Bæjarins besta - 14.11.1990, Page 1
BÆJARINS BESIA
46. TBL. j 7. ÁRG - MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1990
7. ÁRG - MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1990
AÐILI AÐ SAMTÖKUM BÆJAR- OG HÉRAÐSFRÉTTABLAÐA
Skálavík um helgina
Föstudags-
og laugardagskvöld.
LOKAÐ
SKALAVIK
Bolungarvík S 7130
• Samningamenn Farmanna- og fiskimannasambandsins telja sér misboðið að fá ekki sama samning og útvegsmenn á Vestfjörðum gerðu
við Bylgjuna.
ísafjörður:
FFSÍ hafnaði
samningstilboði LÍÚ
FUNDUR Farmanna og
fiskimannasambandsins
sem haldinn var á Hótel ísa-
firði á mánudag hafnaði
samningstilboði Landssam-
bands íslenskra útvegs-
manna frá því á laugardag.
Fundarmenn voru því ekki
bjartsýnir á að samningar
tækjust áður en til boðaðs
verkfails kemur þann 20.
nóvember næstkomandi.
BB náði ekki sambandi
við Guðjón A. Kristjánsson
forseta FFSÍ áður en blaðið
fór í prentun en hann sagði í
samtali við RÚV að yfir-
mönnum væri misboðið að fá
ekki sama samning og út-
vegsmenn á Vestfjörðum
gerðu við Skipstjóra- og
stýrimannafélagið Bylgjuna
og samþykktur var í at-
kvæðagreiðslu félagsins. 69
greiddu atkvæði með samn-
ingnum, 8 voru á móti en
tveir skiluðu auðum seðlum.
Samkvæmt samningnum
hækkar kaup yfirmanna þeg-
ar unnið er við skip í landi.
Fyrir höfðu yfirmenn á vest-
firskum skipum 0.5% hærri
skiptaprósentu en aðrir,
hærri kauptryggingu og þrjú
starfsaldursþrep í stað
tveggja hjá öðrum. -s.
• Guðjón A. Kristjánsson.
Vestfirðir:
Ókásteypukant
ÖKUMAÐUR einn lenti í
því óláni seint á föstudags-
kvöldið að aka á steyptan
kant sem skagar út í götuna
fyrir framan Mjólkurstöðina
Wardstúni. Ökumaðurinn
slasaðist ekkert en eitthvað
mun bifreiðin hafa skemmst.
Kantur sá er um ræðir
stendur langt út í götuna og
er stórhættulegur, sérstak-
lega í myrkri.
Slasaðistáhendi
UNGUR maður slasaðist
á hendi eftir dansleik sem
haldinn var í Súðavík aðfar-
arnótt laugardagsins. Ekki
er vitað um tildrög slyssins
en talið er að maðurinn hafi
hrasað með ofangreindum
afleiðingum. Hann var flutt-
ur á Fjórðungssjúkrahúsið á
ísafirði þar sem gert var að
sárum hans.
Snéru
umferðarmerkjum
UNGIR drengir voru
handteknir síðastliðið föstu-
dagskvöld við Bensínstöðina
á ísafirði. Par voru þeir að
stunda þá iðju að snúa um-
ferðarmerkjum og losa
ruslatunnur á götuna. Peir
voru teknir hið snarasta og
settir í fangaklefa.
Innbrotí
heildverslun
KLUKKAN 08.20 á laug-
ardagsmorguninn var lög-
reglunni tilkynnt um að brot-
ist hefði verið inn í
heildverslun Hafsteins Vil-
hjálmssonar við Grænagarð
á ísafirði. Litlar skemmdir
voru unnar en einhverju af
gosi og sælgæti mun hafa
verið stolið. Málið er í rann-
sókn.
VÖRUVAL
Nýkomið mikið úrval
afbúsáhöldum
LJÓNINU - SKEIÐI • ÍSAFIRÐI
S 4211
ö
TILBOÐ VIKUNNAR15. NOV. - 21. NOV.
( )T[ ) ★ Súpa og salatbar
V—* 1^^ ★ Sjávarréttapollur med ostasósu
Við Pollinn S 4711 ★ Ábætir
VERÐ AÐEINS KR.
600.-