Bæjarins besta


Bæjarins besta - 17.12.1990, Side 9

Bæjarins besta - 17.12.1990, Side 9
BÆJARINS BESTA Forréttur: Innbakaður lax 400 gr. laxaflök 250 gr. smjördeig 1 bolli soðin hrfsgrjón 100 gr. rækjur 2 meðalstórir laukar, smátt saxaðir 250 gr. ferskir sveppir, saxaðir 4 ananashringir, smátt saxaðir 1 eggjarauða Sósan: 1 dl. hvítvín 1 bolli fiskisoð sósujafnari Krydd: karrý, paprika, picanta, salt og pipar Laxaflökin snyrt og roðflett. Smjördeigið flatt út þannig að auðvelt sé að pakka flakinu í það, skilja eftir afgang til þess að skreyta með. Laxinn lagð- ur á deigið. Hrísgrjónin eru því næst steikt í smjöri á pönnu ásamt lauk, an- anas, sveppum, karrýi, papriku og rækjum þar til grænmetið er orðið mjúkt og bragðbætt með picanta. Maukið er síðan lagt yfir laxinn. Smjör- deiginu lokað. Skreytt með útskornu smjördeigi og penslað með eggjar- auðu og bakað í ofni við u.þ.b. 180 til 200° C. íu.þ.b. 30 mín. eða þar til deigið er orðið fallega bakað. Sósan: Laukur og hvítvín sett í pott og soðið niður um 1/ 3, bætt við bolla af vatni og fiskikrafti og soðið í smá stund, bragðbætt með salti, pipar og karrý eftir smekk. Sósan síðan jöfnuð með sósujafnaran- um. Aðalréttur: Léttsteiktar rjúpur 6 rjúpur salt og pipar 1. tsk. timian mysingur 1 dl. sherry rifsberjasulta laukur sellery piparkorn gulrætur smjör, vatn rjómi ,200 gr. sýrður rjómi 100 gr. majones 50 gr. valhnetur 2 sellerystilkar 300 gr. vínber sykur Rjúpurnar eru skornar á beininu og beinin steikt í smjöri ásamt lær- unum, grófskornum lauk. frá gulrót, sellerystilk. Síðan fært í pott með 2 bollum af vatni og piparkornum og soðið í ca. 1 klst. Rjúpubringurnar eru steiktar í smjöri á pönnu og kryddaðar með salti, pipar og timian í u.þ.b. 3 mín. á hvorri hlið. Þær eru síðan teknar af og geymdar á heitum stað. Sherry sett á pönnuna og soðið niður og bætt út í rjúpusoði. Soðið í smá- stund, bætt með mysing, rifsberjasultu og kryddi eftir smekk jafnað út og bætt með rjóma. Borið fram með sykur- brúnuðum kartöflum, léttsoðnum gulrótum og eplasalati, en það er lagað með 2 hlutum af sýrðum rjóma, einum hluta af majonesi. Þessu hrært saman, söxuðum eplum bætt út í ásamt 300 gr. af steinhreinsuðum vínberj- um, sellerystilk auk 50 gr. af valhnetum. Bragðbætt með sykri. Eftirréttur: Gamaldags Sherry Triffle 1 lítri mjólk 10 matarlímsblöð 6 eggjarauður 1 tsk. vanilludropar 1/2 bolli sykur 1/4 lítri þeyttur rjómi, auk þess rjómi til að skreyta skálina með. 100-200 gr. makkarónukökur 1/2 bolli sherry 6-8 msk. góð ávaxtasulta Makkarónurnar settar í skál, vætt í með sherryinu. Sultan er sett ofan á,í... Matarlímið sett í bleyti í kalt vatn í 5 mín. Mjólkin er hituð að suðu. Eggjarauðurnar eru hrærðar með sykrinum, þar til þær verða ljósrauð- ar. Síðan er mjólkinni bætt út í smátt og smátt. Eggjahrærunni hellt aftur í pottinn og hitað þar til hún byrjar að þykkna. Gæta þarf þess vel að ekki sjóði í pottinum. Matar- límið og vanilludroparnir eru sett út í. Blandan er látin kólna þar til hún er um það bil að þykkna. Þeytta rjómanum er þá bætt út í. Kreminu hellt í skálina, yfir makkarón- urnar. Skreytt með þeytt- um rjóma. Búðingurinn geymist vel í 2-3 daga í kæli. Marengskökur Það er tilvalið að gera marengskökur úr eggja- hvítum. Jólamaturinn Góða rétti gjöraskal... Hátíðarréttir hjónanna Ásdísar Alfreðsdóttur og Ólafs Amar Ólafssonar, hótelstjóra á Hótel ísafirði • Áslaug Alfreðsdóttir. • Ólafur Örn Ólafsson. 6 eggjahvítur 300 gr. sykur Ofninn settur á 50° C. Eggjahvíturnar eru þeyttar og sykrinum er bætt í smátt og smátt. Gæta þarf þess að skálin sé vel hrein og engin fita í henni því þá þeytist hvítan ver. Þegar hræran er orð- in mjög stíf er hún sett á með tveimur teskeiðum eða sprautað á bökunar- pappír á bökunarplötu. Bakað þar til kökurnar eru þurrar og stökkar.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.