Bæjarins besta


Bæjarins besta - 17.12.1990, Blaðsíða 22

Bæjarins besta - 17.12.1990, Blaðsíða 22
22_____________________ BÆJARINS BESTA HOLTAKJÖR 25 - BOLUNGARVÍK - F ÁRA I tilefni af afmælinu veitum við 15% staðgreiðsluafslátt fimmtudaginn 20. desember 25% afslátt af konfekti og egg á kr. 250.- pr. kg. Mikið úrval af fallegum dúkum og allskonar gjafavöru. Já, það er ótrúlegt vöruúrval í lítilli búð. OPIÐ: Miðvikudaginn 19. des. kl. 10-22 Fimmtudaginn 20. des. kl. 10-22 Föstudaginn 21. des. kl. 10-22 Laugardaginn 22. des. kl. 10-24 Mánudaginn 24. des. kl. 10-12 Holtakjör þakkar viðskiptin síðastliðin 25 ár og óskar Vestfirðingum gleði- legra jóla og gæfu í framtíðinni. Af og til verður for- svarsmönnum ríkis og sveitarfélaga tíðrætt um landsbyggðina og þau vandamál sem við blasa annars staðar á landinu en á hinu margrómaða suðvesturhorni. Reyndar er ekki alltaf ljóst hvers vegna suðvestrið er svo eftirsóknarvert, sem raun ber vitni. En í sjónvarpinu - allra landsmanna var fyrir skömmu rætt við Kristján Oliversson, einn af mörgum sérfræðingum Byggðastofnunar. En það er __ með sérfræðinga Byggðastofnunar eins og veðurfræðingana. Þó veðurfræðingum fjölgi batnar veðrið ekki hætis hót. Sama er að segja um sérfræðinga Byggða- stofnunar. Fjölgun þeirra sýnir sig ekki í betri hag landsbyggðarinnar og það er alveg á tæru að ekki fjölgar fólkinu þar. Þetta var einmitt það sem nefndur Kristófer var að leggja áherslu á síð- astliðinn sunnudag í Kastljósinu, að með áframhaldandi þróun óbreyttri þá verða íbúar Reykjavíkur og nágrennis 200.000 árið 2010. Þeir munu þá verða 2/3 hlutar íbúa þessa lands. Þá hefur íbúum landsbyggðar- innar fækkað í tölum talið og eru orðinn alger minnihluti landsbúa. Það eina sem vantaði var að sérfræðingurinn benti á, að þessi minnihluti væri orðinn að annars flokks þegnum í landinu. Kjarni máls Kristófers Oliverssonar var hins vegar sá að benda á það, að Reykjavík þyldi illa þessa fjölgun og snúa þyrfti við blaðinu í þessari þróun. Svo benti hann á þá staðreynd að flest ný störf verða 'til í þjónustu- geiranum og all mörg þeirra hjá ríkinu. Þessi nýju störf ættu framvegis að verða til úti á lands- byggðinni. Flugið og Flugleiðir Undir þetta skal tekið með þessum ágæta manni úr stofnuninni hans góðu sem nú rekur skrifstofu á ísafirði. Þar má gjarnan fjölga og það verða ein- hver ráð með að finna pláss fyrir þá starfsmenn Byggðatofnunar sem vilja setjast að á ísafirði. Þá kemur að samgöngunum. Flugið og Flugleiðir skipa þar stóran sess. En við erfiðar aðstæður duga ekki stóru Fokkervélarn- ar. Þá þarf meiri breidd og fleiri möguleika til að tryggja fólki öruggar samgöngur við aðra landshluta svo tryggja megi sem tíðastar sam- göngur. Mennimir verða þó að minnsta kosti að komast á fundina. Þar koma landshlutaflugfé- lögin til sögunnar. Sam- gönguráðherra hefur farið nýja en umdeilda leið til að örva samkeppni í innanlandsflugi, fyrst á Vestmannaeyj aleiðinni og svo milli Húsavíkur og Reykjavíkur. En ^uk þess að eiga ör- uggar samgöngur í lofti vísar er nauðsynlegt að tryggja að verðlagning sé með þeim hætti að við- ráðanlegt reynist venju- legu fólki að ferðast loft- leiðis. Einstakhngur greiðir rúmar 10 þúsund krónur fyrir að fljúga fram og til baka milli ísafjarðar og Reykjavíkur og getur ekki alltaf treyst á veður. Ekki svo slæmt eða hvað? Ef hjón með 2 börn annað 10 og hitt 14 ára ætla að fljúga þessa leið þá kostar það um 23 þúsund krónur. Þegar svo er komið er hætt við að flugið keppi við einkabílinn. Flugleiðir sem einkaleyfishafi í ísa- fjarðarfluginu eru ekki öfundsverðir af hlutskipti sínu. En engu að síður er þeim nauðsynlegt að leita ahra ráða til að halda niðri fargjöldum. Sumir vilja meina að það verður betur gert með minni flugvélum og tíðari ferðum og þar af leiðandi betri sætanýt- ingu. Ekki skal um það sagt hér. En öruggar og ódýrar samgöngur eru ein leiðin til að gera fólki kleyft að búa á lands- byggðinni. Annars er spádómur Kristófers ekki spádómur heldur stað- reynd.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.