegir á Netflix á níu tungumálum í um 190 löndum í lið- inni viku. „Í ljósi þess hvað aðdáendurnir eru margir var rökrétt fyrir okkur að vera með,“ sagði Ahmed Shar- kawi, yfir maður arabísks og afrísks efnis hjá Netflix, í samtali við AFP og vísaði til vinsælda unglingabók- anna. „Við erum spennt fyrir því að aðdáendurnir fái að sjá uppáhalds- persónurnar sínar, skrímsli og drauga, lifna við.“ En „Paranormal“, sem er fyrsta egypska verkefni Netflix, markar einnig tímamót í afþreyingariðn- aðinum í Egyptalandi og víðar í arabaheiminum. Egyptaland hefur löngum verið atkvæðamikið í menn- ingu í sínum heimshluta og árlega framleitt tugi kvikmynda auk gríp- andi sjónvarpsþátta, með bæði gríni og alvöru. Rís hnignandi grein á ný? Gullaldarárin voru frá fimmta til sjö- unda áratugarins, en gagnrýnendur eru þeirrar hyggju að á undan- förnum árum hafi Egyptum verið farið að förlast í kvikmyndagerð. Margir binda vonir við að upp- gangur þáttaraða á streymisveitum muni blása nýju lífi í greinina og koma egypskum leikurum á fram- færi við stærri hóp áhorfenda. „Við höfum tekið eftir því að sum- ir kvikmyndagerðarmenn eru farnir að sniðganga fjármögnunarleiðir á vegum ríkis og einkaaðila og leita beint til Netflix,“ sagði Marwan Kraidy, sérfræðingur um arabíska fjölmiðla og rektor Northwestern- háskóla í Katar. „Paranormal“ er í sex þáttum og gerist á sjöunda áratugnum. Þar segir frá ævintýrum Refaats Ismails blóðfræðings, sem Ahmed Amin leikur. Hann lendir í ýmsum ofur- náttúrulegum ævintýrum og þarf að leysa handanheimaráðgátur ásamt sínum trausta aðstoðarmanni, skoska vísindamanninum Maggie Mackillop, sem bresk-líbanska leik- konan Razane Jammal leikur. Leiðir þeirra liggja vítt og breitt um Kaíró og allt inn í eyðimerkur Líbíu. „Við vildum búa til gæðaefni án þess að glata egypskum anda efnis- ins,“ sagði Amr Salama, leikstjóri þáttanna. Hann hefur gert myndir á borð við „Sheikh Jackson“ og hafa þær verið fastir liðir á kvik- myndahátíðum. Brúa bil austurs og vesturs Myndin hefur fengið misjafnar við- tökur hjá Egyptum á félagsmiðlum. Sumir gera grín að brellunum, aðrir dásama leik Amins. Amin gengur með gleraugu og liggur lágt rómur. Hann varð fræg- ur í Egyptalandi fyrir grínatriði á netinu. Í samtali við AFP talaði hann af ákefð um að hann vildi koma Egyptalandi á kortið. „Fyrir mig fylgir það að leika í „Paranormal“ áskorun um að koma egypskri leiklist á hið alþjóðlega svið,“ sagði hann. „Þetta er próf- steinn á það hvort við séum sam- keppnishæf og getum höfðað til áhorfenda utan arabaheimsins.“ Jammal vonar að þættirnir verði til þess að áhorfendur um heim allan sjái efni þar sem farið er út fyrir ste- reótýpur Hollywood af arabískum persónum. „Ég vona að sviðsljósið beinist nú að þeim hæfileikum, sem hér er að finna,“ sagði hún. „Ég vona að þetta veiti okkur tækifæri til að brúa bilið milli austurs og vesturs.“ Leikararnir Razane Jammal og Ahmed Amin í hlut- verkum sínum í egypsku þáttunum „Paranormal“. AFP REIMLEIKAR OG RÁÐGÁTUR Í KAÍRÓ Binda vonir við egypska þætti Leikarar og starfslið þáttanna „Paranormal“ sem byggðir eru á vinsælum ung- lingabókum og gerast að mestu í Kaíró í Egyptalandi fyrir hálfri öld. AFP 30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.11. 2020 –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is BÍLA-SÉRBLAÐ BÍLA fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 17. nóvember 2020BLAÐ 08.00 Strumparnir 08.20 Blíða og Blær 08.45 hópurinn og sópurinn 09.10 Mæja býfluga 09.20 Adda klóka 09.45 Zigby 09.55 Mia og ég 10.20 Lína langsokkur 10.45 Latibær 11.05 Lukku láki 11.30 Ævintýri Tinna 12.00 Nágrannar 12.20 Nágrannar 12.40 Nágrannar 13.05 Nágrannar 13.25 Nágrannar 13.50 Impractical Jokers 14.10 Supernanny 14.55 Kviss 15.40 Your Home Made Per- fect 16.40 60 Minutes 17.35 Víglínan 18.26 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.40 Ísland í dag 19.05 The Great Christmas Light Fight 19.50 Eurogarðurinn 20.20 Beartown 21.05 Ummerki 21.35 The Sister 22.25 The Third Day 23.20 Keeping Faith ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4  93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 20.00 Sögur frá Grænlandi – þáttur 5 20.30 Heimildamynd 21.00 Tónlist á N4 Endurt. allan sólarhr. 