Bæjarins besta - 29.08.1990, Qupperneq 4
BÆJARINS BESTA
NYJAR
MYNDIR
VIKULEGA
UPPÁLÍFOG DAUÐA
Paö er hlutskipti hermanns-
ins að vera svikinn. Þeim
mönnum sem lifðu af fyrri
heimsstyrjöldina var heitið
landi sem væri hetjum
samboðið. Þeir hlutu
atvinnuleysi og fátækt.
Rauben gegndi herþjónustu
í breska hernum, bæði á
Noröur-írlandi og á
Falklandseyjum. Og nú
hefur hann fengið nægju
sína. Hann hyggst leggja frá
sér byssuna. En það má ekki
verða. Vinirnir þarfnast
hans og lögreglan sömuleið-
is. Vonbrigði eftirstríðsár-
anna hafa markað sín spor
og brátt stendur Rauben á
mörkum hins lögmæta og
ólögmæta - og brátt er hann
hundeltur maður.
tobrooklyn
______
$iíBtw£mSiir- '
LAST EXIT
TO BROOKLYN
Myndin er byggð á hinni
umdeildu metsölubók eftir
Hubert Selby yngri, en hún
var í fyrstu bönnuð vegna
meintra brota á klámlöggjöf-
inni. Brooklyn hverfið í
New York árið 1952.Tralala
er vændiskona og Vinnie er
hinn grimmlundaði dólgur
hennar. Georgette og
Regina eru fataskiptingar á
uppleið.
JR-VIDEO
VIÐ NORÐURVEG
S 4299
Yestfirðir / gæsaveiði:
Gæsin er stygg en
það er mikið afhenni
- yfír 50 gæsir veiddar í síðustu viku
YESTFIRSKAR gæsaskyttur hafa ekki setið aðgerða-
lausar frá því gæsaveiðitímabilið byrjaði þann 20. ágúst
s.l. Vitað er um að felldar hafa verið yfflr 50 gæsir í síðustu
viku sem vitað er um hér á suður og vestanverðum Vest-
fjörðum. Þær gæsaskyttur sem BB hafði samband við vilja
náttúrulega ekki láta uppi hvar aflinn sé fenginn en afrakstur
ferðanna mátti láta uppi.
Tómas Árdal með fallega veiði eftir morgunflug, sex gæsir.
Hann fékk þrjár til viðbótar skömmu síðar í sömu ferð.
Tómas Árdal, verkstjóri á
Bíldudal fór í eina ferð á
mánudagsnóttina í síðustu
viku og kom hann heim und-
ir morgun með 9 gæsir í
skottinu. Hann fékk sex í
morgunflugi og þurfti að
skríða að þremur. „Þctta eru
sæmilegar gæsir en ungarnir
eru heldur í smærri kantin-
um.
Þeir eru svipaðir núna eins
og 15 til 20. september í
fyrra en ég hef heyrt að ung-
arnir fyrir sunnan séu mjög
smáir og allt að því ófleygir."
sagði Tómas Árdal en hann
veiddi 36 gæsir á síðasta ári
hér á Vestfjörðum í fáeinum
ferðum.
Fleiri skyttur voru á ferð
fyrir helgi m.a. Grétar
Schmidt og Jón Víðir Njáls-
son. Þcir fengu 13 gæsir á
fjórum dögum og voru þeir
hinir ánægðustu eftir veiði-
túrinn. Þá fór Salmar Jó-
hannsson í Straum ásamt
tveimur vinum sínum í
tveggja daga veiðiferð og
höfðu þeir líka 13 gæsir upp
úr krafsinu og einn skarf.
Síðan höfum við frétt af
hinum og þessum veiði-
mönnum sem fengið hafa
eina til þrjár gæsir í ferð.
Gæsin virðist verð nokkuð
stygg þessa dagana enda hef-
ur hún vcrið á flótta undan
gæsaskyttunum síðustu
daga. Bændur eru hinir
ánægðustu yfir þessu því
gæsirnar skemma túnin hjá
þeim og hafa þeir lítinn tíma
til að styggja hana burt.
Grétar Schmidt
gæs af 13.
með
Jón Víðir Njálsson heldur á
nýskotinni gæs.
RITSTJORN
Haustþankar
Sumarið kom með vorinu og hefur varað sfðan. Elstu menn
muna vart aðra eins samfellda veðurblíðu. En nú styttist í
að sumrinu góða ljúki. Sumrinu góða, sem var svo gott, að
menn hafa nánast gleymt hinum harða vetri er var undanfari
þess.
Haustið siglir í kjölfar sumarsins. Koma þess boðar marg-
vísleg umskipti. Náttúran skiptir litum og óneitanlega eru
haustlitirnir meðal þess fegursta sem náttúran skartar.
Smámsaman leggjast sumarleikir barnana af og einn góðan
verðudag er bjöllunni hringt. Skólinn byrjaður. Óumflýjan-
leg staðreynd, einum gleði öðrum kvíði.
Á haustdögum hrúgast vandamálin upp innan skólanna.
Með hverju árinu sem líður verður æ erfiðara að fá kennara
til starfa. Þrátt fyrir allan tilkostnað við að mennta kennara
hverfa þeir til annara verka. Vissulega öfugsnúið eins og
margt annað í þjóðfélaginu.
Milli ái*-,tíða og margvíslegra umskipta í mannlífinu eru
órjúfanleg tengsl. Störf bindast sumri og vetri. Á sama hátt
fléttast fastmótaðir lífshættir hver sinni árstíð.
Yfir sumartímann hvílum við okkur gjarnan á félaga- og
fundastússi, en um leið og haustar lifnar heldur betur yfir
þessu fjölbreytta fyrirbrigði samfélagsins og það svo um mun-
ar.
Veðurblíðan á sumrinu góða kom ekki í veg fyrir storma á
vettvangi þjóðmála. Þannig hafa ýmsar uppákomur hjá
landsstjórninni leitt til vangaveltna um líf hennar eða dauða.
Þegar fram líða stundir þarf engum að koma á óvart þótt
söguritarar teldu hana haft yfir að ráða fleiri lífum en köttur-
inn. Það á svo eftir að koma í ljós, hvort þau hefðu betur
mátt vera færri eður ei.
Þá hefur ekki vantað og vantar ekki litskrúðið innan sveit-
arstjórna í fjórðungnum okkar. Og enda þótt blæbrigði þeirra
séu á engan hátt samanburðarhæf við litríki haustsins, þá eru
þau skondin, svo ekki sé meira sagt.
Á komandi hausti fáum við sem áður margþætt og marg-
vísleg verkefni við að glíma. Við skulum vona að haustið
verði í takt við sumarið og með þá von í huga sláum við botn-
inn í þessar bollaleggingar á hinum fyrstu dögum þess.
s.h.
BÆJARINS BESTA, óháð vikublað á Vestfjörðum. Útgefandi: H-PRENT hf, Sólgata 9, 400 ísafjörður, S 94-4560.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson S 94-4277, S 985-25362 og HalldórSveinbjörnsson S 94-4101,
S 985-31062. Blaðamaður: Róbert Schmidt S 94-3516. Útgáfudagur: Miðvikudagur. Upplag: 3800 eintök.
Ritstjórnarskrifstofa og auglýsingamóttaka að Sólgötu 9, sími 94-4570. TelefaxS 94-4564. Setning, umbrotog prentun:
H-PRENT hf, Sólgata 9,400 Isafjörður. BÆJARINS BESTA er aðili að Samtökum bæjar- og héraðsf réttablaða og Upplagseft-
irliti Verslunarráðs. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið.