Bæjarins besta


Bæjarins besta - 17.12.1990, Síða 4

Bæjarins besta - 17.12.1990, Síða 4
4 BÆJARINS BESTA Óháð vikublað á Vestfjörðum Útgefandi: H-prent hf. Sólgata 9, ísafjörður S 4560 Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson S 94-4277 & 985-25362 Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson S 94-4101 & 985-31062 Bladamaður: Róbert Schmidt @ 94-3516 Útgáfudagur: Miðvikudagur Upplag: 3800 eintök Ritstjórnarskrifstofa og auglýsingamóttaka: AðSólgötu9S 94-4570 Fax S 4564 Setning, umbrot og prentun: H-prent hf. BÆJARINS BESTA er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða og upplagseftirliti Verslunarráðs. Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annars efnis er oheimil nema heimilda sé getið. Krakkar mínlr komið þið sæl, ég er jólasveinninn... Kveikt á jólatrénu á Austurveíli ÞAÐ VAR margt um manninn á Austurvelli á laugardaginn, en þá var kveikt á jólatrénu, sem er gjöf frá vinabæ ísafjarðar, Koskilde í Danmörku. Kut Tryggvason afhenti gjöflna og var það Ólaíur Helgi Kjartansson, forseti bæjar- stjórnar, sem veitti gjöfinni viðtöku fyrir hönd ísfirð- inga. Ólafur Helgi flutti þakk- arávarp og að því loknu lék Lúðrasveit ísafjarðar nokk- ur jólalög og barnakór Tón- listarskólans og blandaður kór Sunnukórsins sungu fyrir gesti. Síðan sást í eitthvað hvítt og rautt á ferli skammt hjá. Jú, þarna voru þá jóla- sveinarnir komnir. Peir stukku upp á vöru- bílspall og tóku lagið með gestum við harmónikkuund- irleik. Eins og sjá má á með- fylgjandi myndum var kátt á hjalla og höfðu börnin greinilega gaman að jóla- sveinunum og tóku vel undir með þeim í jólasöngvunum. -r. • Þessi hnáta var auðsjáanlega dáleidd af jólasveininum. Forsíðan: Forsíðumyndina að þessu sinni tók Hrafn Snorrason, Ijósmyndari. Hrafn hefur átt forsíðu- myndir síðustu þriggja jólablaða. Kunnum við honum bestu þakkir fyrir. • Harmónikuleikararnir taka lagið með jólasveinunum og öllum viðstöddum. RITST J O KN Gleymum því ekki Þegar þetta eintak af Bæjarins besta kemur fyrir auglit þitt, lesandi góður, hefur þú vænt- anlega kveikt á kertinu á fallega aðventu- kransinum þínum til að taka á móti hinum þriðja sunnudegi í aðventu, og búa þig á tákn- rænan hátt undir komu hans, sem aðventan boðar að sé á næsta leiti, þ.e.a.s. af þú átt þá einhvern aðventukrans. Þegar orð þessi festust á blaðið hefur þú að öllum líkindum verið búinn að kynna þér rækilega bóka- og gjafaflóðið, hverra hol- skeflur eru með hinum stærri er sögur fara af, og er þá ekki við lítið að jafna, til að vera tím- anlega undirbúinn með gjafir handa ættingj- um og vinum þ.e.a.s. ef hvort tveggja er til staðar, ættingar og vinir annars vegar og á hinn bóginn geta til að taka þátt í gjafadansin- um. Þegar hér er komið að lestri ert þú, lesandii- góður, áreiðanlega farinn að velta vöngum yfir undarlegri byrjun á leiðara, sem í ofaná- lag birtist í jólablaði. Blaði sem af tilefninu fær forskeyti hátíðarinnar og ætti því að vera yfirhlaðið af hugrenningum og boðskap um undrið stóra sem tengist jólunum. Á undanförnum árum höfum við lagt dæguramstrið til hliðar í leiðara jólablaðsins og leitt hugann að aðventunni og jólunum sjálfum, undirbúningi fyrir komu þeirra og innihaldi. Við höfum síður en svo amast við jólagjöfum og tilstandi sem við teljum af hinu göða fái skynsemin að ráða. En hvers vegna þá svartnættis efasemdir? Eins og allir eigi ekki aðventukrans og allir fái ekki jólagjafir og allir eigi ekki einhverja ættingja! Jólin eru til að gleðjast og fagna og þau færa okkur frið. Á jólunum gleðjumst við í faðmi fjölskyldu og vina. Kirkjur landsins fyllast af prúðbúnu fólki til að fagna komu Meistarans. Undir jólaboðskapnum leggjum við kritur hversdagsins til hliðar. Þótt það hljómi barnalega þá verðum við betri meðan hátíðin varir. En hvað þá? Þrátt fyrir fallegu umgjörð jólanna hjá flestum okkar eru víða alvarlegir brestir í rammanum. Fátækt, cinsemd og veikindi hafa fylgt mannkyninu frá örófi alda. Nær og fjær eru átaldir, sem af margvíslegum ástæðum fara á mis við flest það sem jólin annars færa okkur. Þessa er hollt að minnast þegar helgar klukkur taka að hringja inn hátíðina miklu. Bæjarins besta sendir lesendum sínum og landsmönnum öllum hugheilar jólaóskir. s.h. ísafjörður:

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.