Bæjarins besta - 14.11.1990, Qupperneq 2
2
BÆJARINS BESTA
Vestfirðir:
Fréttakorn
Kaupir Skotfélagið kirkjuna?
I Á AÐALFUNDI Skotfélags ísafjarðar sem haldinn var á
Hótel ísafirði í síðustu viku voru ýmsar hugmyndir reifaðar
varðandi æfingaraðstöðu fyrir félagsmenn til inniskotsæf-
inga. Fjölmargar hugmyndir komu fram þ.á.m. ein forvitni-
leg. Hún var þess efnis að Skotfélagið leggi sitt fram til
lausnar á kirkjumálinu og kaupi kirkjuna, taki hana í sundur
og noti hluta efnisins til að reisa æfingaaðstöðu til inni-
skotæfinga.
Með kaupum á kirkjunni telja skotveiðimenn kirkjumálið
vera leyst en hver myndi trúa því að skotæfingar hæfust í húsi
Guðs?
Þrír slást um annað sætið hjá krötum
I FUNDUR í kjördæmisráði Alþýðuflokksins á Vestfjörð-
um verður að öllum líkindum haldin nú fyrir helgina þar sem
tekin verður ákvörðun um röðun á lista flokksins fyrir kom-
andi alþingiskosningar. Sighvatur Björgvinsson er talinn ör-
uggur með fyrsta sæti á listanum en heimildir blaðsins segja
að hörð barátta verði um annað sætið þar sem þrír hafa gefið
kost á sér í það. Þessir þrír eru Kristján K. Jónasson, fram-
kvæmdastjóri Djúpbátsins hf. á ísafirði og fyrrverandi for-
seti bæjarstjórnar á ísafirði, Pétur Sigurðsson, forseti AI-
þýðusambands Vestfjarða og Björn Ingi Bjarnason frá
Flateyri. Er búist við átakafundi þar sem línurnar um listann
munu skýrast.
Ritgerðarsamkeppni meðal framhaldsskólanema
I ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til ritgerðarsamkeppni
meðal framhaldsskólanema í tilefni af 60 ára afmæli Lands-
spítalans. Markmiðið með samkeppninni er að vekja nem-
endur til umhugsunar um aðdraganda stofnunar spítalans og
þær geysimiklu framfarir er orðið hafa hvað snertir aðbúnað
og lífshorfur sjúklinga á þeim 60 árum er spítalinn hefur ver-
ið starfræktur. Þá og ekki síður hvern þátt starfsfólk spítal-
ans á í því að hið margþætta hlutverk hans, sem sjúkrahúss,
kennslu- og rannsóknastofnunar, er vel af hendi leyst.
Reyndar svo vel að þjóðin öll má vera stolt af þessum „spít-
ala allra landsmanna".
Ritgerðarefnin eru: 1. Börn á sjúkrahúsi -1930-1990. 2.
Hvers vegna bar brýna nauðsyn til að reisa Landspítala? 3.
Hlutverk Landsspítala að 25 árum liðnum. 4. Ástæður þess
að ég vil starfa á sjúkrahúsi? 5. Smásaga sem gerist á sjúkra-
húsi. Ritgerðunum skal skila vélrituðum eða í tölvuútskrift
undir dulnefni en nafn höfundar fylgja í lokuðu umslagi.
Skilafrestur er til 20. janúar 1991 og úrslit verða kunn mán-
uði síðar. Æskileg lengd er 4-8 síður (A4).
Við mat ritgerða verður fyrst og fremst höfð hliðsjón af
efnistökum, málfari og stíl og frágangi öllum. Höfundar
þeirra þriggja ritgerða, sem þykja bera af, fá í sinn hlut góð
peningaverðlaun, innistæður á Kjörbókum, sem Landsbanki
Islands gefur. Fyrstu verðlaun eru kr. 50.000.- 2. verðlaun
kr. 30.000,- og 3. verðlaun kr. 20.000.-. Auk þeirra fá tíu
höfundar vegleg bókaverðlaun fyrir verk sín. Þeir sem hafa
áhuga á að taka þátt í samkeppninni er bent á að utanáskrift
samkeppninnar er: Landspítalinn v/ ritgerðarsamkeppni,
b.t. Árna Björnssonar, yfirlæknis, 101. Reykjavík.