17.00 Times Square Church 18.00 Tónlist 18.30 Ísrael í dag 19.30 Jesús Kristur er svarið 20.00 Blönduð dagskrá 21.00 Blönduð dagskrá 22.30 Gegnumbrot 23.30 Tónlist 24.00 Joyce Meyer 18.00 21 – Úrval á föstudegi 18.30 Atvinnulífið 19.00 Matur og heimili 19.30 Þjóðleikhúsið í 70 ár 20.00 Mannamál (e) 20.30 Suðurnesja-magasín Víkurfrétta (e) 21.00 Fjallaskálar Íslands (e) 21.30 Þjóðleikhúsið í 70 ár 10.25 The Block 11.25 The Block 12.30 Dr. Phil 13.15 Dr. Phil 14.00 Dr. Phil 14.45 Superstore 15.10 90210 16.30 Family Guy 16.50 The King of Queens 17.10 Everybody Loves Ray- mond 17.35 Kevin (Probably) Saves The World 18.20 This Is Us 20.00 Venjulegt fólk 20.35 The Block 21.55 Catherine the Great (2019) 22.55 Love Island 23.50 Blue Bloods 06.55 Bæn og orð dagsins. 07.00 Fréttir. 07.03 Hringsól. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Á tónsviðinu. 09.00 Fréttir. 09.03 Svona er þetta. 10.00 Fréttir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Dóm- kirkjunni. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 13.00 Sögur af landi. 14.00 Víðsjá. 15.00 Glans. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Úr tónlistarlífinu: Sögu- stund með Elmari Gil- bertssyni. 17.00 Icemaster: Smásaga. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Það sem breyt- ingaskeiðið kenndi mér. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Skuggi arnarins. 20.35 Gestaboð. 21.30 Fólk og fræði. 22.00 Fréttir. 22.10 Meistaraverk Beetho- vens. 23.10 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. 07.15 KrakkaRÚV 07.16 Tulipop 07.19 Kalli og Lóa 07.30 Klingjur 07.41 Lalli 07.48 Friðþjófur forvitni 08.10 Nellý og Nóra 08.17 Robbi og Skrímsli 08.39 Hæ Sámur 08.46 Unnar og vinur 09.09 Flugskólinn 09.31 Múmínálfarnir 09.53 Millý spyr 10.00 Þvegill og skrúbbur 10.05 Geimfarar – Erfiðasta starf í alheiminum 11.00 Silfrið 12.10 Moldvarpan 13.15 Moldvarpan 14.20 Gamalt verður nýtt 14.25 Vestfjarðavíkingur 15.15 Guðrún Sóley grillar 15.20 Lamandi ótti – Ditte 15.35 Live from Reykjavík 17.05 Landakort 17.15 Sagan bak við smellinn 17.20 Menningin – samantekt 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Stundin okkar 18.25 Lífsins lystisemdir 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir á sunnudegi 19.40 Veður 19.50 Landinn 20.20 Óperuminning 20.25 Ólympíukvöld fatlaðra 21.10 Snilligáfa Einsteins 22.00 The Square 00.25 Silfrið 12 til 16 Þór Bæring Besta blandan af tónlist á sunnudegi og létt spjall með Þór Bæring. Hækkaðu í gleðinni með K100. 16 til 18 Tónlistinn Topp40 með Dj Dóru Júlíu. Einn vinsælasti plötusnúður landsins kynnir 40 vinsælustu lög landsins á hverjum einasta sunnudegi. Tónlistinn er eini opinberi vinsældalisti landsins. 18 til 00 K100 tónlist Besta tónlistin dunar í allt kvöld. Anna Lóa í Ham- ingjuhorninu ræddi við þau í morgunþætt- inum Ísland vaknar um vin- skap. Þar út- skýrir hún hvern- ig hægt sé að líkja vinskap við tré. „Sumir vinir eru eins og lauf- blöð, þeir bara fjúka í burtu, þeir koma og þeir fara. Aðrir eru svolítið eins og greinarnar á trjánum, þær kannski bogna svolítið og sveigjast til og frá og svo kemur mikið álag og þá brotna þær, en skilja samt eft- ir sig ákveðinn lærdóm. Svo eru aðrir vinir sem eru bara eins og ræturnar. Þú getur hringt í þá hvenær sem er og þarft ekki að hafa áhyggjur af því þó þú haf- ir ekki heyrt í þeim lengi, þú veist nákvæmlega hvað þið hafið.“ Viðtalið við Önnu má nálgast á K100.is. Sumir vinir koma og fara

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.