Bæjarins besta - 29.08.1990, Qupperneq 1
7. ÁRG ■ MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGUST 1990
35. TBL.
AÐILI AÐ SAMTÖKUM BÆJAR- OG HÉRAÐSFRÉTTABLAÐA
Skálavík um helqina
Pöbbinn opinn föstudags-
kvöldkl. 22 - 01. Dansleikur
laugardagskvöld. Hljómsveitin
Grétar á gröfunni spilar nýju og
gömlu dansana SKÁLAVÍK
kl. 23-03. Bolungarvík s 7130
í tilefni af opnun ísafjarðarflugvallar eftir framkvæmdirnar, komu þeir Jóhann H. Jónsson,
framkvstj. flugvalladeildar og Guðmundur Matthíasson framkvstj. flugþjónustu til að líta á að-
stæður eins og Iög gera ráð fyrir.
ísafjarðarflugvöllur:
ísafjarðarflugvöllur opnaður
á ný eftir framkvæmdirnar
„Þetta breytir öllu fyrir okkur, bæði hvað öryggisþáttinn
varðar og fyrir flugrekstaraðila“ segir Guðbjörn Charlesson
I^SAFJARÐARFLUGVÖLLUR var formlega opnaður í
morgun á ný eftir að sett hafði verið bundið slitlag á hann.
Völlurinn hefur verið lokaður frá 7. ágúst eða í 22 daga. Fram-
kvæmdir fóru fram úr áætlun og setti veðurfar strik í reikning-
inn, auk þess gekk frekar illa að ná upp því efni sem fara átti í
völlinn. Hefðbundin flugáætlun hófst kl. 8:00 í morgun.
Guðbjörn Charlesson,
umdæmis- og flugvallarstjóri
ísafjarðarflugvallar var
spurður hvort þessar fram-
kvæmdir við flugvöllinn
breyttu ekki miklu fyrir
Vestfirðinga?
„Jú, þetta breytir öllu,
bæði fyrir flugrekstraraðila
hvað skemmdir á flugvélum
og öryggisþáttarins. Öll
vinnuaðstaða batnar við
völlinn, það verður auðveld-
ara að afvatna, ryðja og að
halda honum í eðlilegu horfi
í framtíðinni."
Hvað var það sem tafði
framkvœmdina?
„Veðurfar hafði sitt að
segja og svo gekk frekar
hægt að dæla framan að, nú
svo kom annað í ljós sem að
menn vissu ekki fyrir, það
var miklu meira sandmagn í
hverri dælingu en gert var
ráð fyrir og þurfti að sækja
möl út á Skipeyrarodda til að
bjarga því.“
Nú líður að því að ísafjarð-
arflugvöllur verði 30 ára 2.
október n.k. Verður einhvað
gert í því tilefni?
„Pað hefur verið lítillega
rætt um það, að það verði
eitthvað gert til þess að
minnast þessa samgöngu-
þáttar sem er ekki svo lítill í
sögu okkar ísfirðinga og
Vestfirðinga í heild. Það hef-
ur ekki verið ákveðið endan-
lega en það verður gert á
næstunni." sagði Guðbjörn
Charlesson að lokum.
í gærkveldi komu þeir Jó-
hann H. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri flugvallar-
deildar og Guðmundur
Matthíasson, framkvæmda-
stjóri flugumferðarþjónustu
til að líta á aðstæður, auk
þeirra komu tveir aðilar frá
Flugleiðum, þeir Andri
Hrólfsson og Sverrir Jóns-
son.
ísafjarðardjúp:
Manns er saknað
eftir að bát hvolfdi í
Djúpinu á sunnudag
Bensíntankur fannst i fjörunm a Arnarnesinu
LÖGREGLUNNI á ísafirði var tilkynnt um klukkan
21:00 á sunnudagskvöldið að manns væri saknað frá
ísafirði. Maðurinn fór um morguninn á litlum vatnabát út á
Djúpið til veiða og þegar hann hafði ekki skilað sér um
kvöldið voru björgunarsveitir kallaðar út. Þá var lítil
einkaflugvél fengin til þess að aðstoða við leitina og tilkynnti
flugmaður vélarinnar kl. 21:50 að bátur væri á reki þrjár
mílur út af Arnarnesi.
Björgunarbáturinn Daníel
Sigmundsson fór á vettvang
og fann bátinn mannlausan á
hvolfi skömmu síðar og tók
hann um borð. Báturinn er
aðeins 7 feta langur, eða
2,10 metrar. og hafði lítill
2,5 ha. utanborðsmótor sem
átti að hafa verið í bátnum
losnað af.
Á milli 15 og 20 bátar voru
á svæðinu við leitina auk
varðskipsins Týs. Leitað var
fram á nótt og svo aftur á
mánudagsmorguninn en án
árangurs. Þá voru gengnar
fjörur og leitað í
flæðarmálum á slöngubátum
björgunarsveita alla leið frá
ísafjarðarflugvelli og inn
eftir öllum fjörðum og út á
Snæfjallaströnd.
Á þriðjudaginn fannst
bensíntankur úr bátnum í
fjörunni á Arnarnesi utan til
við Vébjarnareyri. Þá voru
fjörurnar gengnar aftur en
án árangurs. Skipulagðari
leit hefur ekki verið hætt
eins og kom fram í
Morgunblaðinu í vikunni.
Henni verður haldið áfram
fram undir helgi en þá
verður staðan metin.
Maðurinn sem saknað er
heitir Hörður Karlsson 29
ára gamall, búsettur á
Hlíðarvegi 5 á ísafirði. Hann
á unnustu og eitt barn.
ísafjörður:
Kanínur ganga lausar
TÖLUVERT hefur verið
um kanínur á vappi fyrir
ofan húsin á Urðarveginum í
sumar. Þar eru á ferð kanín-
ur sem hafa sloppið úr haldi
frá næriiggjandi hverfi og
ganga nú lausar.
Þær virðast una sér vel og
leita sérstaklega í garða til
að afla sér ætis. Aðallega eru
það blóm og plöntur sem
þær éta og skemma fyrir
garðeigendum. Þá hefur sést
til kanínu við skíðaskálann á
Seljalandsdal, þannig að þær
fara víða um.
Garðeigendur eru vissu-
lega óhressir með þetta mál
og vilja kanínurnar burt hið
snarasta. Ekki er vitað með
vissu hvernig þetta mál verð-
ur leyst en víst er að dýrin
verða einhvernveginn hand-
sömuð eða skotin á færi. nema
vetur konungur verði látinn
sjá fyrir þeim endanlega.
Kanínur lifa ekki villtar hér-
lendis yfir vetrartímann, það
er eitt sem víst er. En það
verður fróðlegt að vita hvort
rjúpnaskyttur verði varar við
þessi dýr í vetur á fjöllum og
í skóglendi.