L
Vestfirðir:
Þrennt fékk gaseitran
RIR starfsmenn fisk-
vinnslufyrirtækisins ís-
vers voru fluttir á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á ísafirði á
fimmtudaginn í síðustu
vegna klórgaseitrunar. Einn
mann þurfti að flytja með
sjúkraflugi til Reykjavíkur
með innvortis meiðsl. Hann
er enn á sjúkrahúsi en er á
batavegi.
Fólkið andaði að sér klór-
gasi sem er mjög slæmt fyrir
öndunarfæri og lungu. Einn
YESTFJARÐARMÓT í
skák var haldið í
Grunnskólanum á ísafirði
sunnudaginn 4. nóvember.
Keppt var í tveimur aldurs-
flokkum, 12 ára og yngri og
13-16 ára og voru þátttakend-
ur alls tíu.
í flokki 12 ára og yngri
varð Andri Þorsteinsson í
fyrsta sæti með þrjá vinninga
eftir fjórar skákir og í öðru
sæti varð Atli Jakobsson
með einn vinning. Fleiri
var lagður inn á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á ísafirði en sá
þriðji fékk að fara heim að
lokinni skoðun. Talið er að
pakkning á stút hafi gefið
sig. Þann sama dag varð
einnig vinnuslys hjá Frosta
hf. í Súðavík. Ung stúlka
lenti með vinstri hendi í færi-
bandi og missti við það baug-
fingur. Líðan hennar er góð
eftir atvikum.
-s.
þátttakendur voru ekki í
þessum flokki.
I flokki 13-16 ára sigraði
Guðmundur Daðason. Hann
sigraði 2-1 í bráðabana við
Elvar Sigurðsson eftir átta
umferðir, þeir voru báðir
með 6,5 vinninga. í þriðja
sæti varð Sæþór Harðarson
með fjóra vinninga. Það var
Taflfélag ísafjarðar sem hélt
mótið og gaf verðlaunin.
-r.
FOKKER vél Flugleiða
hlekktist á í lendingu
á ísafjarðarflugvelli laust
fyrir klukkan fimm í gær,
þriðjudag. Vélin var þétt-
setin farþegum og var að
koma frá Reykjavík.
Flugvélin rak stélið í
flugbrautina í lendingu
með þeim afleiðingum að
gúmmípúði, sem staðsett-
ur er aftan undir stéli vél-
arinnar, rifnaði. Ekki er
vitað um orsök atviksins
en samkvæmt heimildum
blaðsins var vindur innan
hættumarka. Mjög hvasst
var í ísafjarðardjúpi þenn-
an dag en síðdegis dró
verulega úr vindi. Engan
sakaði við lendinguna og
aðrar skemmdir urðu
engar.
-r.
ísafjörður:
Guðmundur og Andri
Vestfjarðameistarar í skák
ísafjörður:
Skipt um nafn
• EINS og kunnugt er keypti Togaraútgerð ísafjarðar hf. rækjuskipið Hafþór RE-140 af sjávarútvegs-
ráðuneytlnu fyrir stuttu. Sklpinu hefur verið geflð nafnið Skutull ÍS-I80 og var meðfylgjandi mynd tekin
síðastliðinn sunnudagsmorgun þegar feðginin Friðrik Bjarnason og Bjamdís Friðrlksdóttir málara-
meistarar máluðu nýja nafnið á skipið. Framundan em ýmsar breytingar á skipinu sem væntanlega fer
á veiðar upp úr næstu áramótum.